Eining - 01.07.1968, Síða 4

Eining - 01.07.1968, Síða 4
4 EINING ÍÚT tíu ára Afmælishóf Isl. ungtemplara 10 ára sumardaginn fyrsta, 25. apríl sl. var í alla staði hið myndarlegasta og unga fólkinu til sæmdar. Alls voru veizlu- gestir um 100, boðsgestir og félagar. Auk félaga í Reykjavík voru félagar ungtemplara frá Kópavogi, Hafnar- firði, Keflavík, Akureyri, Siglufirði, Vestmannaeyjum og ef til vill víðar að. Á blaðsíðu ungtemplara hér í blaðinu, er búið að greina frá heiðursgestum, er- lendum gestum, frá ávörpum og ræðum. Formaður ÍUT, Einar Hannesson full- trúi, setti hófið og bauð gesti velkomna, fól svo Gunnari Þorlákssyni sam- kvæmisstj órnina. Séra Árelíus Níelsson, sem verið hafði formaður IUT 8 ár, flutti aðal- ræðuna og sagðist vel að vanda. I ávarpi stórtemplars, Ólafs Þ. Kristjánssonar, voru m. a. eftirfarandi orð: „Engum getur blandazt hugur um, að ungtemplararnir hafa með starfsemi sinni gert bindindishreyfingunni hér á landi mikið gagn .... Ástæða er til að nota tækifærið til þess að þakka íslenzk- um ungtemplurum fyrir það, sem þeir hafa gert, og fyrir það, sem þeir hafa viljað gera, þakka þeim fyrir það, að þeir hafa ekki látið hugfallast, þótt björtustu vonir þeirra um vöxt hreyf- ingarinnar hafi ekki rætzt. Þeim hefur tekizt að búa félagshreyfingu sinni traustan grundvöll. Þeir hafa sýnt al- menningi að stefna þeirra er lífsþrótti gædd. Þeir hafa stuðlað að aukinni bindindissemi meðal þjóðarinnar, kannske í ríkara mæli en unnt er að sýna. Og starfsemi þeirra hefur verið með þeim hætti undanfarið og er nú, að ástæða er til að vænta mikils af þeim á næstu árum.“ Já, ef ungtemplarar sækja fram eins og þeir hafa gert síðustu árin, má mik- ils af þeim vænta. Svo verðum við allir, jafnt ungir sem gamlir, að gera sam- vinnuna sem traustasta og bezta, og munu þá nýir sigrar vinnast. Ungtemplurum bárust heillaskeyti og gjafir, veitingar þeirra voru myndar- legar, nokkur góð skemmtiatriði, og þar ekki sízt einsöngur Sigurveigar Hjaltested, sem söng nokkur lög, og var söng hennar vel fagnað. Mannfagnaður þessi mótaðist af æskulífsþrótti og myndarskap. Páll Kolbeins. Páll kolbeins Sextugur 14. maí sl. Stundum hef ég hugleitt, hvernig það myndi vera, að ala aldur sinn á jörð, sem ekki snerist. Þá væru þar engir dagar og engar nætur, ekki ár né aldir, og þá ættum við heldur aldrei afmæli. Fávísleg heilabrot slíkt. Nú erum við á jörð sem snýst. Árin hverfa líka fljótt og hér er nóg af afmælum, bæði lifenda og dauðra og allra hugsanlegra fyrir- tækja og félaga. Það hlaut að koma að því, að vinur minn Páll Kolbeins ætti merkisafmæli, og þegar ég nú horfi á myndina af hon- um í Morgunblaðinu 14. maí sl. Þá skil ég, hvers vegna hann er ávallt svo hýr á svip. Hann er vorgróður, maíblóm. Frá því er ég sá hann fyrst fyrir meira en 30 árum, hefur hann verið hinn sami broshýri, hressilegi og glaðlyndi áhuga- maður. Slíkum mönnum er gott að kynn- ast. Eg gleymi því ekki þegar ég fyrr á árum kom stundum árlega í Súganda- fjörð, stundum gangandi yfir Klofn- ingsheiði niður að Stað, þar var þá bróðir Páls, séra Halldór Kolbeins prest- ur. Hann gekk þá með mér inn á Suður- eyri, kallaði í fyrstu mannverurnar, er við sáum á ferli þar: „Samkoma í kvöld!" Og það brást ekki, að þar var fullt hús góðra áheyrenda. Það var til- hlökkunarefni að koma á Suðureyri og hitta bindindishetjurnar þar, glaða menn og hressilega, trausta og áhuga- sama — mannval, sem átti sinn þátt í því, að enginn maður var þá þar áfengis- neytandi. Einn þessara manna var ein- mitt Páll Kolbeins, og síðan hefur hann verið hinn ósvikni og áhugasami liðs- maður bindindisstarfsins og félagi í góðtemplarareglunni og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum þar, en lagt lið fleiri mannúðarmálum, verið t. d. einn af fremstu mönnum í stjórn Barnaheimil- isins að Skálatúni frá upphafi þess. Á vissulega þakkir skilið fyrir mikið og gott verk þar. Fæddur er Páll Kolbeins að Melstað í Miðfirði í Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru séra Eyjólfur Kolbeins og kona hans Þórey Bjarnadóttir. Páll yngstur barna þeirra, en systkinin voru 10, hann var aðeins þriggja ára er faðir hans dó. Sem ungur maður sinnti hann ýmsum störfum til lands og sjávar, unz hann hóf nám í Verzlunarskóla Islands, brautskráðist þaðan 1930 og var svo við framhaldsnám í Danmörku, Þýzka- landi og Englandi. Eftir heimkomuna gerðist hann skrifstofustjóri prent- smiðjunnar Eddu til ársins 1944, en síðan hefur hann verið í þjónustu Eim- skipafélags íslands, aðalbókari þar og nú síðustu árin aðalféhirðir. Páll Kolbeins er maður trúr og vinn- ur störf sín af mestu samvizkusemi og nýtur því trausts hvarvetna. Áreiðan- lega er mér óhætt að láta Einingu bera honum heillaóskir reglusystkina hans og þakkir fyrir margvísleg störf. Þá þakka ég honum löng og góð kynni og bið hon- um og f jölskyldu hans allra heilla á kom- andi árum. Pétur Sigui'Ssson. Tilþrifamikill klerkur í hinni ágætu bók, „Saga barnaskólans á Eyrarbakka 1852—1952,“ eftir séra Áre- líus Níelsson, er minnst drengilega á séra Pál Sigurðsson, prest í Gaulverjabæ, sums staðar ærið hressilega, eins og t.d. í eftir- farandi orðum: ,,í Gaulverjabæ flutti hann sínar skel- eggu ræður, sem feyktu brott skýjum hjá- trúar og hræsni frá bjartri sól sannleiks og frelsis. Að vissu leyti má segja um sr. Pál, að hann hafi steypt andskotanum úr öndvegi og slökkt í eilífum glóðum hel- vítis.“ Óþarft mun nú orðið að vera að eyða miklu púðri á djöfsa búinn hornum og klaufum eða senda trúfræðilegt slökkvilið á glóðir vítisins hið neðra. Hins mun meiri þörf að uppvakni spámenn og kraftpré- dikarar til að „steypa úr öndvegi“ þeim illa anda, sem kveikir nú eldana um heim allan, og til að slökkva þá loga. -K-k -K -K-k

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.