Eining - 01.07.1968, Blaðsíða 7

Eining - 01.07.1968, Blaðsíða 7
EINING 7 Bæn. Einar Jónsson. Höndin. Einar Jónsson. FÖGUR FYRIRMYND Tvö af listaverkum Einars Jónssonar prýða nú umhverfi Elli- og hjúkrunar- heimilisins Grundar í Reykjavík. Þar fer vel um þau, því að garður þessa stóra heimilis er hinn fegursti og mikið augnayndi. Elli- og hjúkrunarheimilið hefur gerst fögur fyrirmynd í því að koma þessum listaverkum í varanlegt efni og búa þeim veglegan stað fyrir sjónum allra, sem framhjá fara á einni fjöl- förnustu braut borgarinnar. Forstjóri heimilisins, Gísli Sigurbjörnsson, hefur ekki haft um þessa framkvæmd mörg orð, en látið verkin tala. Vonandi verður fordæmi hans til þess að glæða áhuga manna á því að skreyta borgina mörgum listaverkum Einars Jónssonar. Þjóðin á í þeim ófölnandi fjársjóð. Um slíka framkvæmd þyrfti að myndast sterk samtök. Vel á listaverkið Bænin heima við húsvegg elztu kynslóðarinnar, sem á áreiðanlega til í lífsreynslu sinni mátt- ugan vitnisburð um bænina sem lausn- armátt, sem heilsu- og hamingjugjafa og blessunarlind í allri lífsbaráttu. Frá dvalarstað hinna háöldruðu stíga vafa- laust upp margar bænir og þakkarávörp, og fyrir þeim biðja sjálfsagt margir venzlamenn. Listaverkið, Demanturinn eða HöncL- in, táknar vel heilindin, styrkleikann, kraftinn, afrekin. Höndin lyftir hinum þungu tökum, vinnur verkin, — afrek- in og ryður kynslóðunum og framför- unum braut. Máttugt verður þetta tákn- mál Handarinnar, þegar tvö stórskáld: „höggmyndaskáldið" Einar Jónsson og ljóðskáldið Einar Benediktsson, leggja saman í eitt túlkun sína á þessu. Einar Benediktsson segir um móður sína: ,,Þú vógst upp björg á þinn veika arm.“ Veikur konuarmur gat lyft björgum. Því orkaði hinn máttuga trú, sem vissi „ei hik né efa,“ en sem „allt kunni að fyrirgefa." Hver viðurkennir ekki hina voldugu og frelsandi hönd móðurelsk- unnar, sem veldur hverju Grettistaki? Margir vistmenn Elli- og hjúkrunar- heimilisins Grundar hafa á ævidögum sínum lyft þungum tökum, axlað marga þunga byrði, rutt víða braut, unnið ýms afrek og létt byrðar margra. Og þeir, sem komu upp þessu stóra heimili og hafa annast um allan þess myndarlega búskap, hafa vissulega lyft Grettistaki. Á allt þetta minnir höndin sterka og fagra við húsvegg stóra heimilisins. Pétur Sigurösson. HVÍLD Ég loka hurð að heimsins glysi og glaum og gefst á vald hins milda, djúpa friðar, og líð þá inn í ljúfan vökudraum, þá leysast vandamálin öll án biðar, en um mig flæða einhver dularmögn, sem inndæl hvíld og blessuð kyrrðin veitir, og þrekleysinu, - samkvæmt helgri sögn, í sælukennd og nýja krafta breytir.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.