Eining - 01.07.1968, Page 15
E I N I N G
15
Við œttum að skammast okkar.
Hann bendir á, hve starf lögreglunnar
sé erfitt og það vanmetið og illa stutt,
hve glæpalýðurinn vaði uppi, og að yfir-
völdum þjóðarinnar beri að taka á slíku
hörðum höndum og reyna að uppræta
sem mest illgresið. Uppgjöfum saka í
meiriháttar afbrotum, segir hann, að
fjölgað hafi um 14% síðan 1962. Árið
1965 hafi fjöldi þeirra manna, sem fang-
elsaðir hafi verið eða settir í betrunar-
stofnanir ungmenna eða fengið skilorðs-
bundinn dóm, verið tvær milljónir.
Sama ár voru drýgðir 14 meiriháttar
glæpir á hvert þúsund landsmanna,
þessa velsældar lands.
Afbrotum og glæpum ungmenna fjölg-
ar miklu örar en glæpunum yfirleitt.
Árið 1965 var meira en helft allra þjófn-
aðarafbrota, þar á meðal bíla- og inn-
brotsþjófnaðar, drýgð af ungmennum í
aldursflokknum 11—17 ára.
Þessi glæpaiðja er talin kosta þjóðina
beinlínis 20—30 milljarða dollara ár-
lega. Þar með ekki talin öll hin mann-
lega þjáning og eyðilögðu mannslíf í
þessu glæpafári.
Þarf þetta að þrífast samhliða mikilli
og vaxandi skólamenntun, alls konar
menntun og vísindum, velgengni, bætt-
um lífskjörum og víðtækri félagsmála-
starfsemi? Þessi þjóðarsjúkdómur skað-
ar þjóðina meira en styrjaldir. Er ekki
þörf á hreinsun? Þarf ekki yfirmann-
legan mátt til að rySja musterið, eins og
skáldið orðar þetta. „Sé hneykslið á stað-
inn heilaga sett, guð hjálpi þeim lýðum
og storðum.“
I áðurnefndri ritgerð er kafli eftir
æðsta mann rannsóknarlögreglu sam-
veldis Bandaríkjanna. J. Edgar Hoover
heitir hann. Hvað leggur hann til mál-
anna ? Hann varpar fram spurningunni:
Hvað veldur þessum afbrotaófögnuði
ungu kynslóðarinnar? Eina helztu or-
sökina telur hann vera þá stórskaðlegu
og ósönnu kenningu, sem vaðið hafi upp
í skólum, réttarsölum, heimahúsum og á
götum úti, að það sé samfélaginu, for-
eldrum og þjóðfélaginu að kenna, að
unga fólkið hegðar sér eins og það gerir.
Hins vegar viðurkennir hann þá al-
varlegu vanrækslu þjóðfélagsins, að
hafa ekki frætt æskumenn nægilega um
gildi agans, sjálfsvirðingar og virðingar
fyrir lögum og rétti.
Hin háskalega kenning, að eldri kyn-
slóðin og þjóðfélagið eigi sökina á öllum
ósóma ungu kynslóðarinnar, hefur sann-
arlega stungið upp kollinum einnig á
Islandi, og áreiðanlega unnið sitt ó-
þurftarverk. Óþarfi er að mæla ósóm-
anum bót eða ala hann upp í villingum.
Hlutverk lögreglunnar er víða um lönd
allt annað en auðvelt. Til dæmis, svo aft-
ur sé vitnað í áðurnefnda ritgerð, urðu
18 þúsund lögreglumanna fyrir árásum
glæpamanna eitt undanfarið ár í Banda-
ríkjunum, 7738 voru særðir og 57 drepn-
ir.
Tvær meginhliðar eru á þessu mikla
vandamáli, sem hér hefur verið rætt.
Önnur sú, að einhver máttug hönd verð-
ur að vinna hreinsunarverk. Hin hliðin
er þó langt um veigameiri. Hún er sjálft
uppeldi þjóða. Niðurrifsöflin eru geig-
vænlega máttug, og magnari þeirra er
hinn voldugi peningur — gullkálfurinn
í einhverri mynd.
Hitt er svo víst, að tækju ríkisstjórn-
ir, löggjafarþingin, kirkja, skólar og
heimili höndum saman, af vakandi
ábyrgðartilfinningu og göfugmennsku,
um að ala upp hverja kynslóð í guðs-
hyggju og góðum siðum, hlyti árangur-
inn að verða mikill og góður. Enn er það
satt, að hver og einn uppsker eftir því
hvernig hann sáir.
P.S.
-k-k -)< -x-K
Unglingaregluþingið,
framhald af 2. bls.
hafin verði nú þegar skipuleg sókn til
bæjar- og sveitarfélaga um árlegan f jár-
stuðning við barnastúkurnar. Felur
þingið stórgæzlumanni að hafa forgöngu
um þetta.
6. Unglingaregluþingið 1968 lýsir megnri
andúð á auglýsingastarfsemi tóbaks-
framleiðenda og umboðsmanna þeirra
hérlendis. Um leið minnir þingið á þá
ábyrgð, sem þeir aðilar baka sér, sem
með birtingu tóbaksauglýsinga og á
annan hátt koma á framfæri áróðri fyr-
ir tóbaksneyzlu.
Þingið harmar, að frumvörp um bann
við tóbaksauglýsingum skuli ekki hafa
náð fram að ganga á Alþingi, en lýsir
þeirri ósk og von, að slíkt bann verði
sem fyrst í lög leitt.
Þingið skorar á ríkisstjórnina að fyrir-
skipa, að sett verði alvarleg viðvörun
um skaðsemi tóbaksneyzlu á hvern síga-
rettupakka, sem seldur er í landinu, svo
sem gert hefur verið a.m.k. í Banda-
ríkjunum.
Unglingaregluþingið var hið ánægjuleg-
asta. Það lauk miklu lofsorði á stórgæzlu-
mann og skoraði mjög eindregið á hann að
gefa kost á sér enn á ný.
Þingið færði Þingstúku Reykjavíkur
þakkir fyrir gott kaffiboð. Sennilega verð-
ur nánar vikið að unglingaregluþinginu,
þegar næsta tölublað Einingar kemur út.
Stórstúkuþingið,
framhald af 2. bls.
lýsingaþjónustu meðal almennings um
áfengismálin og stefnu Góðtemplara-
reglunnar.
2. Stórstúkuþingið telur ástæðu til að
endurtaka samþ. fyrri þinga, um að
átelja það, að opinberir aðilar hafi vín-
veitingar um hönd á kostnað almenn-
ings, í opinberum veizlum, og beinir því
til framkvæmdanefndar Stórstúku ís-
lands að vinna að því við ríkisstjórn og
Alþingi að bannaðar verði með lögum
allar áfengisveitingar á vegum ríkisins
og ríkisstofnana og annarra opinberra
aðila.
Jafnframt þakkar þingið bæjarstjórn
Hafnarfjarðar fyrir gerða samþ. um að
ekki sé veitt vín á vegum bæjarstjórnar
og stofnana bæjarins.
3. Stórstúkuþingið fagnar þeim áfanga,
sem náðst hefur í húsnæðismálum Regl-
unnar, með byggingu hinnar nýju
Templarahallar í Reykjavík og einnig
þeirri stækkun og endurbótum, sem
gerð hefur verið á bindindishóteli templ-
ara, Varðborg á Akureyri.
4. Stórstúkuþingið lýsir ánægju sinni yfir
velheppnuðum bindindismótum Um-
dæmisstúkunnar nr. 1, Þingstúku Eyja-
f jarðar og ísl. ungtemplara, sem haldin
hafa verið undanfarin sumur.
Einnig metur þingið mikils viðleitni
annarra félagssamtaka að halda mót
með líkum hætti. Skorar þingið á al-
menning að veita öllum þeim aðstoð,
sem vilja vinna að því máli í sambandi
við skemmtanahald, að forða ungum og
gömlum frá áfengisneyzlu, en skapa
heilbrigt almenningsálit um skaðsemi
áfengisnautnarinnar.
5. Stórstúkuþingið skorar á alla bindindis-
menn og bindindissinnað fólk í landinu,
að hefja nú þegar öfluga baráttu gegn
áfengisbölinu og einnig að standa vel á
verði gegn hvers konar breytingu á
áfengislöggjöfinni til hins verra, þar á
meðal ef fram kemur frumvarp á Al-
þingi um bruggun og sölu á áfengu öli.
6. Stórstúkuþingið telur nauðsyn bera til
náinnar samvinnu allra þeirra aðila, sem
vinna að bindindismálum og áfengis-
vörnum í landinu. Felur þingið fram-
kvæmdanefnd Stórstúku Islands í sam-
ráði við Áfengisvarnaráð að athuga
möguleika á að koma á landsfundi
þeirra aðila það árið sem Stórstúkuþing
er ekki haldið.
-K-K -K -K-K
Auðratað
Söm eru verkin, jafnt síðast og fyrst,
þótt sitji menn friðarþing.
Kain var myrtur. - Þeir krossfestu Krist-
Kennedy skutu, Lincoln og King.
Afreksmannanna ævislóð
auðkennir jafnan fórnarblóð.
P.S.