Okkar á milli - 01.01.1988, Blaðsíða 6
Kæru félagsmenn!
Ég vil byrja á því aö óska ykkur öllum
gleðilegs nýárs og þakka ykkur viö-
skiptin á síöastliönu ári.
Janúar-blaðið er fleytifullt af nýj-
um bókum eftir kunna höfunda,
bæði innlenda og erlenda, svo aö
allir ættu aö geta fundið sér góða
bók til að lesa í skammdeginu.
Mánaðartilboðið sker sig úr eins
og svo oft áður. Kristín Lafranzdóttir
eftir Sigrid Undset er heimsbók-
menntir, en jafnframt spennandi ást-
ar- og ættarsaga, sem allir hafa
gaman af að lesa og ætti að vera til á
hverju heimili.
Gosi er einnig sígildar heimsbók-
menntir. Sagan um spýtustrákinn
hefur heillað börn á öllum aldri og
gerir það enn. Og áreiðanlega hafa
mörg börn ánægju af aö hlusta á
hinn vinsæla útvarpslestur Þorsteins
Thorarensens á kassettu - og fylgj-
ast um leið með í bókinni.
Þeir sem hafa gaman af spennu-
sögum hafa úr þremur góðum tilboð-
um að velja: Sendiboðum næturinn-
ar eftir David Morrell, Aldrei of seint
eftir Phyllis A. Whitney og Hvar eru
börnin og Viösjál er vagga lífsins eftir
Mary Higgins Clark. Allt eru þetta
bækur sem grípa lesandann um leið
og hann hefur lesturinn.
Að lokum vil ég þakka þeim félags-
manni, sem hringdi til okkar föstu-
daginn 4. desember og benti okkur á
grein í DV, þar sem blaðamaður hafði
skrifað um Veröld á neytendasíðu
blaðsins. Fyrirsögnin var: ,,Dýrt að
panta hjá Veröld - Varist skrum í
auglýsingurrT. Fullyrtvar, að Veröld
auglýsti fullt verð plötunnar Dögun
eftir Bubba á 999 kr. í staðinn fyrir
899 kr. og okkar verð væri 849 kr., en
það var 765 kr. Blaðamaðurinn hafði
farið línuvillt og birti fullt verð plöt-
unnar Kvöld við lækinn, en það var
999 kr. Mánudaginn 7. desember
var Veröld beðin afsökunar á þess-
um mistökum. Þarna var um óvand-
aða blaðamennsku að ræða að ekki
sé fastara að orði kveðið, og sýnir,
að ástæða er til að taka fréttir og
umfjöllun blaðanna með varúð -
jafnvel á neytendasíðunum.
Með bestu óskum um gleðilegt nýár.
clóW
Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri
Nr.: 1671
Fullt verð: 1.880 kr.
Okkar verð: 1.689 kr.
Viltu láta
drauma þína
rætast?
Bókin Sjálfstraust og sigurvissa er skrifuð
til þess að sem flestir geti látið drauma sína
rætast. Þetta er hnitmiðuð bók um efni sem
alla varðar, því að lífið er stutt og listin að lifa
margslungin.
Þekktur sálfræöingur
Höfundur bókarinnar, Irene Kassorla, er
þekktur sálfræðingur í Bandaríkjunum. Hún
leiðir lesendur sína til aukinnar sjálfsvirð-
ingar og sjálfstrausts af mikilli þekkingu og
fenginni reynslu. Þú getur hvað sem er, ef
þú vilt - er kjarninn í kenningum Irene
Kassorla, og hið eina sem getur staðið í
vegi fyrir persónulegri velgengni þinni ert
þú sjálfur, hvort sem þú ert karl eða kona.
Leyndir hæfileikar
í formála segir Irene Kassorla m.a.: ,,Við
eigum mikið af hugsjónum um það sem við
viljum ná fram í lífi okkar. En við þorum ekki
að nálgast það sem okkur dreymir um.
Þess í stað beitum við skynseminni til að
eyða metnaðinum og til að sannfærast um
að við séum betur komin án hans. Þannig
erum við sigruð áður en við leggjum af stað,
og vonirnar sem við ólum í brjósti deyja
með okkur. Þú getur lært hvernig má auka
leynda hæfileika þína. Þú getur bætt per-
sónuleika þinn og tekið breytingum til hins
betra.“
6