Okkar á milli - 01.01.1988, Page 7

Okkar á milli - 01.01.1988, Page 7
Dæmisaga úr íslensku þjóðfélagi Undir húfu tollarans heitir ný íslensk skáld- saga eftir Kristján Jóhann Jónsson, sem löunn gaf út núna fyrir jólin. Þetta er önnur skáldsaga Kristjáns, hin fyrri hét Haustið er rauttog kom út 1981. Undir húfu tollarans er dæmisaga úr ísl- ensku þjóöfélagi og segja má að í henni eigi ólíkar stéttir og samfélagshópar sína full- trúa. Aöalpersónurnar eru tveir bræöur: Karl kennari og Björn iðnaðarmaður, en auk þess koma ýmis skyldmenni og vanda- menn þeirra bræðra viö sögu. Margbreyti- Nr.: 1672 Fullt verð: 1.980 kr. Okkar verð: 1.779 kr. legu mannlífi og samspili ólíkra persóna er vel lýst, svo að lesandinn fylgist með af lifandi áhuga frá upphafi til enda. í ritdómi, sem birtist um bókina í Tímanum, segir Eysteinn Sigurðsson m.a.: „Sagan er rösklega skrifuð, og jafnt persónu- og um- hverfislýsingar mega teljast dregnar skýr- um dráttum. Ádeila er þarna vitaskuld víða á ferðinni, en yfirgnæfandi er þó að höfund- ur nálgast hér persónur sínar af þeirri alúð og nærgætni sem einkennir handaverk góðra skáldsagnahöfunda.“ Og hvað með það? Og hvaö meö þaö? heitir ný unglingasaga eftir Helgu Ágústsdóttur, sem Iðunn gaf út fyrir jólin. Helga hefur áður sent frá sér tvær bækur fyrir unga fólkið, sem hafa orðið vin- sælar: Ekki kjafta frá og Ef þú bara vissir. Þeir lenda í ýmsu Textinn aftan á kápunni gefur ofurlitla hug- mynd um efni og blæ þessarar bókar, en þar segir m.a.: „Unglingarnir lenda í ýmsu og það er ekki víst að þeirfullorðnu viti alltaf málavöxtu. Þeir halda að þetta sé allt vit- leysa og barnaskapur. Þeir ættu bara að vita í hverju maður getur lent! Og pæling- arnar, þeir vita nú minnst um þær. Hver er þessi dularfulli Dagur? Og svo á maður bara að vera stilltur og góður og læra heima! Það þarf nú líka að sinna öðru, sem er að minnsta kosti jafn áríðandi.11 Nr.'c 1673 Fullt verð: 1.298 kr. Okkar verð: 1.165 kr. Heimilislæknirinn i verðlaun J anúar-getraunin Þá hleypum við hinni vinsælu getraun okkar af stokkunum á nýju ári. Sem verðlaun að þessu sinni höfum við valið dýrasta og eftir- sóttasta verkið, sem gefið var út á bóka- markaðnum á nýliðnu ári. Það er að sjálf- sögðu Heimilislæknirinn, þriggja binda stórvirki, sem Iðunn hefur gefið út og kostar 13.900 krónur. Þetta eru bækur sem þurfa að vera til á hverju einasta heimili. Og spurningin er lauflétt eins og venju- lega: Hvaöa ár hlaut Sigrid Undset Nób- elsverölaunin? Hún er eins og kunnugt er höfundur skáldverksins Kristin Lafranz- dóttir, sem er mánaðarbók Veraldar nú í janúar. Skrifaðu svarið á svarseðilinn á næst öftustu síðunni og sendu okkur eða hringdu inn réttalausn. 7

x

Okkar á milli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.