Okkar á milli - 01.01.1988, Síða 10

Okkar á milli - 01.01.1988, Síða 10
Ný og glæsileg útgáfa af spýtustráknum Gosa Nr.: 1678 Fullt verð: 1.480 kr. Okkar verð: 1.258 kr. Þorsteinn Thorarensen rithöfundur og út- gefandi las nýja þýöingu sína á Gosa í út- varpið síðastliðið haust við miklar vinsældir hlustenda. Og nú er þýðing hans komin út hjá Fjölva í stórri og glæsilegri bók með fallegum litmyndum. Sígild barnasaga Ævintýrið um spýtustrákinn Gosa öðlaðist frægð með skjótum hætti. Höfundurinn hét réttu nafni Carlo Lorenzini, en notaði dul- nefnið Collodi. Gosi kom út í Flórens á Ítalíu á síðustu öld, fyrst sem framhaldssaga í barnablaði en síöan i bókarformi 1883. Sagan naut strax svo mikilla vinsælda, að allt ætlaði um koll að keyra. Fljótlega var farið að þýða bókina á önnur tungumál, og þar með hófst sigurför Gosa um víða ver- öld. Sagan er nú sígild og einn af hátindum barnabókmennta heims. Fyrsta heildarþýðingin Gosi kom fyrst út hér á íslandi árið 1921 í þýðingu Hallgríms Jónssonar skólastjóra. En sagan var þýdd úr ensku og stytt. Þýðing Þorsteins Thorarensen er hins vegar fyrsta heildarþýðingin á íslensku, og hún er gerð úrfrummálinu, ítölsku. Margar myndskreytingar Frumútgáfu Gosa í bókarformi 1883 mynd- skreytti Enrico Massanti, en eftir því sem bókin var þýdd á fleiri tungumál, fengust æ fleiri listamenn við verkefnið. Tvennar myndskreytingar þykja bera hæst: Teikn- ingar ítalans Attilios Massinós frá 1910 og teiknimynd Walt Disneys frá 1940. Einn kunnasti listamaður á Italíu nú á dögum, Giorgio Scarato, myndskreytir nýju bókina og eru myndir hans einstaklega skemmti- legar. Það er vart hægt að gefa barni fallegri og veglegri gjöf en þessa nýju og glæsilegu útgáfu af Gosa í þýðingu Þorsteins Thorar- ensens. Gosi fæst líka á spólum Upþlestur Þorsteins Thorarensens á Gosa í útvarpinu síðastliðið haust hefur verið gef- inn út á fjórum kassettum, og Veröld býður þær nú til sölu með og án bókarinnar. Kassetturnar Bókin Gosi Athugið, aö við skiptum og kassetturnar greiöslunni i tvennt og Nr. 4130 Nr. 1679 sendum þértvo gíróseðla, Fullt verð: 2.400 kr. Fullt verð: 3.880 kr. sem greiða má með Okkar verð: 2.040 kr. Okkar verð: 3.100 kr. mánaðarmillibili. Fréttablað Veraldar Okkar á milli Útgefandi: Bókaklúbburinn Veröld., Ábm.: Kristín Björnsdóttir Ritstj.: Gylfi Gröndal Ljósmyndir: Magnús Hjörleifsson Prentverk: Steinmark 10

x

Okkar á milli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.