Okkar á milli - 01.03.1988, Síða 4
„Ég skrífaði Þjóð bjamarins mikla
að minnsta kosti f jómm sinnum
og suma kaflana mun oftar...“
JEAN M. ALJEL í HEIMSÓKN Á ÍSLANDI
Varð djúpt snortln af Gullfossi
Metsöluhöfundurinn Jean M. Auel kom í
heimsókn til íslands á vegum forlags síns,
Vöku-Helgafells, í septembermánuöi síð-
astliðnum. Hún kom hingað ásamt eigin-
manni sínum, hélt fyrirlestur og blaða-
mannafund og ferðaðist ofurlítið um landið.
Fyrirlestur um vinnubrögð
Fyrirlestur sinn hélt Jean í Norræna húsinu
í Reykjavík og fjallaði um vinnubrögð henn-
ar við skáldsagnagerð sina. Hún lýsti því á
eftirminnilegan hátt, hvað varð til þess að
hún hóf að fást við þetta óvenjulega sögu-
efni og hvernig hún hefur byggt skáldverk
sitt á þeim upplýsingum, sem fyrir liggja um
forfeður nútímamannsins. Á eftir svaraði
hún fyrirspurnum og áritaði bækur sínar
fyrir íslenska aðdáendur.
Hrifin af íslandi
Þegar Jean kom til íslands var hún að Ijúka
löngu ferðalagi um Evrópu, þar sem hún
hafði skoðað marga merka staði, sem hún
á ef til vill eftir að nota við umhverfislýsingar
í næstu bókum sínum. Bókaútgáfan Vaka-
Jean M. Auel i Almannagjá á Þlngvöllum. Hún heldur á bókunum tveimur, sem þýddar hafa verið á
íslensku, Þjóð bjarnarins mikia og Dal hestanna.
Fáein eintök til af
Þjóð b jamarins mikla
Fyrsta bindið í hinum mikla sagnabálki Jean M. Auel. Börn jarðare r
Þjóð bjarnarins mikla, sem Vaka-Helgafell gaf út fyrir jólin 1986.
Veröld valdi hana bók mánaöarins í marsmánuði í fyrra og átti hún
miklum vinsældum að fagna hjá félagsmönnum okkar. Síðan þá
hefur sagan verið endurprentuð tvisvar, en er nú enn að ganga til
þurrðar. Aðeins fáein eintök eru fáanleg af henni og við höfum
ákveðið að gefa nýjum félagsmönnum Veraldar, sem skipta þús-
undum, kost á að eignast hana og einnig þeim sem ekki tóku hana í
fyrra.
Nr.: 1691
Fullt verð: 1.890 kr.
Okkar verö: 1.525 kr.
4 • Góð bók er geraemi (Auglýsingaslagorð Menningarsjóðs)