Okkar á milli - 01.03.1988, Blaðsíða 7
50% afsláttur ef þú tekur einhverju öðru tilboði í blaðinu
Það er ódýrt að baka brauð — og skemmtilegt
Matbrauð afbestu gerð er ein af bókunum í
Sælkerasafni Vöku, en ritstjóri þess erSkúli
Hansen, matreiðslumeistari á Arnarhóli,
sem einnig er kunnur fyrir góða matreiðslu-
þætti á Stöð 2. Það er ódýrt að baka brauð
— og líka skemmtilegt, sérstaklega þegar
jafn glæsileg matreiðslubók er við höndina
og nú er í boði hjá Veröld: Matbrauö af
bestu gerð.
Alltaf vel þegið
Heimabakað brauð er gott og alltaf vel þeg-
ið. Og brauð er líka afar mikilvægt vegna
næringargildis síns. Það inniheldur aðal-
lega kolvetni í formi sterkju og sellulósa. Oft
er rætt um trefjaefni í brauði, en þau er
einkum að finna í grófari tegundunum. í
brauði er einnig hvíta, B-vítamín og járn.
Mest er af járni í grófu korni, en með járn-
bætingu hefur gildi hvíta hveitisins verið
aukiö.
Mikilvægur þáttur
Brauð er ódýrt og mettandi. Það getur
ásamt mjólk, osti og svolitlu grænmeti
myndað fullgilda máltíð. Satt er það, að
menn þrífast ekki á brauði einu saman, en
það mun alltaf verða stór og mikilvægur
þáttur í mataræði almennings.
Fyrir þá sem Fyrir þá sem
taka einhverju taka engu
ööru tilboði öðru tilboði
Nr.: 1692 1693
Verð: 199 kr. 398 kr.
Tveir fá WOK-pönnu í verðlaun
Mars-
getraunin
Marsgetraunin okkar er óvenjuleg að því
leyti, að nú fá tveir félagsmenn verðlaun,
það er að segja ef þeir hafa greitt kaup sín
fyrir 10. apríl. Verðlaunin eru tvær WOK-
pönnur frá vestur-þýska fyrirtækinu Gross-
ag. Þær henta mjög vel við kínverska mat-
argerð, sem verður sífellt vinsælli hér á
Vesturlöndum. Undir WOK-pönnunni er
hitaplata, en einnig er hægt að nota hana á
venjulegan hátt, t.d. við að steikja pönnu-
kökur. Spurningin er lauflétt eins og venju-
lega: Hvað heitir stúikan sem Dalur hest-
anna fjallar um? — Skrifaöu svarið á bls. 15
og sendu okkureðahringdu inn réttalausn.
Ekki aðeins bók heldur bókmenntir (Auglýsingaslagorð Ragnars i Smára) • 7