Okkar á milli - 01.03.1988, Blaðsíða 5
Helgafell, sem gefur út bækur hennar á
íslensku, bauð skáldkonunni í skoðunar-
ferð að Gullfossi, Geysi og á Þingvelli. Jean
varð djúpt snortin af Gullfossi og landslag-
inu umhverfis hann. Hún hafði orð á því, að
það líktist djúþum dal, sem hún lýsti í öðru
bindi sagnabálksins, Dal hestanna.
Aftur og aftur
Á blaöamannafundi, sem haldinn var dag-
inn fyrir skoðunarferðina, var Jean spurð
ýmissa spurninga varðandi bækur sínar.
Hún sagði m.a. frá því, að þegar hún hefði
lesið yfir í fyrsta skipti handrit sitt af Þjóð
bjarnarins mikla, hefði hún komist að raun
um að hún kynni alls ekki að skrifa. „Ég
svitnaði og mér fannst handritið alveg
hræðilegt,“ sagði hún. „Ég sagði barafrá,
en byggði frásögnina á engan hátt upp. Það
vantaði alla sviðsetningu hjá mér. Mig vant-
aði alla tækni við skriftirnar. Svo að ég dreif
mig á bókasafnið einu sinni enn og náði
mér í handbækur um það, hvernig skrifa
ætti skáldverk. Ég skrifaði Þjóð bjarnarins
mikla að minnsta kosti fjórum sinnum og
Vaka-Helgafell, sem gefur út bækur Jean M.
Auel hér á landi, bauð skáldkonunni i skoðunar-
ferð aó Gullfossi, Geysiog Þingvöllum. Hérsést
hún ásamt útgefanda sínum, Ólafi Ragnarssyni
— við Gullfoss, sem hún varð djúpt snortin af.
suma kaflana mun oftar. Mér finnst enn, að
ég hefði getað gert betur, en mér fer fram,
og þriðja bókin er best af þeim sem ég hef
skrifað hingað til.“
Mamma borgar
Vikan birti grein og viðtal við Jean M. Auel,
á meðan hún dvaldi hér á landi eftir Bryn-
dísi Kristjánsdóttur blaðakonu, og hefur
mjög verið stuðst við þann texta í þessari
kynningu. Grein Vikunnar lýkur með þess-
um orðum: „Bækurnar hafa því auðvitað
fært Jean drjúgar tekjur og nú búa þau
hjónin í stóru húsi niðri við sjó í Portland í
Oregonfylki í Bandaríkjunum þar sem Jean
hefur vinnustofu á efstu hæð með útsýni yfir
Kyrrahafið. Ray starfar nú sem umboðs-
maður eiginkonunnar og sér um fjármálin -
„og sér um að bægja gestum frá heimilinu
þegar ég er að vinna,“ segir Jean, og af
öllum samskiptum þeirra er auðséð að mikil
ástúð og umhyggja ríkir þeirra á milli.
Vænst, sagði Jean, að sér þætti um að geta
nú hringt til barnanna sinna fimm, sem öll
eru flutt að heiman og búa mjög langt frá
foreldrum sínum, og sagt þeim að taka
næstu flugvél og koma í heimsókn með alla
fjölskylduna — og að mamma borgi."
Viðbrögð við
Bömum jarðar
eftir Jean Auel
Ógleymanlegar persónur,
yndislegar og átakanlegar
• Sagan dáleiddi mig
Það er margt merkilegt við þessa bók.
Höfundurinn fléttar inn í spennandi
söguþráð fróðleik sem spannar öll
mannleg svið... Það er skemmst frá að
segja að fimm hundruð blaðsíðurnar
sleppa manni ekki fyrr en þær eru bún-
ar. Og þá fór undirrituð í bókaleiðangur
til að finna framhaldið á ensku. Og hvílík
lesning! Það var enginn tími til að skrifa
um fyrsta bindið í DV eins og ég hafði
lofað því sagan dáleiddi mig..
Rannveig G. Ágústsdóttir
DV, mars 1987
• Listræn hæfni
Lýsingarnar á fólkinu sem kemur við
sögu eru heillandi og skýrar.... Efnið
verður ekki endursagt í örstuttri um-
sögn. Ég verð að láta mér nægja að
benda sem flestum á að lesa þessa bók,
sem er ekki aðeins samin af vandvirkni
og listrænni hæfni, heldur einnig af
miklu viti og þekkingu. Þessar framandi
persónur af ætt hellisbjarnarins stíga
upp af síðunum og verða margar
ógleymanlegar, yndislegar og átakan-
legar...
Jóhanna Kristjónsdóttir
Morgunblaðið, des. 1986
• Dulúöug spenna
Þjóð bjarnarins mikla er ein besta bók
sem ég hef lesið lengi, einstaklega
áhrifamikil, dulúðug og spennandi. Það
er ótrúlegt hve vel höfundinum tekst að
gera heim forfeðra okkar fyrir 35 000
árum lifandi og raunverulegan. Sérstak-
lega fannst mér magnað að kynnast því
gegnum aðalpersónu verksins hver
staða kvenna var í þessu frumstæða
karlasamfélagi Neanderdalsmanna.
Þetta er stórkostleg skáldsaga...
ÓlöfKolbrún Harðardóttir,
Okkarámilli, mars 1987
Blindur er bóklaus maður (íslenskur málsháttur) • 5