Okkar á milli - 01.03.1988, Blaðsíða 6
Heppnir verðlaunahafar hjá Veröld
Demantshring? Ég trúi því ekki!
Pú hlýtur að vera að gabba mig!
Verölaunagetraunin okkar nýtur sívaxandi
vinsælda, enda glæsileg verölaun í boöi
fyrir þá sem hafa heppnina með sér. Það er
sannarlega þakklátt og skemmtilegt verk
aö tilkynna dyggum félagsmönnum að þeir
hafi hlotið verðlaun — eins og eftirfarandi
viðbrögð þeirra bera með sér.
Þegar pakkinn kom
„Æ, drottinn minn dýri! Hef ég nú verið að
panta eitthvað, sem ég man ekki einu sinni
lengur hvað er,“ hugsaði Elsa Óskarsdóttir
í Reykjavik, þegar Veraldarbíllinn stansaði
fyrir utan húsið hennar. En áhyggjur hennar
Kæru félagsmenn!
Það eru fáar bækur sem spurt hefur
verið jafn mikið um og mánaðarbók-
in Dalur hestanna, enda sátu les-
endur bókarinnar Þjóð bjarnarins
mikla á öndinni af spenningi eftir
framhaldinu þegar lestri lauk. En
það sem ér þó svo sérstakt við þess-
ar bækur um stúlkuna Aylu — en
þær verða sex talsins — er að hver
þeirra er sjálfstætt verk, þannig að
ekki er nauðsynlegt að hafa lesið
fyrstu bókina til að geta notið bókar-
innar Dalur hestanna.
Auktilboðin að þessu sinni hafa
flest verið valin með það fyrir augum
að félagsmenn geti fundið veglegar
og fallegar fermingargjafir. Sagan af
brauðinu dýra er alveg einstaklega
glæsileg bók sem allir munu hafa
gaman af að eiga og þeir sem þurfa
góða gjöf handa erlendum ættingja
eða vini ættu ekki að láta hana fara
framhjá sér.
Myndskreytt Biblía er afar vinsæl
fermingargjöf enda einstaklega til
hennar vandað. Fyrir þá sem vilja
upplýsa börn sín um biblíusögurnar,
þá er hér kjörið tækifæri því litríkar
myndir vekja ávallt áhuga hjá börn-
unum. Ritsafniö um þrælasölu og
þrælahald Dana höfðar mjög til okk-
ar (slendinga, en Torkild Hansen
hlaut bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir þetta verk. Ritsafnið
allt er boðið á það góðu verði að
enginn ætti að þurfa að missa af því.
Bókin Hestar og menn á eftir að
gleðja margan hestamanninn, því
þetta er ein veglegasta og fróðleg-
asta bókin sem gefin hefur verið út
fyrir hestamenn, enda seldist hún
mjög vel nú fyrir jólin. Bækurnar
íslandseldar, Stóra Fuglabókin,
Byggingarlistasagan, Skipabókin
og ritsafnið Uppkoma mannsins
eiga það allar sameiginlegt að vera í
senn fræðandi, glæsilegar og eigu-
legar þækur.
Með bestu kveðjum,
Ó v »Vj d O C. V
Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri
breyttust á svipstundu i ánægju, þegar
henni var afhentur stór pakki með þeim um-
mælum, að hún hefði unnið í verðlaun
brauðrist og vöfflujárn frá Grossag. Hún
varð yfir sig hrifin, og vöfflujárnið kom sér
sérstaklega vel, því að það gamla var orðið
ónýtt.
Orðlaus af undrun
Svipuð voru viðbrögð Þorbjargar Ágústs-
dótturá Sauðárkróki, en hún var ekki heima
þegarhringt vartil hennarfyrst. ,,Ég héltað
ég hefði gleymt að borga, þegarstrákurinn
minn sagði mér, að hringt hefði verið til mín
frá Veröld. Ég fór strax að leita að ógreidd-
um gíróseðli." En þegar henni vartjáð dag-
inn eftir, að hún hefði hlotið í verðlaun 14
karata hvítagullshring settan 5 demöntum
að andvirði 15.200 krónur — þá varð hún
orðlaus. Þegar hún hafði fengið hringinn
sendan í pósti, hringdi hún straxtil okkartil
að láta í Ijós ánægju sína og þakklæti.
„Hann er gullfallegur,“ sagði hún, „og það
er svo gaman að eignast eitthvað, sem
maður mundi aldrei kaupa sér sjálfur."
Ég trúi þessu ekki
Önnur verðlaunin í jólagetrauninni, sem
voru 14 karata gullhringur bæði úr hvíta og
rauðagulli settur einum stórum demanti að
andvirði 14.500 krónur, hlaut Guðrún
Gunnarsdóttir í Reykjavík. Viðbrögð henn-
ar voru þessi: „Demanthring? Ég trúi því
ekki! Þú hlýtur að vera að gabba mig!“
Fallegasti hringurinn
Og ekki var undrun Kristínar Steingríms-
dóttur á Húsavík minni, en hún hreppti
þriöju verðlaunin, sem voru 14 karata hvíta-
gullshringur settur þremur litlum demöntum
að andviröi 10.400 krónur. „Ég var einmitt
að skoða myndirnar af demantshringunum
í jólablaðinu ykkar ásamt vinkonu minni,"
sagði hún. „Við vorum sammála um, að
þessi hringur væri fallegastur—og nú er ég
búin að eignast hann!“
6 • Ég gimist ckki annað hertogadæmi en bækur mínar (Shakespeare)