Okkar á milli - 01.03.1988, Qupperneq 9
GLÆSILEG VIÐHAFNARUTGAFA
Sagan af Brauðinu dýra
eftir Halldór Laxness
Vaka-Helgafell minntist 85 ára afmælis
Halldórs Laxness 23. apríl í fyrra með út-
gáfu nýrrar bókar, sem ber heitið Sagan af
brauöinu dýra. Þetta er sérstök og óvenju
glæsileg viðhafnarútgáfa í stóru broti svip-
uðu því sem tíðkast hefur við útgáfu lista-
verkabóka. Bókin er öll litprentuð og skreytt
vatnslitamyndum eftir Snorra Svein Frið-
riksson.
Fornar dyggðir
Sagan af brauðinu dýra var fy rst birt I tveim-
ur köflum I Innansveitarkróniku eftir Halldór
Laxness árið 1970, en birtist I þessari af-
mælisútgáfu örlítið breytt frá hendi skálds-
ins sem sjálfstæð saga. Hún segir frá Guð-
rúnu Jónsdóttur, vinnukonu prestsins á
Mosfelli I Mosfellsdal, sem að sögn skálds-
ins „lifði og starfaði langa ævi I þessari
sveit án þess að hún tæki kaup fyrir verk sín
það menn vissu.“ Guðrún var send ,,að
sækja pottbrauð úr seyðslu I hverasandi
fyrir sunnan ána“, eins og segir I sögunni.
Hún missir áttanna I þoku og er I villu á
heiðum uppi fjarri mannabyggð I þrjá sólar-
hringa. En brauðið snerti hún ekki: „Maður
étur nú ekki það sem manni er trúað fyrir,
barnið gott,“ svaraði hún þegar hún var
spurð hverju það sætti. Guðrún aðhylltist
fornar dyggðir og setti þá meginreglu ofar
öðru að maður væri trúr sjálfum sér.
Meistaraleg frásögn
í kynningartexta á hlífðarkápu bókarinnar
segir meðal annars: „Sagan af villu vinnu-
) konunnar á Mosfellsheiði með brauð
prestsins í tréskjólu varpar Ijósi á hugsun-
) arhátt alþýðunnar sem byggði landið á fyrri
tíð. Sagan er meistaralega sögð og á brýnt
erindi við fólk á öllum tímum."
Fagurlega myndskreytt
Snorri Sveinn Friðriksson, listmálari og
leikmyndateiknari Ríkissjónvarpsins, hefur
myndskreytt Söguna af brauðinu dýra fag-
urlega. Vatnslitamyndir hans eru bjartarog
litríkar og lýsa einkar vel andblæ efnisins.
Þess má geta að flestar þeirra birtust fyrst
með lestri Halldórs Laxness á sögunni í
sjónvarpinu á jólum 1986.
Ensk útgáfa
Sagan af brauðinu dýra hefur nú einnig
verið gefin út í enskri útgáfu í frábærri þýð-
ingu Magnúsar Magnússonar. í þýðingu
hans ber sagan heitið The Bread of Life —
eða Brauð lífsins.
Veröld er það mikil ánægja að geta boðið
félagsmönnum sínum þessa fallegu bók,
sem hentar vel til gjafa og þarf að fylgja
verkum Nóbelsskáldsins á hverju heimili.
Meistaralega sögð
saga, sem á brýnt
eríndi við fólk
á öllum tímum
íslenska Enska
útgáfan útgáfan
Nr.: 1696 1697
Fullt verð: 1.960 kr. 1.960 kr.
Okkar verð: 1.660 kr. 1.660 kr.
Það eru engin jól án bóka (Auglýsingaslagorð bókaútgefenda) • 9