Okkar á milli - 01.03.1988, Qupperneq 13
BÓKAFLOKKURINN
ÍSLENSK ÖNDVEGISSKÁLD
Ljóðmæli Stefáns
frá Hvítadal
Nr.: 1706
Fullt verð: 2.290 kr.
Okkar verð: 1.845 kr.
Ljóðmæli Stefáns frá Hvítadal eru enn ein
bókin í hinum veglega bókaflokki (slensk
öndvegisskáld. Bókin er 376 blaðsíður að
stærð og hefur að geyma öll Ijóð Stefáns frá
Hvítadal ásamt ítarlegri og snjallri grein um
skáldið eftir Kristján Karlsson.
Vandaöur bókaflokkur
Veröld hefur áður boðið bækur úr þessum
vandaða bókaflokki og síðar munu fleiri
fylgja á eftir. Auk Ljóðmæla Stefáns frá
Hvítadal hafa eftirtaldar bækur komið út í
þessum flokki: Ljóð og laust mál eftir Hann-
es Hafstein, Ritsafn Jóns Sigurðssonar frá
Kaldaðarnesi, Ritsafn Jónasar Hallgríms-
sonar, Ljóðasafn I og II eftir Magnús Ás-
geirsson, Fundin Ijóð eftir Pál Ólafsson,
Ljóðmæli eftir Steingrím Thorsteinsson og
Sigurð Sigurðsson frá Arnarholti, Kvæða-
safn og greinareftirStein Steinarr, Eiðurinn
og Þyrnar eftir Þorstein Erlingsson og III-
gresi eftir Örn Arnarson.
Veiktist af berklum
Stefán Sigurðsson frá Hvítadal varfæddur í
Hólmavík viö Steingrímsfjörð 16. október
1887. Á öðru ári fór hann í fóstur til frænda
síns, Jóns Þórðarsonar, að Stóra-Fjarðar-
horni við Kollafjörð og ólst upp hjá honum
þar og síðar í Hvítadal í Saurbæ til sautján
ára aldurs. Stefán lagði stund á prentnám
um hríð, en varð að hætta því sökum veik-
inda. Hann hlaut fótarmein, sem leiddi til
þess að taka varð af honum hægri fót ofan
við ökkla, og gekk síðan við gervifót. Árið
1912 hélt hann til Noregs og dvaldist þar í
þrjú ár. Þar veiktist hann af lungnaberklum,
sem aldrei skildu með öllu við hann síðan.
Árið 1919 kvæntist Stefán Sigríði Jónsdótt-
ur frá Ballará á Skarðsströnd. Hann gerðist
bóndi og bjuggu þau hjón lengstum að
Bessatungu í Saurbæ og eignuðust tíu
börn. Þar andaðist Stefán 7. mars 1933.
Rómantísk ímynd skálds
Stefán frá Hvítadal sendi frá sérfjórar Ijóða-
bækur, og eru þær þessar: Söngvar föru-
mannsins 1918, Óður einyrkjans 1921,
Heilög kirkja 1924 og Helsingjar 1927.
Kristján Karlsson kemst svo að orði um
skáldið í grein sinni: „Ekki fer á milli mála,
að Stefán var samtíðarkynslóð sinni ungri
rómantísk ímynd skáldsins... Hann er nýr
persónuleiki meðal íslenskra skálda, ný
manngerð..."
Herbergi án bóka er eins og líkami án sálar (SirJohn Lublock) • 13