Vera - 01.06.1998, Qupperneq 3

Vera - 01.06.1998, Qupperneq 3
Gamli, góði keppnisandinn „Viö erum stödd á árinu 1998 en ekki 1908," segir í grein um launamun kynjanna hér í blaöinu )ar sem fjallað er um niðurstöður könnunar á launum félagsmanna í Verslunarmannafélagi Reykja- víkur sem gerð var í febrúar 1997. Þar kemur fram að konur höfðu 40% lægri laun en karlar - fengu 128.488 krónur á mánuði en karlar 180.353 krénur. Munurinn er 51.887 krénur og mun- ar um minna. Könnunin var gerð áður en kjarasamningar tókust á síðasta ári. í henni kemur einnig fram að aðeins 3,7% félagsmanna í fullu starfi fá greidd laun eftir VR taxta en þeir eru á bilinu 55.000 til 73.000 krónur á mánuði. Er ekki undarlegt að ár eftir ár skuli samið um launataxta sem eru svena langt frá raunveruleikanum? Hvaða atvinnurekendur skyldi Vinnuveitendasambandið vera að verja þegar það segist alls ekki geta samið um hærri laun? Flest bendir til að það sé helst hið epinbera sem greiðir laun samkvæmt töxtum. Fyrirtækjasamningar eru sem sé algengastir Dg þar gildir sú regla að launin séu trúnaðarmál. Könnun VR staðfestir að í slíkum samningum bera konur mun minna úr býtum en karlar eg um þá staöreynd má hafa uppi ýmsar skýringar. Skiptir þá engu að lög um jöfn laun karla Dg kvenna hafa verið í gildi í rúm 20 ár. í nýlegu VR blaði veltir talsmaður félagsins fyrir sér skýringum á þess- um mikla launamun og kemst að því með „viðurkenndum aðferðum" að 34,1% af muninum sé eðli- legur og megi skýra með kynferði,- kröfum um ábyrgð, þekkingu og færni í vinnu,- vinnutíma og starfsheiti. Liðurinn „kröfur um ábyrgð, þekkingu og færni í vinnu" er t.d. allur körlum í hag. (Þið vitið hvað konur eru ábyrgðarlausar í vinnunni og vita lítið hvað þær eru að gera). Það sem skipt- ir hins vegar sköpum hjá karlkyninu er „rétt viðhorf til vinnunnar" og það viðhorf byggist á gamla, góða keppnisandanum. Þeir hafa metnað fyrir hönd fyrirtækisins, vilja lesa sig til í frítímanum og eru fúsir til að vinna yfirvinnu. Konur eru hins vegar með hugann heima og flýta sér burt um leið og vinnu lýkur. Umhugsunarvert dæmi um þetta viðhorf kemur fram í viðtali við konu sem vann hjá þjónustufyrir- tæki á höfuðborgarsvæðinu. Þegar henni gekk ekkert að fá stöðuhækkun, eins og henni hafði ver- iö lofað og karlmennirnir i kringum hana voru að fá, var henni sagt að ástæðan væri sú að hún væri ekki nógu grimm í samskiptum við samstarfsfólk sitt og ekki tilbúin að vaða eld og brenni- stein fyrir fyrirtækið. Þannig starfskraftar eru nefnilega verðlaunaðir. 0g nú er „góðærið" að fara úr böndunum og viðvörunarbjöllur ríkisstjérnarinnar byrjaðar að ýla. Það verður að gera ráðstafanir til þess að klúðra þessu ekki einu sinni enn, t.d. með því að hætta við skattalækkunina sem lofað var í síðustu kjarasamningum og á að koma til framkvæmda um næstu áramót. En hverjir eru það sem ættu að hægja ferðina? Eru það ekki karlmennirnir með keppnisstýrða viðhorfið? Ættu þeir ekki að gera minna af því að vaða eld og brennistein fyrir fyr- irtækin og huga að því sem er að gerast í kringum þá, til dæmis heima hjá þeim? Og til þess að koma á örlítið meira réttlæti í þjóðfélaginu væri þá ekki ráð að bæta konum upp launamuninn? ÞaÖ mætti t.d. byrja á hjúkrunarfræðingum sem fá 118.000 krónur í byrjunarlaun og 154.000 til 190.000 krónur ef þær eru hjúkrunarforstjórar og bera ábyrgð á heilbrigðiskerfi okkar sem for- sætisráðherra segir í 17. júní ræðu að sé öðrum þjóðum til fyrirmyndar. 38 karlar í VR könnuninni fengu 800.000 krónur í laun á mánuði. Þeir fá 448.000 krónum meira en hjúkrunarforstjórinn og er munurinn 3.718.000 krónur eftir árið. Er það ekki verð á sæmilegum jeppa? Ein af ástæðum þess að rauð aðvörunarljós blikka i stjórnborði þjóðarskútunnar er einmitt sú að bilainnflutningur hefur aukist um 30% fyrstu mánuði ársins og þar meö viðskiptahallinn við útlönd. Já, það fylgir því ábyrgð að æsa keppnisskapið upp í strákunum. Hverjir hafa lagt sitt á vogarskálar jafnréttis? Hverjir hafa unnið jafnréttis- baráttunni gagn og hverjir ógagn? Sendu VERU ábendingar. plús Þáttaröðin Afrekskonur í íþróttum sem sýnd hefur veriö í ríkissjónvarpinu. Konur sem standa sig vel í íþróttum eru mikilvægar fyrirmyndir ungra stúlkna sem margar vita ekki hvaöa stefnu þær eiga aö taka i lífinu. Verkefniö var styrkt af íþrótta- og Ólympíusambandi íslands, menntamálaráöuneytinu og Jafnréttisnefnd Reykjavíkur- borgar. Fjölgun kvenna í sveitarstjórnum en í kosningunum í vor fjölgaði þeim um 3%, úr 25 í 28% sveitarstjórnafulltrúa. Þetta er aö sönnu skref í áttina, þótt lít- iö sé. Sama fjölgun átti sér staö í kosningunum 1994. Ef skrefin veröa ekki stærri næstu ár veröur fullu jafnrétti ekki náö fyrr en áriö 2025! Meðferð fyrir karla sem beita ofbeldi sem karlanefnd Jafnréttisráös kom á fót og Rauöi krossinn sér um. Um 20 karlar hafa haft samband og farið i einstak- lingsviötal viö sálfræöinga. Fyrsta námskeiðiö hófst í lok júní og í haust veröa haldin fleiri námskeiö. Viötalspantanir og upplýsingar eru í síma 570 4000. Sýknudómur vegna nauðgunar sem Hæstiréttur kvaö upp en Héraðsdómur haföi dæmt sem nauögun. Maður beitti sambýliskonu sína haröræöi og veitti henni líkamsmeiösl eftir rifrildi, aö þvi loknu hafði hann samfarir viö hana sem konan taldi nauögun. Sýknudómur- inn byggir m.a. á skorti á sönnunum og aö pariö hafi tekið upp sambúö aftur, auk þess sem konan hafi ekki borið neina áverka eftir samfarirnar. Þessi dómur er hættulegt fordæmi fyrir ofbeldisfulla karlmenn í sambúö og hjónabandi. Viðsemjendur hjúkrunarfræðinga fyrir seinagang f samningaviöræöum sem leitt hefur til þess aö 60% hjúkrunarfræðinga á stóru sjúkrahúsunum í Reykja- vík hafa sagt upp störfum. Stofnanasamningum átti aö Ijúka um sföustu áramót og því ekki skrýtið að þessa stétt hafi brostið langlundargeöið þegar mánuöirnir liöa viö óviöun- andi kjör. v ra 3

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.