Vera - 01.06.1998, Side 24

Vera - 01.06.1998, Side 24
 Jii ^ r. jí i m réttlæti m- Carlota Duarte kom með tvær Ijósmyndasýning- ar á listahátíð - myndir indíánanna frá Chiapas og eigin myndir af Odellu. Carlota Duarte til- heyrir alþjódlegu systrareglunni Sacred Hearts sem starfar eftir kjörordinu menntun er réttlæti. Regl- an er upprunnin í Frakk- landi og starfar í löndum um allan heim. Menntun kvenna er eitt meginmarkmid reglunnar og starfa systurnar vítt og breitt um sam- félagid vid kennslu af ýmsu tagi. Þegar Carlota kynntist Odellu kenndi hún fátæku fólki í Boston handverk og segir ad kynni beirra hafi audgad líf sitt. Vinna hennar med Maya indíánunum í Ijós- myndasafninu í Chiapas er einnig í anda Sacred Hearts bví hún midar ad því ad fá frumbyggjum í hendur tæki til ad auka vídsýni þeirra og menntun. Carlota lítur á þad sem forréttindi ad hafa feng- id ad kynnast indíánunum og menningu þeirra. Það var af innri þörf sem Carlota hélt á svæði Maya indíána í Mexíkó því hún var að leita að sínum eigin rótum. Faðir hennar var frá Yucatan héraðinu norðan við Chiapas en Car- lota ólst upp í Bandaríkjunum. 24 ára að aldri gerðist hún meðlimur Sacred Hearts og stund- aði listnám með styrk frá þeim. „Það var árið 1992 sem ég hóf að vinna með Maya indíánakonum en þær starfrækja félag í San Cristóbal de Las Casas sem er höfuðborg Chiapas fylkis,” segir Carlota. “Félagið heitir Sbeik Jchanvunetik, sem þýðir Leiðir til menntunar, og stendur fyrir lestrarkennslu, barnagæslu, leigu á húsnæði, matartilbúningi, lögfræðiráðgjöf, rekstri bókasafns og útvegun námsstyrkja. Starfið miðast einkum við konur sem lifa á því að selja handverk og hafa verið reknar úr samfélögum ættflokka sinna. Ég byrjaði á því að halda ljósmyndanámskeið og setja upp sýningu með þeim en síðan hefur verkefnið vaxið og þróast. Árið 1995 var mér boðin staða við Ciesas, mannfræðistofnun í Mexíkóborg, og yrði starfið fólgið í því að koma á fót Ijósmyndasafni í San Crisóbal og 24 víra þjálfa frumbyggja í Ijósmyndun í því skyni að varðveita heimildir um menningu þeirra og siði og kynna hana fyrir öðrum. Þetta starf hefur verið einstaklega skemmtilegt en í safn- inu varðveitum við ekki bara Ijósmyndir held- ur einnig ýmsar ritaðar heimildir um líf Maya indíána. Til þess að standa undir rekstrinum fáum við fé úr sjóði sem ég stofnaði í Banda- ríkjunum og vinir mínir og samstarfskonur leggja fé í. Þannig safnast nokkur þúsund dollarar á ári og við getum veitt fjölda fólks aðgang að vinnu þar sem það fær tækifæri og rými til að vinna með fólki úr öðrum ætt- flokkum og kynnast menningu þeirra. Á safn- inu veitum við einnig ýmsa aðra aðstoð, ég hef t.d. hjálpað konum að kaupa sér gleraugu og strigaskó til að geta stundað leikfimi,” seg- ir Carlota brosandi. „Ég er að byggja brú á milli menningarheima frekar en að vinna sem trúuð manneskja. Trúin er fyrir mig persónu- lega en þegar maður leggur réttlætinu lið er maður vissulega að vinna trúarstarf. Trúar- starf byggir ekki bara á kennisetningum.” Carlota segir að stundum geti hún lítið ann- að gert en að hlusta á konurnar, gefið þeim sitt álit og boðið þeim hjálp. „Staða kvenna í landinu hryggir mig mjög,” segir hún, “og að- stæður þeirra eru oft erfiðar. í Mexíkó eru það óskrifuð lög að karlmenn hafi meiri rétt heldur en konur og vald eiginmannsins er mjög mikið. Ég get hins vegar sett reglur á mínum vinnustað og geri það. Á safninu vinna þrír karlmenn og fjórar konur og þegar tveir þeirra virtu ekki mætingarreglur benti ég þeim á að hjá okkur væru allir jafnir, karl- menn nytu engra forréttinda umfram konur. Þeir urðu mjög hissa því þeir höfðu aldrei heyrt talað svona áður og þótti sjálfsagt að njóta forréttinda.” Reka eigin skóla og berjast fyrir prestvígslu kvenna Um 5000 meðlimir eru í Sacred Hearts og eru nýjustu deildirnar í Moskvu og Indónesíu. I upphafi voru meðlimirnir vel menntaðar kon- ur úr efri stéttum en nú koma þær úr öllum stéttum og vinna meðal fátækra. „Við afhend-

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.