Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Qupperneq 3

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Qupperneq 3
Lj ósmæður Grein þessi er lauslega þýdd úr ljósinæíSrablaðinu danska. Var hún fyrst prentuð í „Aarhus Stiftstidende" um það leyti sem ljósmæðurnar dönsku voru að halda aðal fjelagsfund sinn. Leist okkur greinin að mörgu góð, og eiga skilið að komast á íslenska tungu. ( pessa dagana stendur þing ljósmæðranna yfir, og eins og vant er hjá ljósmæðrum, er þar fjör á ferðum. Veisl- ur eru haldnar, fánar veifa, og hver ræðan rekur aðra. par vantar ekkert af því, sem gerir flesta slíka fundi svo þrautleiðinlega, og liggur eins og farg á hugsjónum og framkvæmdum, og stingur þær svefnþorni. pó eiga ljósmæður skilið, flestum fremur, að eignast glaða stund. Alt of lengi hafa þær verið skotspónn háð- fugla, og ekki ósjaldan hafa flimtleika-höfundar spreytt sig á því, að gera þær og starf þeirra að athlægi frammi fyrir almenningi, og liefir máske þannig komist inn í fólkið, að engin veisluprýði væri að návist þeirra. ]?egar sveita- eða bæjarstjórnum hafa borist t. d. óskir um nauðsynlega aðgerð á bústað ljósmóðurinnar, eða um sima handa henni eða þess liáttar, þá lvftist brúnin á „ráðs- herrunum“. Jón oddviti, sem annars er mesti alvörumaður, breyt- ist skyndilega og verður allur að einu kesknisfullu háðs- hrosi er hann tekur að ræða málefni ljósmæðranna. Hálf- kveðnar vísur og tvíræð orð fljúga um borð, og bældur lilátur ískrar í gráskeggjuðum hreppsnefndarmönnum. Hvað veldur þessu? Hvað er hlægilegt ? Jeg veit ekki.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.