Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Síða 6
40
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ríkra og fátækra. Mannf jelagið á henni mikið að launa og
þakka. — pví þá ekki að meta það? —
J. F.
Notkun pituitrins og óliófleg
notkun þess.
Eftir próféssor Hauch.
Ásamt Leoj). Meyer hefi jeg orðið til að innleiða pituitrin
iijer á landi (þ. e. í Danmörku) og manna fyrstur ráð-
lagt notkun þess. Tel jeg mig því ekki að eins hafa full-
an rjett til, Jieldur beri mjer skylda til, að vara við mis-
notkun þess.
Með pituitrin á jeg við öll hin mismunandi efni, sem
unnin eru úr heiladinglinum (hypophysis eða Glaudula
pituitaria) piluglandol, pituitrin, pituilobine o. s. frv., og
liafa nokkur þeirra verið notuð öðru hvoru hjer á fæð-
ingarstofnuninni
pað, sem fyrst þurfti að sýna' og sanna viðvíkjandi
pituitrin var, að það verkaði í raun og veru sem hríðvaki,
eða ef til vill öllu fremur hríðaukandi. Menn voru efa-
blandnir i þessu efni, og varð það óvæntur fögnuður að
sjá, að það verkaði í 80—90 skifti af 100. Menn notuðu
það í hrifningu, þótt ástæður væru stundum mjög litlar,
og gættu ekki sem skyldi, mótástæðna. En þegar menn
fóru að sjá óþægindi, hættur og jafn vel dauðsföll slaf-
andi af notkun þess, sneru þeir við hlaðinu og gerðust
sumir því mjög andvigir, svo sem Rucker og Haskell
(Richmond, U. S. A.), og Cotret (Montreal); de Lee skoð-
ar pituilrin sem glæpsamlegt efni, sje það notað áður en
barnið fæðist, og Winn sgir, að fáfræðin sje eina afsök-
unin fyrir notkun þess. Haskell (Virginia) segist helst
Iiefði kosið, mannkynsins vegna, að pituitrin hefði aldrei
þekst. En allir þessir menn eru Ameríkanar, og þar er