Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 8
42
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
læknar nota það eingöngu í því augnamiði, að liraða fæð-
ingunni, án þess að rannsaka, hvað örðugleikunum
veldur.
Telja mælti mörg fleir eftirtektarverð og aðvarandi
ummæli, þar sem einnig er litið á hagnaðinn; en jeg ætla
að láta lijer nægja að geta einnar greinar, sem út hefir
komið á þessu ári (1927), eftir Essen-Möller: „Bruk och
Misbruk av Pituitrin“, og varar hann þar eindregið við
misnotkun lyfsins. Grein þessa sá jeg ekki fyr en jeg
Jiafði gefið þessari ritgerð minni nafn.
Aðdánn sú, sem sjúkraliúslæknar fyrst fengu á pituitrin-
inu hefir seinna breiðst út til annara lækna, en þegar við
sjáum á fæðingarstofnunum liættur þær, sem af þvi geta
stafað, er okkur skylt að aðvara þá, sem fetað liafa i fót-
spor okkar og ef til vill fremur aukið skriðinn í stað þess
að liamla á móti.
(Framh.).
Heilræði
til kvenna á ýmsum aldri.
Frægur kvenlæknir þýskur hefir fyrir ekki alls löngu skrifað
ailstóra bók, sem hann kallar líffræði kvenna og helstu kvill-
ar. úr þeirri hók hcfir norska ljósmæðrablaðið nokkur undan-
farin ár tekið ýms heilræði, og flutt þær greinar af og til, stytt-
ar og færðar í alþýðlegra búning. — Þetta hafa þau tekið eft-
ir, sænska og danska ljósm.bl., og má af því marka, að ritstjór-
um þessara blaða hafa þótt heilræðin góð og vel til þess fall-
in að birtast i blaði, sem aðallega er ætluð ljósmæðrum, en þó
svo ritað, að aðrar konur gæti þar fræðst um ýmislegt, sem
öllu kvenfólki er gott að vita en ekki finst alment í bókum.
Ljósmæðrablaðið mun nú flytja af og til eitthvað af heil-
ræðum þessum.
Háleitasta köllun konunnar er sú, að verða móðir. pess
vegna ætti að stefna að því þegar frá barnæsku, að þroska
sem best líkama allra stúlkubarna, svo að hann sje sem