Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Side 8

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Side 8
30 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ ara kvenna fiiist niér ekki hægt í landi eins og Danmörku.“ — Hún fékk loforð um góða hækkun og þetta yrði yfirleitt tekið til meðferðar og umbóta. Næst var talað um mæðrahjálp og eftirlit með vanfær- um konum og unghörnum. Meðal annara, sem töluðu þar, var próf. E. Hauch. Fórust honum orð á þessa leið: „Mér þyldr mjög mikils um vert að lieyra, að það skuli vera mæðraverndin, sem á að tala um, vegna þess að eg hefi í fjölda mörg ár starfað við þá stofnun í Kaupmannahöfn, og þegar félagsmálaráðherra segir, að það sé byrjunin 193G, þá er það ekki alveg rétt, því að mæðraverndarstofn- unin liefir starfað í meira en 30 ár í Kbh. Hún er bygð á þeirri vinnu sem unnin hefir verið af einstaklingum, þó að það nú færist yfir á stærra svið. Eitt er það, sem mig sérstaklega langar til að taka fram, og sem við líka höfum sameinað mæðraverndinni síðan 1936. Það er eftirlit með barnshafandi konum, annars eðl- is en það áður var. Því var þannig háttað, að við stóðum ráðalaus gagnvart konum, sem komu lil okkar og sögðu, að ástæður sínar væru óbærilegar, fátækt og allskonar vandræði. Þær gætu ekki séð fvrir fleiri hörnum. Eða þá að það var ungfrú, sem ekki gat stöðu sinnar vegna bundið sig við ])að að verða móðir. Þessar konur sækja á læknana og leila ljósmæðranna lil þess að fá fóstrinu eytt. Það leyfa lögin ekki, svo að það getum við ekki gert. A þessari reynslu bygðist ráðlegging sú, sem hyrjað var á 1936, að hafa lög- fræðilegar upplýsingar fyrir illa staddar mæður og segja þeim þar, á hvern hátt þær geti fengið eða vænst stuðnings frá þjóðfélaginu, og svo læknisfræðilegar upplýsingar um þá lilið málsins. Þessi viðtalstími er liafður að kvöldi til, svo að sem flestar geti sótt hann annríkis vegna. Þangað geta svo læknar, ljósmæður og kvenféliig vísað þeim, sem i vandræðin rata. Hugmyndin er ágæt og hefir reynst vel, en það er langt frá því að þangað komi allar, sem á það hefir verið hent. Þriðjungur þeirra, sem þangað hafa kom-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.