Ljósmæðrablaðið - 01.07.1948, Síða 3
Ljósmæðrablaðið IV. 1948.
Aðalfundur 1948.
Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands var haldinn í
Reykjavík þ. 22. júní 1948..
18 ljósmæður sátu fundinn.
Formaður setti fundinn, bauð fundarkonur velkomnar
°g minntist látinnar ljósmóður, Önnu Þorgeirsdóttur frá
Gerðum í Garði. Vottuðu fundarkonur henni virðingu sína
ftieð því að rísa úr sætum.
Þá las ritari fundargerð síðasta aðalfundar, og var hún
samþykkt athugasemdalaust.
Næst skýrði gjaldkeri frá fjárhag félagsins og sjúkra-
sjóði og las upp endurskoðaða reikninga félagsins og
sjóðsins, og voru þeir samþykktir með öllum atkvæðum.
Form. gerði þá grein fyrir störfum stjórnarinnar á
arinu, þar á meðal því, að stjórnin hefði, eftir ósk síð-
asta aðalfundar, talað við landlækni um hina knýjandi
þörf þess, að nýja fæðingardeildin tæki sem allra fyrst
til starfa. Eins og allir vita, situr þar enn við sama, en
Vonir munu standa til, að þar rætist úr á þessu ári.
Greiðslum úr lífeyrissjóði ljósmæðra kvað form. enn
hagað á sama hátt og áður, en í ráði væri að endurskoða
ýmislegt í tryggingarlöggjöfinni í sumar eða haust. Kæmi
þá til athugunar, hvernig sjóðurinn yrði sameinaður trygg-
mgunum, en forráðamenn Tryggingastofnunar ríkisins
hefðu lofað því, að stjórn Ljósmæðrafélagsins fengi að
fylgjast vel með öllu þar að lútandi. Um gjaldskrá ljós-
mæðra væri sama að segja, hún væri enn ósamin og myndi
Ijósmæðrum bezt að bíða rólegar átekta í því efni.