Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Blaðsíða 4
14 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ greind til að geta bjargað sér, hvað þessi mál snertir, og verður því það opinbera að hlaupa undir bagga. Það verður að leitast við að skapa einstaklingnum eða fjölskyldunni heilbrigt umhverfi, þar sem reynt verði að koma á aftur, meðal annars, hinu persónu- lega viðhorfi, að meira eða minna leyti. Þetta er að- eins hægt að gera með því að skipuleggja bæinn í hverfum, hvert fyrir 5—10 þús. manns. I hverju hverfi verði komið upp- miðstöð þar sem fólk á kost á andlegri og líkamlegri næringu, þar sem það getur sótt skemmtanir og samkomur, læknis- hjálp og lyf, þar sem heilsuverndarstarfsemi fer fram á viðtækum grundvelli o. s. frv. Ef hæfilega margir almennir læknar, heimilislæknar, væru í hverju hverfi, þá myndi fólkið þar smám saman velja þá fyrir sína lækna og leita til þeirra. Þeir myndu verða sjálfsagðir ráðunautar í öllum sjúkdómstilfellum. Þeir myndu ráðleggja fólkinu að leita sérfræðings eða fara á sjúkrahús, eftir atvikum, og stæðu í sam- bandi við heilsuverndarstöðina, og ef til vill væri lækningastofan einmitt þar. Þannig vissi heimilis- læknirinn um allt viðvíkjandi heilbrigði sjúklinga sinna. Því miður horfa málin allt öðru vísi við í dag, það er erfitt fyrir fólk að hafa samband við sjúkrasam- lagslækninn, vegna fjarlægðarinnar, og sérfræðing- ana heimsækir fólk á víxl, eftir geðþótta, án þess að heimilislæknirinn ráði neinu þar um, eða hafi neitt um það að segja. Þetta litla sýnishorn heilbrigðismála Reykjavíkur sýnir, svart á hvítu, hve mörgu er ábótavant, hve skipulags- leysið er mikið. Sums staðar vantar starfskrafta og stofnanir, annars staðar eru ágætir og nægir starfskraftar fyrir hendi, eins og á sér stað um almennu læknana og sérfræðingana, en

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.