Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Blaðsíða 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
53
kvöldin. Blóðþrýstingur lækkar jafnt og þétt niður í 115/
70. Blóðrannsókn við burtför: 85%, eggjahvíta í þvagi:
0,6%.
Við burtför af deildinni vóg barnið 2250 g og virtist
dafna vel. Var því gefin brjóstamjólk frá fóstru. Á 16.
degi var móðir og barn burtskráð af deildinni og send
til amtsjúkrahússins í Gentofte.
Eftir því sem Greenhill og Lee skýra frá, samkvæmt
skýrslum frá Greulic, sem athugaði skýrslur um fæðing-
ar yfir 1210001876 konur í 21 landi, kemur ein tvíbura-
fæðing á hverjar 85,2 fæðingar. Af hverjum 7628,7 fæð-
ingum er ein þríburafæðing og af hverjum 670734 fæð-
ingum ein f jórburafæðing, en ein fimmburafæðing af hverj-
um 41.600.000 fæðingum. Boudouin getur um sexbura og
Barfurth um sjöbura. Á 38 dögum höfum við fengið tvenna
samvaxna tvíbura. — Innlagningarnúmer kvennanna var
634 og 890. Þetta er sérstök og óvænt tilviljun, og um
hvoruga var vitað fyrir.
I mánaðarritinu ,,Radiology“, 54. bindi, jan.—júní 1950,
skýrir Charles M. Gray frá því, að hann hafi aðeins rek-
izt á eitt tilfelli, þar sem tekizt hafði að greina sam-
vaxna tvíburt á Röntgenmynd fyrir fæðingu, og hafði
hann þó farið vandlega yfir þær skýrslur, sem hann gat
náð til. Þetta var 25 ára gömul kona. Tíðir hafði hún
haft 4. jan. 1948. Eitt barn átti hún áður. Var það fætt
1943. Sú fæðing var eðlileg og stóð aðeins 4 klst. Barnið
vóg 3500 g.
Síðari meðgöngutíminn var og eðlilegur, þar til í júni-
mánuði, að óeðlilega mikið vatn fór að safnast í legið.
Þ. 31. maí stóð legbotn 22 cm yfir lífbeini, en 12. júií
stóð hann 33 cm fyrir ofan lífbeinið. 21. júní vottaði
fyrir bjúg á fótum og 12. júlí var hann orðinn útbreidd-
ur og farið að bera á greinilegum örðugleikum við andar-
drátt, vegna hins mikla þrýstings í kviðarholinu. And-
þrengslin jukust jafnt og þétt fram að fæðingu.