Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Blaðsíða 8
54
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Vegna hins mikla legvatns höfðu læknarnir grun um
vanskapnað og létu taka Röntgenmynd af konunni þ.
12. júlí. Tókst þá í fyrsta skipti að greina samvaxna tví-
bura í móðurkviði (thoracophagus, þ. e. tvíburar sam-
vaxnir á brjósti). Vegna þess, hversu sjaldgæft þetta er,
var konan mynduð á ný þ. 19. júlí. Þótti þá enginn vafi
á um sjúkdómsgreininguna.
Nokkrum dögum síðar var gerður keisaraskurður á kon-
unni. Bæði fóstrin dóu, annað eftir 10 mínútur, hitt eftir
20 mínútur.
Greinarhöfundur segir um Röntgenmyndirnar: Það er
augljóst, að hér er um óvanalegt fyrirbæri að ræða. Á
myndinni sjást greinilega tvö fóstur og höfuð beggja
liggja uppi í legbotni og bæði jafn hátt, en það er óvana-
legt, þegar um eðlilega tvíbura er að ræða. Þar að auki
voru höfuð þeirra sveigð aftur meir en venjulegt er, en
það sem mesta athygli vakti var þó það, að fjarlægðin
milli neðstu hálsliða og efstu brjóstliða var allt of lítill
til þess, að eðlilegur brjóstkassi tveggja fóstra gæti rúm-
azt þar. Seinni Röntgenmyndin var tekin í þeim tilgangi,
að sjá, hvort innbyrðis afstaða fóstranna hefði tekið nokk-
urri breytingu frá því að fyrri myndin var tekin. Reynt
var líka að breyta stöðu fóstranna utan frá. Það tókst
ekki, og þótti því öruggt, að sjúkdómsgreiningin væri rétt.
1 „Zentralblatt fiir Gynaekologie", 1950, 8. tbl., segir
dr. med. F. Becker frá öðru tilfelli. Ekki tókst að greina
það á Röntgenmynd. Þar var um að ræða 36 ára gamla
konu, sem gekk með þriðja barn sitt. Fyrri fæðingarnar
voru eðlilegar. Framan af meðgöngutímanum hafði hún
kastað upp, orðið vör við kippi í handleggjum. Hún kvart-
aði um mæði og hafði bjúg á fótum. Heimilislæknir henn-
ar sendi hana inn á deildina 14. júní 1949. Reyndist hún
þá vera blóðlítil, hafði skemmdir í hjartavöðva og lélega
blóðrás, sem lýsti sér í hörundsbláma, stækkun á lifur
og miklum bjúg á fótum. Ekki fannst eggjahvíta né syk-