Ljósmæðrablaðið - 01.09.1953, Síða 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
57
stúlkubörn. Þær voru vaxnar saman á brjósti og kviði.
Að öðru leyti virtust þær rétt skapaðar.
1 þeim tilfellum, sem hér hefur verið sagt frá, hafa
þrjár mismunandi aðferðir verið notaðar við fæðinguna.
f einu tilfelli, þar sem höfuðið var fætt, var fóstrinu
þrýst út. f öðru tilfelli var gerður framdráttur, en hjá
hinum þremur var höfuðið tekið með töngum og útlimir
leiddir niður og gerð sundurlimun, vending og fram-
dráttur.
Því miður hefur ekki tekizt að ná í lýsingu á öðrum
afbrigðum samvaxinna tvíbura en þeim, sem hér er lýst,
enda er hvað algengast, að slíkir tvíburar séu vaxnir
saman að framan. Sem betur fer eru slíkir vanskapningar
þó sjaldgæfir.
(Úr Tidskrift for Jordemodre 1953).
Sambandsþing norrænna ljósmæðra, var að þessu sinni
haldið í Östersund í Svíþjóð, dagana 16.—20. júlí. Sænska
ljósmæðrasambandið hélt þar aðalfund sinn, um sama
leyti. Voru þar saman komnar 175 ljósmæður frá Svíþjóð,
10 danskar og 10 finnskar.
Það þótti tíðindum sæta, að frá Noregi kom engin ljós-
móðir. Og engin ársskýrsla eða kveðja þaðan. ísland og
Færeyjar sendu kveðjur, en engan fulltrúa, og þótti það
skiljanlegt, vegna fjarlægðar. Frá báðum stöðum voru
fulltrúar mættir í Kaupmannahöfn á síðast liðnu ári. —
Næsti fundur er ákveðinn í Finnlandi sumarið 1954.