Freyr - 01.04.1904, Blaðsíða 5
FRE YR.
29
Flutt 296,70
3. Galvauíaeraðir girðingastólpar, einn
á hverjum 10 f. 90 au. hver . . 51,30
4. Horastólpar 4 og máttarstólpar 8
á 3,50 kr. hver...............42,00
5. Umbúningur í tvö hlið, 25 kr. í
hvert......................50,00
Samtals kr. 440,00
Af þessu fé þarf bóndinn á opinberu eign-
inni að leggja fram úr eigin vasa 92,00 kr.,
348,00 kr. lánar landssjóður. Bóndinn á
bændaeigninni þarf sjálfur að leggja til 179,00
kr. og fær að láni úr landssjóði 261,00 kr.
Auk beina girðingakostnaðarins, sem að
ofan er nefndur, verður bóndinn að flytja að
sér girðingarefnið á sinn kostnað frá næsta
verzlunarstað, og lætur nærri að það sé í of-
annefndu dæmi 20 hestburðir. Þar að auki
á hann að setja upp girðinguna á sinn
kostnað.
Til frekari skýringar á kostkaðaráætlun-
inni víl eg geta þess, að 1. og 2. tölul. eru
eins og þingið hugsaði sér þá. Girðingastólp-
arnir (3 tl.) erum að eins nefndir í lögunum
en eg heíi ekki getað séð, hvernig þingið
hugsaði sér þá. Eg hugsa mér þá T mynd-
aða (þverskurðu'r), þvi að á þann hátt samein-
ast hezt mikill styrkleikur við lítið efnismagn.
Stólparnir ætlast, eg til að gangi svo sem 18''
í jörðu, og standa þeir þá vel fastir, ef jörðin
er ekki því lausari. Vírinn er festur við þá
á ýmsan hátt, eftir því hvaða tegund af stólp-
um er notuð. Einn girðingastólpa á hverjum
10 f. hygg eg það minsta, sem komist verður
af með. Máttarstólpana (4 tl.) með tilheyrandi
styttum hugsa eg mér úr járni. Þeir þurfa
að vera svo langir að þeir nái niður fyrir
klaka, eða þá klappað í stóra steina, sem grafn-
ir eru vel niður. A þessum stólpum á að
strengja vírinn og ættu þeir því helzt að Vera
útbúnir með strengingaáhöldum, en þá verða
þeir miklu dýrari. Þar, sem menn hafa góð-
an rekavið má nota hann í máttarstólpana,
norskur viður er aftur ónýtur til þess. Eg hefi
hugsað mér einn máttarstólpa á 60 f., betra'
væri þó að ekki væri meira en 50 f. millum
þeirra. Kostnaðurinn við 5 tl. er áætlaður
af timbursmið hér í bænum, sem kunnugur er
í sveit. Hann áætlaði 4 al. breið hlið, sem
þó eru að minni hyggju of mjó; aftur má víða
komast af með eitt aðal hlið, en þá þarf eitt
eða fleiri aukhlið.
jtiins og áætlunin sýnir, kostar hver faðm-
ur af girðingarefniuu í girðingar samkvæmt
gaddavirslögunum 64 aura að meðaltali. Girð-
ingarnar verða því alldýrar uppkomnar, og
miklu dýrari en þær þurfa að vera á móts við
gæðin. Uetta liggur meðal annars í því, að
engin þörf er á að hafa. nema 4 . strengi af
gaddavír i girðingarnar. Sé vírinn fjóryddur
og stutt á millum oddanna, er engin liætta á
að sauðfé smjúi millum strengjauna, þótt 8—9"
'séu á millurn þeirra, og á 35" háa vírgirðingu
stekkur búpeningur ekki ótiineyddur. 4>ar,.
sem lautir og lægðir eru, þarf að leggja steina
eða hnausa undir neðsta strengiun, en það er
lítið og fljótlegt verk og þarf að gjörast hvort
sefn strengirnir eru 4 eða 5. Það, sem mest
veldur dýrleika þessara girðinga, eruþó sivölu
teinarnir, sem þingið ætlast til að hafðir séu
svo þétt að 1 sé á hverjum 8 álnum. Þessir
girðingateinar gjöra að minni hyggju lítið
gagn, en auka mjög girðingakostnaðinn. Mig
furðar því stórlega á, að þeir [skyldu komast
mótmælalítið gegnum þiugið, sérstaklega at
því að svo margt er við þá að athuga. Allir,
hvort sem þeir þekkja nokkuð til gaddavírs-
girðinga eða ekki, hljóta að vita, að sívalir
teinar eru mörgum sinnum veikari en T mynd-
aðir teinar jafnlangir og með sama efnismagni.
£>ar, sem nú járnið er dýrt, á 14—16 au. pd.,
er þetta eitt nóg til sýna að sívölu teinarnir
eru óhagkvæmir. Girðingateinar, með þeirrí
lengd og gildleika, sem þingið gjörir ráð fyrir,
eru auk þess svo veikir að þeir bogna fyrir
viudi hvað þá fýrir meiri áreynzlu, eins og
sést glöggt á girðingu, sem sett var upp
skamt hér frá Reykjavik í sumar sem leið, og
nú er öll meira og minna gengin úr lagi.
Alstaðar þar sem eg hefi séð girðinga-
teina notaða, er þeim stungið millum þáttanna
í vírstrengjunum, en af því ieiðir í fyrsta lagi,
að ekki er hægt að strengja vírinn nægjanlega,
því sé það gjört brestur annar þátturinn þar,
sem þeir liggja utan um teininn, af því að á-
reynzlan verður misjöfn. Svo þegar hitnar í