Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 08.12.1928, Síða 3
Hagnýting á hveraorku.
Erincli flutt á fundi V. F. í. 28. nóv. 1928 af Ben. Gröndal verkfræðingi.
Þegar ræðir mn hagnýtingu á hveraorlcu, eru
tvær leiðir, sem l'ara niá; önnur er sú, að nota þá
gufu og lieita vatn, sem streymir upp uni yfirborð
jarðar, án þess að gerðar sjeu neinar sjerstakar
ráðstafanir til þess að ná því uj)p. Hin er sú, að
bora djúpar liolur niður i hitalögin, og á þann
hátt niynda nýja hveri. Síðari aðferðin er auðvitað
kostnaðarsaniari, þar eð hún útheimtir dýrar hor-
vjelar, cn er aftur á nióti í flestum tilfellum trvgg-
ari, ef ræðir um meiri háttar virkjun. Hin aðferðin
kemur nær eingöngu lil greina, þegar ræðir um
smærri hitanir.
Það eru ekki ýkjamörg ár,síðan augu mannahjer
á landi o])iiuðust fyrir verðmæti allra þeirra lieitu
lauga og livera, sem dreift er hjer út um allar sveit-
ir hjá okkur. Það má reyndar vera, að margir liafi
haft hugboð um, að þennan liita mætti nota, og
talað um það, en lil framkvæmda hefir ekki kom-
;ið, svo miklu nemi. Einhver fyrsta tilraunin, sem
gerð var lil þess að nota laugahitann til húsahit-
unar, niun hafa verið á Reykjum í Mosfellssveit.
Yar það árið 1907, að vatn var leitt frá svonefndum
Amsterdam-hver og inn i húsið. Var notuð til þess
1" pípa, og lögð lítið eða ekkert einangruð í mold-
ina. Hverihn er um 75° heitur, og vatniö kólnaði
víst niður í ea. 00° á leiðinni, og gat aðeins hit-
að neðri hæð hússins, þar eð hverinn lá ekki nægi-
lega hátt lil þess, að vatnið fylti ofn á efri hæðinni.
Þessi hilun liefir verið þarna óbrevtt, þangað ti)
fvrir ári siðan, þá vár lögð ný 2" pípa frá hvern-
um til lnissins, og liún einangruð með gjalli. Var
þá seltur upp dálítill ketill í kjallara og innan í
honum var miðstöðvarofn. Iiveravatnið strevmdi
gegnum miðstöðvarofninn og liitaði með því móti
vatnið i katlinum, sem síðan rann í hring, eins og
í venjulegri niiðstöð, og hitaði ii])p efri hæð bygg-
íngarinnar. Þegar vatnið var búið að hila húsið,
var því veitl út i fjósið og látið hita það uj)p. -
Pipa sú, sem legið hafði frá livernum lil hússins
í 20 ár, var söguð i sundur, og lcom þá í ljós að
hún var eins hrein að innan eins og liún hefði ver-
ið sett niður deginum áður. Hvergi var vottur af
hverahrúðri né kisil.
Nokkrum árum siðar mun liafa verið gerð fyrsta
tilraunin lil þess, að nota gufuna til hitunar og suðu,
og var það á Sturlureykjum í Reykholtsdal i Borg-
arfirði. Var hvgt yfir hverinn og gufan leidd heim
í hæinn, sem er rétt hjá, eftir steinsteyptum stokk,
og síðan inn í ofna og suðuhólf. Næsta hitunin mun
vísl hafa verið að Álafossi, og var það stærsta hit-
unin, sem gcrð Iiafði verið. Var hún og eftitektar-
verð að því levti, að vatnið var þar leitt alllanga
vegalengd, ea. 1100 metra, og kólnar það ekki nema
5—0° á þcirri vegalengd, enda þólt einangrun píp-
unnar sé fremur ófullkomin. Utan um pípuna er
ca. 15—20 mm. þykt mólag, og vafið um það pappa-
lagi, og siðan gerður garður um leiðsluna. Á síðari
árum hefir farið nokkuð i vöxt þessi notkun á hver-
unum til hitunar, en ennþá er þó fljótgert að telja
upp j)á bæi, sem nota sjer þessi hlunnindi.
1 Borgarfirði eru aðeins finmi hæir með hverahit-
un: Sturlurevkir, Ivleppjárnsrevkir, Deildtartunga,
Kjalvararstaðir og Revkholt. Á Kleppárnsreykjum,
sem er læknisbústaður, er vatni frá hvernum veitt
inn i kjallarann og hitar þar miðstöðvarvatn á sama
Iiátt og gert er á Reykjum i Mosfellssveit. Aftur á
móti er kjallarinn hitaður með því, að láta sjálft
hveravatnið renna gegnuin ofnana. Áður hafði ver-
ið reynt að hita efri hæð hússins með gufu, en sú
lögn hafði mistekisl og ])ípurnar fyltusl brenni-
steinssora. Yl'ir liöfuð mun það mjög varhugavert,
að ætla sér að hleypa hveragufu inn í pípukerfi.
í Deildartungu er einn af stærstu hverum á land-
inu og nefndur Tunguhver. Hann liggur ca. 600
metra frá bænum, og miklu neðar. llefir bóndinn
i Deildartungu sýnt mikla elju og þolinmæði við
að beisla hver þennan og komá liita úr honum lil
húsa. Bvgði hann fyrst vfir liann mikla steinkassa,
— og var það alls ekki hættulaust verk, — reyndi
síðan að leiða gufu til húss i 4" pípum. En frá-
gangur var ekki nógu vandaður. Pipurnar voru
úr pjátri og lítið sem ekkert einangraðar, áður en