Freyr - 01.03.1907, Síða 6
30
FREYR.
kvíá, er lógað var í fyrra haust, vó 59
pd., og síðborið lamb undan henni 92 pd,
Dilká, lítilli en holdgóðri, frá Kleifum á
Selströnd var slátrað í Hólmavik í haust. Hún
vó 115 pd. og dilkurirn 95 pd. f>au lögðu
sig til samans á 31,11 kr.; kjötverðið 18 og
20 aurar, mör 30 aurar og pundið í gærunum
48 aurar.
í Strandasýslu er víðast gott undir bú,
sumstaðar ágætt. Ekki er óalgengt að ær mjólki
mörk í mál að meðaltali íyrstu vikurnar eftir
fráfærur, og mjólkin er svo að segja alstaðar
kostgóð.
Kýr eru í meðallagi að stærð eða vel það
og eins að gæðum, að því er séð verður.
Hvergi eru mjólkurtöflur haldnar, það eg veit.
Kýr, sem kemst í 12—14 merkur eftir burð,
er talin meðalkýr, og beztu kýrnar komast i
7—18 merkur.
Hestar eru í góðu meðallagi að stærð, frá
50— 52 þumlungar á hæð. Langstærsti hest-
urinn, er eg sá á Vesturlandi var 55’/2 þuml.
Hann er í Trékyllisvíkinni, og þar upp alinn.
Skepnur eru fremur fáarí Strandasýslu, eins
og áður er sagt. Taflan í næsta dálkiá eftir sýnir
tölu þeirra í hverjum hreppi, og hvað margar
skepnur eru á hverju býli að meðaltali í hverj-
um hreppi.
Það skal tekið fram, að sumarið 1903 var
mjög óhagstætt í Strandasýslu, einkum norð-
antil. í Árneshreppi urðu töður næstum þvi
únýtar, og öll hey hröktust mjög. Bændur
urðu því að fækka skepnum sínum stórkost-
lega um haustið, sumir til helminga eða meira.
Enginn kynbótafélagsskapur hefir enn
komist á fót í Strandasýslu. Samþykt um
kynbætur hrossa er að visu gjörð fyrir
nokkrum árum, en lítt er henni framfylgt þar
sem víðar. Stofnun sauðfjárkynbótabús fyrir
sýsluna er í undirbúningi.
Á jarðabætur er áður minst, en hér skal
þvi viðbætt, að túngirðingar eru hvergiá landinu
eins algengar og í Strandasýslu.
Taflan efst á uæstu síðu sýnir jarða-
bætur búnaðarfélaga í hverjum hreppi sýslunn-
ar seinustu 10 árin, er skýrslur ná yfir. Af
því að sum búnaðarfélögin hafa ekki starfað
nema eitt eða fá ár af nefndu tímabili, eru
auðvitað ekki nærri allar þær jarðabætur i
töflunni, sem unnar hafa verið seinustu 10
skýrsluárin.
3
P
C
cra"
'-í
in
p p
e
O Or
crq ö.
O P
t>- 0:
V!-
o-td
h O ÍÁH.® cc <x>
o 0^3. s2.
, CD — ^ —1
tr
H
CD
& gL h? h H. a
’-i tr® (T) tr C
2 3 £ ^ ® CD
CD p JQ C2
“ CD C3- P f
cc P 3 B
6533 er tel eftir l 160 CO 02 bO H H M bO <i^ocDO»oai td
| 658134 ;in eftir 1 lúnaðarský 14467 H^ to fcO ^ H^ 02 CO OI CO CO fO 02 OCOCiCDtOHOi 02 02 02 o H -1 œ QQ P Of CD'
s. S w 5 c o B 3 C p Co 0 3 «> g _ 442 H* -q Oi to rf*. o oo to hi to co Naut- gripir
2 *-í 0 £. «>. P C .,3 a> 5’ c ih í* B 964 HHMH to H 02 Œ) bO O CD Q CO H H 02 CD bO 02 Hross 1
E g H- s! 8 Of CD O H 1—4 H* H4 cn hi to h co to to H 02 02 o to Ofl CD 9í ! -gneg Koma á býli
s ^ to 00 bo ao w j-* ih "o k'HHOoki'i) H* et- H i
o CTQ 2- 'bo p 6,0 H- ODJOD jDD Hl.rfHO O 'Io'cd'h‘0 05 bO'bO Hross
W
CD
P
Cf-
U1
H
P
P
P
P
oo
p.
CD
O
Garðrækt er svo að segja eogia í Stranda-
sýsln. Rófur vaxa þó vel í mið- og innsýsl-
unni, þar sem gott lag er á ræktuninni t. d. í
Bæ og Tröllatungu. Væru vermibeð notuð,
mætti rækta þær í öllura hreppum sýslunnar,
og ættu einstakir bændur, þar sem vel hagar
til, að hafa stóra garða, og selja nágrönnum
sinum á haustin, það sem þeir hefðu aílögu.
Kartöflur vaxa nokkurnveginn í góðum árum,
en mislánast í kuldasumram. Væri gott lag á
ræktuninni, og harðfeng afbrigði notuð, gætu
þær þó að líkindum vaxið sæmilega í flestum
árum, að minsta kosti í mið- og innsýslunni.