Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1911, Blaðsíða 4

Freyr - 01.12.1911, Blaðsíða 4
130 FfiEYR. veldlega út frá þeim sem sjúkar voru um kaustið. Nú heíir í stuttu máli verið skýrt frá gangi veikinnar og verður því auðveldara að skilja þau ráð, sem mönnum hefir hugkvæmst til að að sporna við veikinni. Það sem allra sjálfsagðast er til þess að draga úr sýkinni er það, að viðhafa alla vand- virkni við útsæðisvalið, tína grunsamlegu kar- töflurnar frá, bæði um haustið og vorið. Þótt ekki só hægt að gera þetta svo vel að ekki sjáist yfir eitthvað af sjúkum kartöflum, þá er það þó mikil vörn. Sömu varúðar þarí auðvit- að að gæta við allar þær kartöflur sem geyma skal yfir veturinn, þótt ekki séu þær ætlaðar til útsæðis. Að því er þetta snertir, má fara að húa í haginn fyrir sór um leið og tekið er upp eða jafnvel áður en farið er að taka upp. Kar- töflurnar geta hæglega sýkst á meðan verið er að taka upp. Ef sveppurinn er til staðar á annað borð, og kartöflugrasið er liíandi, geta frjókornin hæglega borist á kartöflurnar, bæði af grasinu og úr jarðveginum, meðan verið er að taka upp. Só kartöflugrasið gjörfallið viku áður en tekið er upp, þá eru öll frjókornin dauð, önnur en þau sem búin eru að hitta fyrir sér kartöflur og festa sig í þær, því talið er að fjókornin geti ekki lifað lengri tíma í moldinni eða ofan á henni. En nú er því svo varið hér á landi að grasið fellur varla af öðrum ástæð- um en af frosti eða af sýki, og gjörfellur það sjaldnast af henni, verður því að taka annað til bragðs ef sjáanlegt er að töluverð sýki sé f kartöflunum, og það er, að slá grasið ogláta svo líða að minsta kosti viku þangað til tekið er upp. 3?aö er varla gjörlegt að taka neitt til út- sæðis af þeirri kartöfluuppskeru sem sjúk er að miklum mun, verður maður þá heldur að leita fyrir sér með útsæði annarstaðar og treysta því að það reynist betur. Kartöfluafbrigðin eru misjöfn að því hversu móttækileg þau eru fyrir sýkina. Eljótvaxnar kartöflur eru yfirleitt næmari fyrir en hinar seinvaxnari. Áður var getið um það, að veikin magnað- ist meira í vætutíð, einkum seint á sumri, en líka hefir jarðvegurinn áhrif á þetta. I send- inni jörð grípur sýkin ekki eins um sig eins og í leirmiklum eða myldnum jarðvegi. Eitt ráðið til að draga úr sýkínni er þaðr að hreykja moldinni upp að kartöflunum svo að skarpur hryggur myndist og grasið standi upp úr miðjum hryggnum. Þetta er þvi að eins hægt, að sett só í raðir með jöfnu og hæfilegu millibili og það ættu menn ætíð að gera, einkum þar sem kartöflurækt er að nokkru ráði. Erjókorn þau, sem falla á jörðina, berast þá fremur niður eftir hryggnum og niður í lautina milli þeirra og hitta þar engar kartöfl- ur fyrir og fara þá forgörðum. Það hefir lfka verið ráðlagt að hreykja svo mikilli mold yfir kartöflurnar að það verði um 4 þunfl. þykt moldarlag ofan á þeim; verður það til þess að mikið af frjókornunum deyr í moldinni, en aft- ur á móti gerir þetta þykka moldarlag það að verkum, að undirvöxturinn verður ekki eins mikill; af þeirri ástæðu hlifast menn við að hreykja svo hátt. Enníremur hefir verið stung- ið upp á þvi, að haga hreykingunni þannig, að kartöflugrasið hallaði til annarar hliðarinnar, svo að frjókornin falli fremur niður í lautina, en slíkt verður erfitt að framkvæma svo að- gagni komi. Eitt ráð til að tryggja með útsæðið er þaðr að hita það svo að sveppurinn drepist. Kar- töflurnar eru haíðar í 4 klukkutíma í þurrum hita, er talið hæfilegt að hitinn á þeim só 40 —47° C. Má gera þetta á þann hátt, að láta útsæðið niður i blikkfötu, sem svo er látin nið- ur í ker með heitu vatni í. Þetta ráð er talið óyggjandi, en menn nota það ekki alment og

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.