Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1911, Síða 12

Freyr - 01.12.1911, Síða 12
138 FREYR. að hlynna að stórbýlunum, er það gagnstætt þeirri stefnu er ríkir nú í Danmörku. A stór- býlunum fylgist að þekkingin og getan. Ríkið styrkir ekki smá-búskapinn eins og gert er í Danmörku. Efnalitlir menn eru því neyddirtil að gera iðnaðinn að atvinnuvegi sínum. Land- eignunum er haldið óskiftum, og þær hækka í verði jafnframt því sem þörfin á meiri fram- leiðslu vex vegna fjölgunar iðnaðarfólksins. í Saxlandi er sykurrófnaræktin á háu stigi; þar eru fallegar smáraekrur og alstaðar er vel um gengið, hvergi mikið um illgresi. Til þess að greina nánar frá búskapar fyrirkomulaginu má nefna sem dæmi 1 bæ, þar sem landareign- in var 75 hektarar. Af því landi var síðastl. sum- ar 20°/0 ræktað með sykurrófum, 12°/0 með rúg, 15% með hveiti, 20% með höfrum, 15°/0 með lúsernum, 15°/0 með byggi' og 3% með kart- fjflum. Á bænum voru 7 hestar, 25 kýr, 5 kvigur, 12 kálfar og 1 naut. Mjólkin seld í nærliggjandi þorpi. Hestar eru í háu verði, um 1300 kr. að meðaltali, eru því bændur byrjaðir á því að nota uxa til dráttar. Litið er um félagsskap meðal bænda á Saxl. Þar eru hvorki sameignarmjólkurbú nékaupfélög. Mjólkin er skilin heima, ef hún er ekki seld ný til bæjanna. Það er eftirtektavert að sjá hversu akrarnir eru nákvæmlega vel hiitir og hversu mikið kapp er lagt á að bægja burtu illgresinu. Til dæmis má uefna, að maður, sem ekur eftir veginum og sér nokkra þistla með þroskuðum fræjum, kallar á fólk til að taka þistlana, og landeigandi borgar fyrirhöfnina. Lögreglan lít- ur eftir að þesskonar illgresi finnist ekki með- fram veginum og hún sér líka um að hreinsað sé í burtu grjót, sem þar kann að liggja. Plægt er 12—18 þuml. djúpt. Á síðari árum er mikið farið að nota mótorplóga. Dað er setið á þeim og þeim er stýrt líkt og mótorvögnum. Plógurinn tekur 4—-6 strengi í einu og afkastar geysimiklu. Þetta verkfæri mun verða þess valdandi að gagngerð breyting verði á akuryrkjunni. Mikið er gert til þess að bæta hinar rækt- uðu jurtir og gerðar eru háar kröfur til þess að varan sé góð, enda er verðið eftir því. ÍDan- mörku er gert ráð iyrir 12—13 faldri uppskeru af korntegundum, en á Þýzkalandi 15—24 faldri. Pramanskráðar línur, um landbúnaðinn á Þýzkalandi, eru lítilsháttar útdráttur úr fyrir- lestri, er Sörensen búnaðarráðunautur hélt i haust og eg var áheyrandi að. Alfred Kristensen. Vélrakstur. Á s. 1. slætti gerði eg tilraun með að láta sláttuvélia flytja með sér grasið af skáranum að skákarhorninu. Lét grasið falla niður á striga- voð sem fest var aftan á greiðuna. Mér sýnist mikið unnið við það til flýtis heyskapnum ef raksturinn gætigengið jafnfljótt slættinum og einn maður gæti þá unnið þessi tvö verk, að raka og slá, sem eitt verk, með sömu hestunum og vélinni, aðeins með dálitlum útbúnaði. Tilraunin sýndi, að greiðan og vélin þolir nægilega mikinn heyflutning og hestunum mun- ar lítið um þá auknu þyngd. Útbúnaðurinn á að geta orðið svo fullkom- inn, að raksturinn tefji ekki fyrir slættinum. Hugmynd mína mun eg reyna að fram- kvæma svo fljótt sem eg hefi ástæður til. Þetta verður þá aðeins Ijárakstrarvél og á bezt við á heldur snöggum engjum, en á als ekki við þar sem er nær því síbreiða. Svo vel er rakað, að ekki eitt einasta strá

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.