Freyr - 01.06.1936, Blaðsíða 6
108
FRE YR
samtals réttir 100 ha. Telur Halldór að
þessi slægjulönd öll til hópa gefi af sér í
meðalári 35—40 hesta af ha. 1934 eru tún-
in talin 35,7 ha. og garðar tæpur 1 ha.
Það sumar gáfu túnin af sér um 56 hesta
af ha. Kartöfluuppskeran samsvaraði 140
tn., en gulrófuuppskera 280 tn. af ha. Síð-
ustu árin hefir töðufengurinn verið um
2000 hestar og útheyskapur um 3000 hest-
ar, og taldi þó Halldór að hver „hestur“
væri 120 kg.
Við heyskapinn, eins og önnur bústörf,
voru jafnan notaðar yfirleitt hinar full-
komnustu vélar. Heyskapurinn var því ó-
dýr, þótt hann væri mikill, og heyskapar-
tími miklu styttri á Hvanneyri en almennt
gerist, byrjaði snemma og var oftast lok-
ið um höfuðdag.
Svo sem kunnugt er var Halldór á
Hvanneyri aðal talsmaður og brautryðj-
andi votheysgerðar hér á landi alla tíð,
síðan hann kom að Hvanneyri, og mjög
sárnaði honum hversu lítinn árangur bar-
átta hans fyrir votheysgerðinni hefir bor-
ið. Vantaði þó ekki kraftinn í orð hans
þar, fremur en annarstaðar, þar sem hann
beitti sér fyrir: „Ætlið þið e'kki að fara
að fara af stað? Eftir hverju eruð þið að
bíða? Áfram í smjörið og votheysgerð-
ina!“ segir hann í einni skólaskýrslunni.
Hann kallar votheyið „fóðurforðabúr“ og
„þar er núna kraftfóðrið mitt“. Eg hygg
að oft hafi um Yg hluti heyjanna á Hvann-
eyri verið settur í vothey, enda leit Hall-
dór ekki á votheysverkunina sem neyðar-
úrræði, heldur sjálfsagða heyverkunarað-
ferð, hvernig sem viðraði.
Það mun ekki fara fjarri sanni, að ár-
leg framleiðsla jarðarafurða þau 29 ár, sem
Halldór bjó á Hvanneyri, hafi verið:
950 hestar taða (mest 2000 hestar),
2450 hestar úthey (mest 3300 hestar),
30 tn. kartöflur (mest 50 tn.),
150 tn. gulrófur (mest 300 tn.).
Þeir, sem nenna að margfalda þessar
tölur með 29, geta farið nærri um það,
hvað „moldin“ lét honum í té á þessum 29
árum.
(Á. G. Eyland).
„Halldór á Hvanneyri“ í nýbrotnu landi.
Jarðabætur á Hvanneyri í tíð Hálldórs
nema sennilega um 12000—14000 dags-
verkum, miðað við framtal jarðabóta á
jarðabótaskýrslum. Er þetta reyndar hlut-
fallslega minna en nú gerist hjá mörgum
bóndanum — í seinni tíð — þegar þess er
gætt, að rösklega 300 piltar hafa stundað