Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1938, Qupperneq 2

Freyr - 01.09.1938, Qupperneq 2
FREYR, XXXIII. árg'. Nr, 9 FRÁ gbænmetisverslun ríkisins. Til þess að kartöflur þær, sem Grænmetisverslun rikisins kaupir, verði metnar sem góð og gild söluvara, þurfa þær að uppfylla eftirfarandi skilyrði: 1. Kartöflurnar verða að vera þurrar og hreinar. (Ath.: Aldrei má hreinsa kartöflur með því að þvo þær eða bleyta). 2. Kartöflurnar eiga að vera sem jafnastar að útliti og stærð. Ailar óvenjuiega stórar, vanskapaðar, grænar og skaddaðar kartöflur verða að vera skildar frá. Sömuleiðis frosnar kartöflur og sýktar. 3. Allt smælki þarf að vera skilið frá, þannig að kartöflur, sem ekki eru meira en 35 millimetrar í þvermál nemi alls ekki meira en um 5°/0 af vörunni, og að engar kartöflur séu minni en 25 miliimetrar í þvermál, 4. Kartöflurnar eiga að afhendast í 50 kílóa pokum, sem verða að vera þurrir, heiiir og þrifalegir. Skal vera vandlega saumað fyrir pokana og gerð á horn til að taka í, þegar þeir eru handieiknir. 5. Seljendur verða að láta fylgja kartöfiunum greinilegar upplýsingar um hvaða af- brigði (tegund) þær séu. F.f um fieiri afbrigði er að ræða í sömu sendingu, má ekki blanda þeim saman. Hvert afbrigði verður að vera vei sérmerkt, bæði með tegundarnafni og nafni seljanda, svo hægt sé að greina á milli þeirra, án þess að opna pokana. 6. Auk þess verða seljendur að gefa Grænmetisverslun ríkisins aðrar upplýsingar við- víkjandi vörunni, eftir því sem óskað er, og verða má til þess að upplýsa um heilbrigði kartaflanna, gæði og geymsluþol. Kartöflur. Á tímabiliiiu 20. sept. til 30. okt. kaupum vér vel verkaðar og flokk- aðar kartöflur á kr. 18.00 pr. 100 kg. afhentar við vöruhús vort í Reykja- vík. Þeir, sem kunna að vilja selja oss kartöflur samkvæmt þessu, eru beðnir að tilkynna það án tafar, og kynna sér auglýsingu hér að ofan, utn reglur þær, er gilda um verkun, flokkun og afhendingu kartaflanna. Grænmetisverslun rikisins. Verðlag á kartöflum. Lágmarks söluverð á kartöflum til versl- ana er ákveðið: 15. sept. til 31. okt.: kr. 21.00 pr. 100 kg. 1. nóv. til 31. des.: kr. 22.00 pr. 100 kg. Innkaupsverð Grænmetisverslunar ríkisins má vera allt að þremur krónum iægra hver 100 kg. Smásöluálagning (við sölu í lausri vigt), má ekki fara fram úr 40°/o, miðað við hið ákveðna söluverð til verslana. — Heimilt er þó verslunum, er af einhverjum ástæðum kaupa kartöflur hærra verði en hinu ákveðna lágmarksverði, að haga smásöluálagningu sinni þannig, að hún sé allt að 40°/o af inn- kaupsverðinu. Hið setta verðlag er miðað við góða og ógallaða vöru. Verðlagsnefnd Grænmetisverslunar ríkisins

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.