Freyr - 01.09.1938, Blaðsíða 15
FRÉYR
141
orsritgerð hans verði gefin út á íslenzku
í heild, en hinsvegar má búast við að
hann birti hér, áður en langt um líður,
það úr henni, sem mestu varðar fyrir
framleiðendur, kjötmatsmenn og neyt-
endur að vita.
Halldór Pálsson er fyrsti íslendingur
(nema ef vera skyldi í Ameríku), sem
hlotið hefir doktorsnafnbót í búvísindum.
Má nærri geta að honum standa nú
margar leiðir opnar, eftir svo glæsilegan
námsferil, sem hann á. En vonandi er að
Búnaðarfélag Islands — og Rannsókn-
arstofnun atvinnuveganna, — beri gæfu
til að njóta hans vel og lengi fyrir ís-
lenzkan landbúnað. Freyr býður hann
velkominn til starfa og þykir ástæða til
að minna um leið á það sérstaklega,
hversu giftudrjúgt varð starf þess manns
— Torfa Bjarnasonar —, sem fyrir
rúml. 70 árum sótti undirbúning undir
lífsstarf sitt í þjónustu landbúnaðarins
til Skotlands. Verður ekki á betra kos-
ið en að þvílík gifta megi fylgja starfi
Halldórs Pálssonar fyrir ísl. landbúnað.
Dr. phil. Halldór Pálsson er fæddur
26. apríl 1911, að Guðlaugsstöðum í
Blöndudal, sonur Páls Hannessonar
bónda þar (bróður Guðm. próf. Hannes-
sonar) og konu hans Guðrúnar Björns-
dóttur Eysteinssonar í Grímstungu. Hann
byrjaði nám í menntaskólanum á Akur-
eyri 1928 (þá gagnfr.skóla) og lauk
gagnfræðaprófi vorið 1930. Hóf svo nám
í máladeild sama skóla um haustið, en
fór veturinn eftir suður, gekk í stærð-
fræðideild Menntaskólans í Reykjavík
og lauk stúdentsprófi þar vorið 1933.
Hann er alinn upp í sveit, við stórt og
gott fjárbú og hefir jafnan unnið í sveit
á sumrum, svo sem frekast hefir sam-
rýmst bóknámi hans. Fé hefir hann átt
frá barnsaldri — og á enn.
Ferðaþættir.
I. Fjórða
landbúnaðarnámskeið
„Norræna félagsins“
(Foreningen Norden).
Þann 16. júní síðastliðinn fór undir-
ritaður utan með e.s. Lyra, til þess að
taka þátt í landbúnaðarnámskeiði Nor-
ræna félagsins, sem haldið var í Noregi
25. júní til 2. júlí og fundi Norrænna bú-
vísindamanna, sem haldinn var í Uppsöl-
um í Svíþjóð 4.—8. júlí. Samtímis var að-
alerindi mitt að kynnast nýungum í
loðdýrarækt.
I námskeiðinu í Noregi tóku þátt: 23
Danir, 30 Norðmenn, 28 Svíar, 1 Finni
og 2 íslendingar: form. Búnaðarfélags
Islands Magnús Þorláksson, Blikastöð-
um og undirritaður.
Námskeiðið hófst laugardaginn 25.
júní í Oslo. Setti landbúnaðarráðherrann
norski mótið, en strax á eftir flutti bún-
aðarmálastjóri Norðmanna, 0. T. Bjanes,
ágætan fyrrilestur um norskan landbún-
að almennt. Vil ég benda þeim, sem á-
huga hefðu fyrir því að kynna sér þetta
efni, að útvega sér bók, er heitir Nor-
wegian agriculture eftir 0. T. Bjanes,
og gefur mjög skýrt ^firlit yfir
norskan landbúnað. Seinna þenna sama
dag var öllum þátttakendum sýnd mjólk-
uryinnslustöðin í Oslo, en hún vinnur
alla mjólkina fyrir höfuðstað Norðmanna
á svipuðum grundvelli og mjólkurstöðin
1 Reykjavík gerir fyrir bæinn hér. —
Mjólkurstöðin er að miklu leyti nýbyggð
og hefir hinar fullkomnustu vélar og á-
höld. Bændum er öllum, sem senda mjólk
til stöðvarinnar, greitt sama verð fyrir
samskonar mjólk að frádregnum flutn-
ingskostnaði. Seinna sama dag var hin