Freyr - 01.09.1938, Blaðsíða 16
142
F R E Y R
mikla iðnaðarsýning. „Vi kan“ skoðuð af
þátttakendum námskeiðsins.
26. júní var sunnudagur, voru þá skoð-
aðar gamlar norskar byggingar á safn-
inu á Bygdö, sömuleiðis gömlu víkinga-
skipin, sem fundist hafa í gömlum kon-
ungagröfum, ,,Fram“, skip Friðþjófs Nan-
sen o. fl. — Þá var skoðaður búgarður
norsku krónprinshjónanna „Skaugum".
Þar sá ég það fínasta fjós, sem ég hefi
séð, veggir allir og stoðir lagðir hvítum
postulínsflísum til % vegghæðar og í
sjálfu fjósinu postulínshandlaugar með
heitu og köldu vatni fyrir starfsfólkið að
þvo sér úr. Hreinlæti virtist vera á mjög
háu stigi og gripirnir hinir fallegustu.
Annað, sem vakti sérstaka eftirtekt mína
var að garðyrkjumaðurinn á staðnum
hafði ræktað kartöflur í vermireit, hituð-
um með rafmagni, fengið þær sölu-
hæfar í apríl og selt nokkuð af þeim fyrir
4 kr. kílóið.
Þá var heimsóttur Statens smábruker-
lærerskole í Asker. Þessi skóli er eins-
konar landbúnaðarháskóli fyrir þá, sem
gerast vilja kennarar á hinum svökölluðu
smábændaskólum í Noregi og fyrir þá,
sem gerast vilja leiðbeinendur fyrir smá-
bændur. Skólinn liggur í frjósömu hér-
ali á Foldinni skammt frá Óslo.
Nokkur landbúnaður tilheyrir skólan-
um, þó ekki allstór. Er þar rekin all-
fjölbreytt jarðrækt og búfjárrækt. Þar
er allstórt silfurrefabú. Virtist mér silf-
urrefabúið vekja einna mesta athygli
gestanna. Á þessum skóla voru nú fjór-
ir Islendingar. Áður en farið var frá Sem
gaf skólinn öllum gestum mjög myndar-
legan miðdegisverð.
Mánudaginn 27. júní lögðu allir þátt-
takendur af stað til Rjúkan, í heimsókn
til Norsk Hydro, er tók á móti gestunum
með sérstakri alúð og rausn. Var farið
með bílum frá Oslo og kostaði Norsk
Hydro alla ferðina þaðan til Rjúkan, og
til Notodden daginn eftir.
í Rjúkan sýndi Nielsen forstjóri hinar
stórkostlegu verksmiðjur, sem framleiða
köfnunarefnisáburð úr loftinu. Raf-
magnsstöðvarnar í Rjúkan framleiða um
400.000 hestöfl. Það væri fullkomin á-
stæða til þess að rita sjerstaka og langa
grein um Rjúkan, því þar hlýtur hver
maður, sem sér þau stórkostlegu mann-
virki og verksmiðjur, að stansa í undrun
frammi fyrir teknik nútímans og óhemju-
legum mætti náttúruaflanna.
I Rjúkan var öllum veittur beini svo
skörulegur að vart er hugsanlegt að hægt
sé að gera það myndarlegar.
Eftir að hafa skoðáð verksmiðjur
Norsk Hydro eins vel og tími vanst til,
komu þátttakendur að kveldi þess 28.
júní til Skien, bær á Foldinni, með um
20 þúsund manns. Borðuðum við þar í
myndarlegu samsæti um kveldið og gist-
um þar um nóttina, allt í boði bæjar-
stjórnar. Morguninn eftir fórum við það-
an og skoðuðum hvalasafnið í Sande-
fjord og hinar stórkostlegu verksmiðjur
„Nordisk Aluminiumindustri“ í Holme-
strand. Gaf verksmiðjustjórnin mat-
veizlu fyrir þátttakendur námskeiðsins
og veitti af hinni mestu rausn og gest-
risni.
Framh.
H. J. H.
Búnaðarfélag Mýrarhrepps.
50 ára.
Sunnud. 19. júní 1988 minntist Bún-
aðarfélag Mýrahrepps í Vestur-ísafjarð-
arsýslu 50 ára afmælis síns með sam-
komu í héraðsskólanum á Núpi.
Samkomuna sóttu um 60 búnaðarfé-
lagsmenn og konur þeirra og 14 boðs-
gestir.