Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1936, Page 8

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.04.1936, Page 8
14 T 1 M A R I T V. F. 1. 1 9 3 6. 75% af hinum nothæfu efnum, en 25% af þeim tapast. Nærri því % af þessu tapi kemur á eggja- hvítuefnin, en hitt aðallega á fituna, af því að steinefnin eru tiltölulega lítill hluti (5—6%) af nothæfu efnunum. Loks vil eg aðeins minnast lítið eitt á skiftingu olíunnar í pressuolíu, þróarolíu og úrgangsolíu, sem sýnd er í töflu VI, ásamt tilheyrandi sýru- innihaldi. Úrgangsolían svonefnda er hið lakasta af oliunni, með því að i henni er jafnan meira af vatni, ó- hreinindum og sýru en í hinum tegundunum, en þetta þrennt er það, sem aðallega ræður gæðum olíunnar. Því minna sem er af þessum efnum, því betri er olían. I úrgangsolíunni er sýran oftast 10 —20%, en eg minnist þess, að hún hafi orðið um 50%. Úrgangsolían hefir að einu sumri undanskildu orðið 2—ca. 6% af allri olíunni. Þróarolían er sú olía, sem pressast úr síldinni meðan hún liggur í þrónum. Hún er mjög oft svo góð, að hægt er að láta hana saman við aðaloliuna, sem fæst þegar síldin er pressuð (pressuolian). En annars er þróarolían oft bætt með litlum tilkostn- aði í verksmiðjunum, svo að hún geti farið sam- an við pressuoliuna. Þar sem engin þróarolia er tilgreind, hefir mestur hluti hennar farið saman við pressuolíuna, en það lakasta í úrgangsoliuna. Eins og taflan ber með sér, hefir pressuolían (á- samt nokkru af þróarolíu) í S R og S R P numið 86—98% af allri olíuframleiðslunni. Hjá SRN er öll olían færð undir pressuolíu, en þar í er inni- falin þróarolía, með þvi að hún fór, að minnsta kosti að langmestu leyti, saman við pressuoliuna, eins og hjá hinum verksmiðjunum. Það, sem kann að hafa komið af úrgangi úr þróarolíunni, er tal- ið með í úrgangsolíu S R, vegna þess að þróarolían var sameiginleg hjá þessum verksmiðjum. tJrgang- ur þessi hefir verið fyrir neðan 1% af allri oliunni og þykir mér ekki ástæða til þess að fara að gera áætlun um svo lítið, en get þessa aðeins hér til skýringar. Það mætti segja ýmislegt fleira um þessi mál, en það verður að bíða seinni tíma. Eg vona, að tölur þær og annað þessu víðvíkjandi, sem eg liefi dregið hér saman á einn stað, geti orðið til fróð- leiks og gagns fyrir þá, sem í framtíðinni kunna við þetta að fást. Vatnsrennslismælingar í Fjarðará við Seyðisfjörð. Hjörtur Sigurðsson, rafmagnsstjóri á Seyðisfirði mældi. Að tilhlutun Jakobs Gíslasonar verkfræðings hefir Hjörtur Sigurðsson rafveitustjóri á Seyðisfirði gert vatnsrennslismælingar í Fjarðará árin 1931—1932 og 1934 og það sem af er árinu 1935. Heldur hann mælingunum áfram. Hann hefir gert fjölda margar vatnsrennslismæl- ingar við mismunandi rennsli í ánni, en vatnshæðar- athuganir hefir hann gert að jafnaði þrisvar í viku. Hjörtur á þakkir skyldar fyrir mælingar þessar, því hingað til hefir ekkert verið vitað um rennslis- háttu ánna í Austfjörðum. Rennsli í Fjarðará háttar mjög öðruvísi til, en rennsli þeirra áa hér sunnan-, vestan- og norðanlands sem kunnar eru, að þvi leyti að vatnsmagnið er miklu breytilegra. Minnsta rennsli hennar, miðað við úr- komusvæðið mikið minna, en mesta rennsli talsvert meira og hlutfallið milli minnsta og mesta rennslis 1 : 284 á móti 1 : 70 í Glerá og 1 : 83 í Elliðaám. Ligg- ur þetta sennilega í þvi, að jarðvegur er þarna yfir- leitt grunnur og aðdragandi árinnar stuttur og fall- mikill. Lausleg athugun í þeim ám, sem virkjaðar eru á Austfjörðum, sýnir, að rennsli jæirra er líkt og í Fjarðará. að minnsta kosti hvað það snertir, að flóð og lítið vatnsmagn í þeim koma fyrir á sama tíma og vara jafn lengi. Sama gegnir um Gilsá, sem við höfum nú látið at- huga i eitt ár, enda þólt liún renni til vesturs, til Hér- aðs, og aðdragandi hennar sé talsvert lengri. Mælt minnsta rennsli hennar er 3.3 l/sek./km2 og var sama dag jafn mikið rennsli af km2 í Fjarð- ará. Loks hefir Fossá við Þórshöfn verið mæld nú síð- asta hálfa árið og að því er séð verður af þvi, svipar henni einnig til Fjarðarár, þó hefir minnsta rennsli hennar, miðað við úrkomusvæðið, mælst talsvert minna eða ca. 1.6 l/sek./km2. Um Fjarðará er þetta helzt að segja:

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.