Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 4

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 4
26 TÍMARIT V.F.Í. 1947 Reykjavík hulin reykjarmekki áður en hitaveitan kom tilsögunnar. Myndin er tekin af vatnsgeymunum á Rauðar- árholti. Smoke over Reykjavík befgre tlie erection of tlie Heatiny Plant. Hitaveita Reykjavikur. Erindi flutt af Helga Sigurðssyni, hitaveitustjóra, í Verkfræðingafélagi íslands, 29. nóv. 1944. Inngangur. Það hefur verið venja hér í félaginu að kynna félagsmönnum öll meiri háttar mannvirki, sem byggð hafa verið hér á landi. Hitaveita Reykjavíkur er mesta mannvirki, sem Islendingar hafa ráðizt í til þessa, og þegar formaður félagsins fór þess á leit við mig, að ég héldi hér erindi um þetta efni, fannst mér sjálfsagt að verða við þeirri ósk. Það gefur að skilja, að þegar um svona mikið mannvirki er að ræða, sem auk þess er einstakt í sinni röð, þá verða efninu ekki gerð full skil á jafnskömmum tíma og ég hef hér til umráða, og ég verð því að fara mjög fljótt yfir sögu og sleppa ýmsu, sem þó gæti verið fróðlegt að ræða nánar. Til þess að bæta að nokkru úr þessu, varð það að ráði að hafa erindin tvö og að flytja þau á tveim fundum í röð þannig, að ég byrjaði með því að sýna félagsmönnum helztu hluta mannvirkisins, eins og ég hef gert í dag og flytti síðan erindi, er aðallega yrði lýsing á því, en að Langvad verkfræðingur skýrði svo á næsta fundi frá ýmsu í sambandi við byggingu mannvirkisins. Forsaga. Það þykir hlýða við svona tækifæri að rekja að- draganda málsins og geta þeirra manna, sem unnið hafa að framgangi þess. Ég mun þó ekki gera það nema að mjög litlu leyti, því forsaga hitaveitunnar er öllum enn í fersku minni, og ef geta ætti allra þeirra, er að undirbúningi og framkvæmd mannvirkis- ins hafa unnið, þá yrði það allt of langt mál. Saga hitaveitunnar hefst með byggingu gömlu hitaveitunnar frá Þvottalaugunum, sem byggð var árið 1930, og rekin er enn í dag. Að undirbúningi þeirrar veitu unnu þeir Geir G. Zoega, Valgeir Björns- son og Benedikt Gröndal, auk þeirra Steingríms Jóns- sonar og Dr. Þorkels Þorkelssonar, er sáu um boran- irnar við Þvottalaugarnar. Fyrst getið er þessara manna, verður ekki gengið framhjá Knud Zimsen þáverandi borgarstjóra, sem einnig er verkfræðingur og jafnan hafði mikinn áhuga fyrir þessum málum. Boranirnar við Þvottalaugarnar voru fyrstu bor- anirnar eftir heitu vatni hér á landi, og mun Stein- grímur Jónsson hafa átt frumkvæðið að þeim. Þær hófust árið 1928. Þessar boranir og gamla hitaveitan gáfu svo góða raun, að farið var fyrir alvöru að athuga möguleik- ana á því að hita upp allan bæinn með hveravatni. Það mun hafa verið Jón heitinn Þorláksson, sem fyrstur manna sýndi fram á, að gerlegt væri að hita upp alla Reykjavík með hveravatni, jafnvel þótt sækja yrði það upp að Reykjum eða upp í Hengil, og varð hitaveitan eitt af hans hjartfólgnustu málum allt til dauðadags. Árið 1933 gerði Reykjavíkurbær samning við eig- endur jarðanna Reykja og Reykjahvols í Mosfells- sveit, er heimilaði bænum að bora eftir heitu vatni í landi þessara jarða og kaupa hitaréttindi þeirra fyr- ir ákveðið verð, ef bærinn óskaði þess síðar. Sama ár hófust boranirnar og hefir þeim verið haldið áfram svo að segja sleitulaust fram á þennan dag, og enn er borað þarna með tveim borum.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.