Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 5

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 5
TÍMARIT V.F.I. 1947 27 Frá hverasvæðinu á Reykjum áður en hitaveitan tók til starfa. Nú ber minna á gufunni. From tlie liot-spring region by Reykir before the liot water ivas taking in use. Now tlie vapors liave subsided. Fg hefi áður flutt erindi hér í félaginu um boran- irnar og skal því ekki fjölyrða um þær að þessu sinni, aðeins geta þess, að upphaflega var talið, að heita vatnið á Reykjum næmi sem svaraði 100 1/sek, en boranirnar juku það upp í ca 260 1/sek, auk þess sem vatnið hitnaði til muna, eða úr 82° upp í 87° C.* Það kom fljótt í ljós eftir að byrjað var að bora á Reykjum, að vatnsmagn myndi verða það mikið, að gerlegt yrði að leiða það til bæjarins. Var þá þegar hafizt handa um undirbúning. Það féll í minn hlut að gera frumteikningar og frumáætlun að hitaveitunni frá Reykjum í samráði við Valgeir Björnsson, þáv. bæjarverkfræðing. Þess- ar áætlanir voru fullgerðar um haustið 1937. Um þessar mundir voru mikil gjaldeyrisvandræði og því óhugsandi að ráðast í þetta mikla fyrirtæki nema fá lán erlendis frá. Ég skal ekki fjölyrða um þá erfiðleika, sem þeir Pétur heitinn Halldórsson, borgarstjóri, og Valgeir Björnsson, bæjarverkfræðingur, áttu við að stríða við útvegun láns til hitaveitunnar erlendis, né þau póli- tísku átök, sem orðið hafa um málið til lítils góðs fyrir það, en aðeins geta þess, að firmað Höjgaard & Schultz í Khöfn varð til þess að útvega lán til mann- virkisins gegn því, að það tæki að sér framkvæmd verksins og að gera fullnaðarteikningar af því, sem þó að sjálfsögðu voru háðar samþykki fulltrúa bæjar- ins. Samningurinn við Höjgaard & Schultz var gerður 15. júní 1939 og var strax tekið til óspilltra málanna að ganga frá teikningum og útvega efni, en nokkru * Mesta rennsli sem til þessa hefir fengizt úr holunum (með loftdælingu) eru rúmir 300 1/sek auk 7 1/sek, sem notað er á staðnum. síðar var vinna hafin hér heima. Um þetta leyti skall stríðið á og nýir erfiðleikar hófust. Loks lokaðist allt samband við Banmörku áður en allar teikningar væru fullgerðar, og aðeins nokkur hluti efnis þess, sem keypt hafði verið, komst hingað. Verkið stöðvaðist alveg um skeið, en loks tókst að fá efni það, sem vantaði, frá Ameríku. Þetta var þó síður en svo erfið- leikalaust og tvisvar var sökkt skipum með efni til hitaveitunnar á leið hingað frá Ameríku. Nú er svo komið, að verkinu er að mestu lokið, enda þótt ýmislegt smávegis sé enn ógert, en fyrir nærri ári síðan, eða 1. des. 1943, var Reykjavatninu hleypt í fyrsta húsið hér í bænum, listasafn Einars Jónssonar myndhöggvara. Nú eru um 2700* hús hituð með Reykjavatni, auk þeirra 70 húsa, sem hituð eru frá Þvottalaugunum. Það verður ekki skilið svo við sögu hitaveitunnar, að ekki sé getið hinna dönsku verkfræðinga, sem að henni hafa unnið á vegum firmans Höjgaard & Schultz. Ég geri þó ráð fyrir, að þeirra verði nánar getið í næsta erindi og skal því aðeins geta þeirra, sem lengst hafa unnið að verkinu hér heima og leyst af hendi mikið starf undir mjög erfiðum skilyrðum. Má þá fyrst nefna Kaj Langvad, sem verið hefur yfirverkfræðingur firmans hér frá byrjun, svo og þá E. Lundgaard og B. Fanöe, sem unnið hafa hér allan tímann meðan á byggingunni stóð, og loks Suhr Henriksen, sem kom að verkinu frá Laxárvirkjuninni, þegar henni var lokið og var við það þar til verkið stöðvaðist af völdum ófriðarins, en upp úr því fór hann til Ameríku. Þótt ég hafi nokkrum sinnum hér að framan getið Valgeirs Björnssonar, fyrv. bæjarverkfræðings, þá vantar mikið á, að það gefi rétta hugmynd um þann mikla þátt, sem hann á í framgangi þessa máls, en ég geri ráð fyrir, að okkur sé það öllum svo kunnugt, að ég þurfi ekki að lýsa því nánar. Ég verð að láta þetta nægja um sögu málsins og þá menn, sem að því hafa unnið, enda þótt margir fleiri ættu það skilið að þeirra væri getið. Lýsing. Ég mun þá snúa mér að því að lýsa mannvirkinu. 'Mun ég fyrst lýsa því í aðalatriðum, en því næst ræða nánar einstök atriði. Við skulum þá fara sömu leið og hið heita vatn, frá uppsprettunum til bæjarins og inn í einstök hús í bænum. Á hverasvæðinu hjá Reykjum í Mosfellssveit hafa verið boraðar 35 holur** 4—8” víðar og 135—721 m djúpar, auk 3 hola, sem ameríski herinn boraði, og tveggja lauga, sem notaðar hafa verið án borana. Þessar holur eru á víð og dreif um jarðhitasvæðið, sem er að minnsta kosti 1 km að lengd og y2 km á * Þessi tala gilti, þegar erindið var flutt, nú eru húsin 3000. ** Nú eru holurnar orðnar 43.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.