Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 15
TÍMARIT V.F.Í. 1947
37
það hlutverk að skammta húsinu hæfilega mikið vatn,
vatnsmæli, sem mælir notkunina, og einstreymishana,
sem hindrar það, að vatn, sem búið er að mæla, renni
aftur gegnum mælinn.
Sökum þess að þrýstingurinn í bæjarkerfinu er mis-
munandi eftir álaginu, hefði verið æskilegast, að
hemillinn hefði ávallt gefið sama vatnsmagn óháð
þrýstingnum í götuæðinni og að þetta vatnsmagn hefði
mátt stilla eftir hitaþörf viðkomandi húss. En þar
sem slíkir hemlar eru ekki til, er hemilstillingin
þannig, að hæfilegt vatnsmagn fæst, þegar þrýsting-
ur í götuæð er við lágmark, þ. e. þegar kaldast er og
vatnsnotkunin mest. Við minni notkun og hærri þrýst-
ing í götuæð gefur hemillinn meira og verður þá að
draga úr rennslinu með stillihana, sem er á tengiæð-
inni innan við hemil og mæli. Hani þessi er ætlaður
notanda til daglegrar stillingar, og þessi galli hemils-
ins, sem fyrr er nefndur, veldur því, að sama stilling
á stillihananum gefur mismunandi vatnsmagn eftir
því, hvernig þrýstingurinn er.
Innan við hemil og mæli, en utan við stillihanann
er stútur fyrir baðvatn. IJr þeim stút má fá heitt
vatn til baða og þvotta, sé frárennslisvatnið ekki not-
að, og er þá sérstakur lokunarhani fyrir þá lögn.
Með sérstökum útbúnaði má koma því svo fyrir,
að nota megi frárennslisvatnið á veturna og þann
hluta ársins, sem það er nógu heitt, en heitt vatn
um beina sambandið á sumrin, þegar frárennslið
verður of kallt eða enginn hiti er hafður á húsinu.
Eins og sjá má af þessu, er hveravatninu veitt beint
inn á hitunarkerfi húsanna. Það dreifist til ofnanna
á sama hátt og í kolakyntum kerfum, kólnar þar og
leitar aftur niður að katli eða upptökum kerfisins.
Niðri við ketilinn, eða þar, sem komnar eru saman
pípur frá öllum ofnum kerfisins, er frárennslinu veitt
burt úr kerfinu. Var upphaflega hugmyndin að leiða
frárennslið upp fyrir efstu ofna, svo að kerfið gæti
ekki tæmzt, en eins og fyrr er sagt, voru engin tök á
að gera þetta, og var frárennslinu því, til bráðabirgða,
veitt skemmstu leið í skolpveitu. Til þess að halda
vatninu uppi í kerfinu var hafður sérstakur hemill
eða hani á frárennslinu, sem veitti hæfilega mótstöðu,
þegar fullt vatnsmagn rann gegnum kerfið, og annar
stillihani fyrir notanda til þess að auka mótstöðuna,
þegar lítið rann og loka fyrir útrennslið samtímis
innrenslinu. Síðar hafa ýmsir orðið til að leiða frá-
rennslið upp fyrir ofna, enda er það æskilegast. Þegar
svo er komið, má stilla eða loka fyrir hita hvers
kerfis með einum hana á innrennslinu.
Þar, sem hitaveitan var tengd við hitunarkerfi, sem
áður höfðu verið kolakynt, var þenslukerið lokað
frá kerfinu, svo að ekki rynni vatn upp um það, því
það hefði bæði getað valdið spjöllum og truflað jafna
hitun.
Þegar búið er að hleypa hita á kerfi og jafnvægi er
komið á, rennur jafnmikið vatn inn á kerfið og út af
/ Inntak' meb renni/oka. hem//, mce// og c/nstreym/shano.
2 /S/tomce/ar ó fram- og boA-rens//
3 fienni/ok/ a sambanc/mu m/Z/t fram- og bokrens/is
4. frárens/ispipct fró m/dstóövorPerf/ oö bahvatns<geym/
5 13ab - og heitirotns/rerf/
6 þens/uker er tekiö úr sam banct/
7 /3/pa aö vrermireit éba út/hús/.
6 frárens/i frá pónnu
Tilhögun innanhúss, eins og hún var upphaflega ráðgerð.
Indoor arrangement I.
Tilhögun innanhúss, eins og hún varð víðast hvar.
Indoor arrangement II.
Yf/rfa//