Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 21

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Page 21
TÍMARIT V.F.I. 1947 43 sveita, í iðnaði, samgöngum og yfirleitt á öllum sviðum. Á þessari hugsun byggist hin svokallaða „nýsköp- unarstefna“ fyrverandi stjórnar, sem var fyrst og fremst fólgin í því að eignast sem fyrst fullkomin tæki og vinnuvélar til allra verka, til þess að spara mannfólkið, en nota í þess stað mekaniskan kraft, þar sem því yrði við komið, að koma upp verksmiðj- um til að fullvinna afurðirnar og fá út úr þeim sem mest, og að minnst færi til spillis og síðast en ekki sízt til þess að auka framleiðsluafköstin. Og á þessu er einnig byggð hugsun núverandi ríkisstjórn- ar um planökonomiskt samstarf allra þessara tækja og aukning þeirra eftir því, sem við verður komið. — Einnig hér er kallað á verkfræðingana til starfa, og undir því, hvernig þeim tekst hin tekniska upp- bygging, er að verulegu leyti komin afkoma þjóð- arinnar á næstu árum. Því að um það verður ekki deiit, að þar sem þetta hefur tekizt bezt, er „lífs- standard“ fólksins, þjóðarinnar allrar, beztur. Hinu má svo ekki gleyma, að til hvers framleiðslukerfis svarar ákveðið launahámark hinna vinnandi manna, og upp fyrir það má ekki fara, ef allt á að geta gengið eðlilega. Ég er þess vegna þeirrar skoðunar, að með aðstoð tekniskra manna, og þá fyrst og fremst verkfræðinganna, megi takast að losa þjóð- ina að verulegu leyti út úr þeirri sjálfheldu, sem kapphlaup stríðsáranna skapaði, og fyrra hana mestu vandræðunum vegna verðþenslunnar, sem af því leiddi. Hvort þetta tekst eða ekki, verður reynsl- an að skera úr um. Og þó að klifa verði eitthvað niður, ætti það að geta orðið léttara og þægilegra af þessum sökum. Enn ber hér að sama brunni og fyrr: Verksvið verkfræðinganna og verkefni þau, sem þjóðin felur þeim að leysa, verða æ fjölbreyttari og stærri með hverju ári og hafa úrslita þýðingu um líf þjóðar- innar og afkomu. Samtímis þessari breytingu hefur önnur ekki ó- merkileg átt sér stað — á hugsunarhætti og lífs- skoðun þjóðarinnar. — Ég skal nefna tvö lítil dæmi: Þegar ég var í skóla fyrir rúmum 30 árum eða skömmu eftir að þetta félag var stofnað, var ég viðstaddur þar, sem tveir ágætir landskunnir mennta- menn ræddust við um landsins gagn og nauðsynjar. Hefur sig þá annar upp úr eins manns hljóði og segir: Heldurðu nú ekki, að heimurinn kæmist nokk- urn vegin jafnvel af, þó að engin matematik væri til? Ég man, hvað ég var hneykslaður. Því að í þá daga var ekkert, sem ég bar eins takmarkalausa respekt fyrir og matematikin. Nú getur raunar meir en verið, að þessi mæti maður hafi ekki meint nokk- urn skapaðan hlut með spurningunni, en hitt er jafn- víst, að í þá daga var fjöldi manna, sem taldi hik- laust óhætt að svara spurningunni játandi. Ég nefni annað dæmi nýrra. Ég var fyrir stuttu síðan með gömlum virðulegum embættismanni og fleirum að ræða um eitthvað, sem ég man nú ekki lengur hvað var, nema það var eitthvað tengt við Hornafjörð. Hann segir þá: Hver var prestur í Bjarnarnesi árið þetta og þetta, sem hann tiltekur. Engin viðstaddra gat svarað spurningunni. Þær snuprur, sem við fengum fyrir menntunarskort yngri kynslóðarinnar, ætla ég ekki að endurtaka hér, en þær voru ekki all- litlar. Fyrir honum var það sjálf- sagt menningaratriði að kunna skil á embættismanna- tali þjóðarinnar og annað velflest í raun og veru hégómi hjá því. Ef þetta er borið saman við það, sem þeirri kynslóð er hugstæðast, sem nú er að alast upp, þá verður allt annað upp á teningnum. Hún hugsar fyrst og fremst um mekanik og teknik yfir- leitt, ekki um embættismannatöl og sögur. Hún hugs- ar um bíla og svifflugvélar, um radio og sjónvarp o. þ. h. Það er engin tilviljun, að Iðnskólinn í Reykja- vík er orðinn stærsti skóli landsins með um 1000 nemendur og að iðnnemar á landinu eru nú orðnir hátt á 2. þúsund og árlega bætast við um 600. — Og þetta gerist samtímis því, að bændaskólinn á Hólum er aðeins hálfsetinn og á Hvanneyri vantar Vi á, að skólinn sé fullskipaður. Þetta þýðir bersýnilega, að hugur ungu kynslóð- arinnar stefnir þangað, sem tæknin er, og segja mætti mér, að þegar landbúnaðurinn, hefur tekið tilsvarandi tækni í þjónustu sína og iðnaðurinn, þá muni ekki lengur verða jafn fáliðað þar og nú. Ég hefi með þessum fáu orðum mínum viljað leitast við að sýna fram á 1 aðalatriðum þetta: 1) Að hugarfar þjóðarinnar, sem „í 1000 ár hefur setið við sögur og ljóð“, hefur mjög verið að breytast nú á síðustu árum, þannig að hugur hennar beinist nú frekar en nokkru sinni áður að hinum teknisku viðfangsefnum. 2) Að þjóðinni ríður nú meira á en nokkru sinni fyrr, til þess að þjóðfélagslegt jafnvægi hald- ist, að verkfræðingar hennar og aðrir tekniskt menntaðir menn leysi aðkallandi verkefni at- vinnulífsins. 3) Að gildi vísindalegra og tekniskra rannsókna er nú almennt viðurkennt og varið til þeirra meira fé en til sjálfs háskólans. 4) Að íslenzkir verkfræðingar hafa leyst af hólmi erlenda stéttarbræður sína hér og tekizt með prýði að leysa þau verkefni, sem þeim hafa hingað til verið fengin. Og loks, 5) að meira fé er nú veitt til tekniskra fram- kvæmda en nokkru sinni áður bæði í krónum og hlutfallslega af ríkisútgjöldum. Hlutverk V. F. I. og starf félagsins, sem slíks, hlýtur að verulegu leyti að hafa mótazt af þessu.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.