Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Qupperneq 5

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Qupperneq 5
TlMARIT V.F.l. 1951 51 flöt, eins og t. d. sést af því, að kvartera grágrýtið leggst beint ofan á þennan basaltflöt, mótaðan í hall- andi spildur, um neðanvert Grímsnes. En um Flóann eru kvarteru myndanirnar, sem væntanlega hafa þakið svæðið, étnar burt. Eftir afstöðunni við Ingólfsfjall að dæma, mætti í fyrstu ætla, að þessi basaltflötur gengi lárétt innundir Ingólfsfjall. En svo er ekki, því eins og áður segir ligg- ur tertíeri rofflöturinn þar í tæplega 200 m hæð. Það er því ljóst, að þegar rofflöturinn myndaðizt, hefur verið dæld í basaltið þar sem nú er Ingólfsfjall, og þar hefur forn móbergsþekja á basaltinu orðið eftir undir roffletinum. Og í öðru lagi er ljóst, að eftir að hinar árkvarteru myndanir höfðu lagzt yfir rofflötinn, sem í aðalatriðum verður að teljast í óhaggaðri upphaf- legri legu um Flóa og Grímsnes, lyftist Ingólfsfjall um brúnirnar um tæpa 150 m, en meira um miðjuna. Lyft- ingin náði einnig til Grafningsfjallanna, eins og síðar verður nánar sýnt, en það er ahyglisvert að lyft.ing þeirra hefur gerzt miklu fyrr en hin síðkvartera lyft- ing, sem skóp Hengil og önnur aðalform Reykjanesfjall- garðsins, og rætt var um I almenna kaflanum. Sést það greinilega á þroskuðu eyðingarformi yfirborðsins á fyrr- nefndum fjallaklasa, jöfnum, breiðum dældum og kúp- um i stað hvassra brúna. Þetta þroskaða form snög'g- hverfur við línu, sem dregin væri vestan undir Reykja- fjalli, Selfjalli og Klóarfjalli. Vestan linunnar hefst svæð- ið með hinni siðkvarteru umturnun. Fyrri lyftingin hef- ur sennilega orðið snemma á kvarter eða skömmu eftir sköpun árkvarteru myndananna. Ekki er vel greinilegt, hvort lyfting sjálfs Ingólfsfjalls er eins gömul og Grafn- ingsfjallanna. Þessi gamla lyftíng Grafningsfjalla hlýtur að vekja grun um, ,að meira af Reykjanesfjallgarðinum kunni að einhverju leyti að hafa myndazt svo snemma. 1 því sam- bandi má benda á Húsmúlann við Kolviðarhól. Það er ávalur múli úr grágrýti með mjög eyddu formi, og upp úr þvi rís hið miklu yngra form Sleggju og áfastra hryggja. En önnur dæmi um svo gamalt form á fjall- garðinum er ekki með vissu hægt að benda á, og öll aðalmisgengin eru ótvírætt mjög ung. Eyðingin á Grafningsfjöllunum veldur því, að grá- grýtið, sem eins og á Ingólfsfjalli, mun þar hafa þakið unga móbergið er með öllu horfið og kvartera mó- bergið er víða mjög eytt. Torveldar þetta afmörkun brotspildna á þessu svæði. En tertíeri rofflöturinn finnst í Reykjafjalli og það upplýsir byggingu svæðisins. Fyrir ofan Svaða er rofflöturinn i brún Reykjafjalls í um 280 m hæð eða 100 m hærra en í Ingólfsfjalli. Hann er þó ekki láréttur hér, heldur hækkar hann inn með fjallinu til Selfjalls og Klóarf jalls, og nær þar allt að 400 m hæð, en lækkar út með fjallinu, allt að Sogni, og þó mest á móts við Reyki, og með misgengi skammt vestan við Sogn færist hann, ásamt kvartera móberg- inu, niður á jafnsléttu. Þaðan liggur hann svo láréttur út undir Suðurlandsbraut og austur og suður um Kot- strönd. Þar er komið á óraskað svæði austan við línuna Kotströnd—Arnarbæli. Um byggingu Reykjafjalls er þetta að segja: Við rætur þess kemur fram ellilegt bas- alt, skorið af göngum. Basalt nær upp í um 120 m y.s. austan við Svaða, en það virðast vera forn innskots- lög. Fomlegt basalt er i Varmárgili á þessu bili, báðum rnegin árinnar. Basaltið fellur nokkuð til Sauðárdals og um Reykjakot nær það lítið eitt upp fyrir Varmána, í um 80 m hæð. Borhola I við Reykjakot lá í þessu basalti. Ofan á basaltinu við Svaða liggur þykkt lag af nokk- uð ummynduðu ellilegu þursabergi. Á því hvílir lag úr brúnu konglomerati með vel unnum, ávölum basaltvöl- um, yfir 5 m þykkt. Loks koma 20—25 m af porfyrít- ískum grágrýtislögum með fáeinum brúnum konglomerat millilögum, og er þá komið upp að tertiera roffletinum. Yfirborð grágrýtismyndunarinnar er ísrákað og þakið lagi af jökulruðningi, en ofan á hann leggst loks mjög fersklegt móberg, þ. e. upphafleg eldgosa breksía. Gamalt misgengi hefur klippt sundur þetta grágrýti, en misgengið er algerlega jafnað við rofflötinn, og er grágrýtið numið burt sunnan misgengislínunnar, þar sem mikið kúlubasalt er komið i stað þess. Grágrýtið kemur þó aftur í ljós sunnar og liggur undir rofflet- inum allt út að Sogni. Sumsstaðar á fjallsbrúninni má sjá basaltganga, sem ná upp að roffletinum, en ekki upp í jökulruðninginn sem þekur hann, og fleiri merki mikillar eyðingar um rofflötinn eru greinileg. Á mynd 1 er sýnt hvernig umhorfs er við rofflötinn við fyrrgreint misgengi. Mynd 1. Mót tertíers og kvarters í Reykjafjalli. 1 konglomerat. 2 grágrýti. 3 jökulruðningur. 4 móberg. 5 kúlubasalt. Roffletinum má, eins og áður segir, fylgja óslitið suð- ur og austur eftir brún Reykjafjalls. Er hann allstað- ar mjög skýr, markaður af jökulruðningi og ísrákum, afskornum göngum eða skörpum mótum milli gamals og fersks móbergs. Þarna koma fram á mótunum sérkennilegir, stuðlaðir basalthnúðar. Þeir eru einnig áberandi við Kotströnd og austan undir Ingólfsfjalli, þar sem þeir einnig fylgja roffletinum, en nákvæm afstaða til rofflatarins eða upp- runi þeirra er ekki ljós. Unga móbergið er komið niður á undirlendi nærri Sogni, eins og áður segir, og breiðir sig út undir Suður- landsbraut, þar sem það loks er algerlega eytt ofan af roffletinum, enda þótt það hafi mikla þykkt sumstaðar á Grafningsfjöllum og sérstaklega Ingólfsfjalli. Það er þannig á undirlendinu sem eyðingin hefur orðið mest. Verður að ætla, að stórár, sem vaðið hafa um undir- lendið, valdi hér mestu um. Það er óhjákvæmilegt að ætla, að á svæðinu sunnan Grafningsfjalla hafi eyðst yfir 100 m þykkt lag af kvart- eru móbergi og grágrýti, og sama er að segja um stórt svæði austan Ingólfsfjalls. Vestan Sauðár og Klóarfjalls tekur við, eins og áður segir, svæðið er varð fyrir truflunum seint á kvarteri. Hér mætir manni hið rifna og tætta landslagsform. Truflunin kemur þó ekki fram í verulegum hæðabreyt- ingum miðað við eystri fjöllin, fyrr en kemur þá að Hengli sjálfum, heldur i rifnun landsins, sem sumpart stóreykur rofið, eins og á svæðinu austur af Reykja- dal. Hryggurinn milli Sauðár og Grensdalsár er úr fornu

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.