Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Síða 25

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Síða 25
TlMARIT V.F.l. 1951 71 Rannsóknir á gufu og vatni úr borholum i Hveragerði og nágrenni. Eftir Baldur Líndal. Verlcsvið. Dagana 22. til 29. nóv. 1949 voru gerðar efnagrein- ingar á vatni og gufu úr eftirtöldum 3 borholum í Hvera- gerði og nágrenni: Staður Dýpt Vídd m mm I) Hveragerði (1946) . . . .... 51 152 II) Garðyrkjuskóli .... 27 152 III) Reykjakot (1943) .... .... 22 89 Ákvarðað var vatnsinnihald og gasmagn gufu, gas og kondensat gufunnar efnagreint. Framangreindar borholur höfðu allar vatnsskilju. Rannsóknaáliöld. Varmamælir, sem var sérstaklega til þess gerður, var notaður við ákvörðun vatnsmagns í gufunni, og við hann voru tengd tæki til þess að mæla hveralofts- magnið og til þess að taka gasprufur. Tæki þessi voru höfð undir tjaldi, meðan á athugun stóð, til þess að veðurbreytinga gætti sem minnst. Tækin voru tengd við vatnsskiljurnar með 3 metra langri gúmmíslöngu, %" að utanmáli. Slangan var þykk og sæmilega ein- angruð. Varmamælirinn er gerður úr 2 mm járni. Lok fellur þétt niður á brúnirnar að ofan. Hann er einangraður utan með asbestplötum. Gufan þéttist í %" járnrörs- spíral, sem er umlykktur 60 lítrum af vatni. Gufan kemur inn að ofan en kondensatið frá að neðan. Hand- snúin sveif er upp í gegnum lokið. Snýr hún blöðum niður við botn varmamælisins, sem valda hringrás á vatninu frá botni, upp með hliðum og niður um miðju. Við frárennslið er tengt glerté, þar sem kondens- atið rennur niður aðra álmuna, en hveraloftið gengur upp hina. Neðan frá ténu liggur gúmmileiðsla í þær, sem tekur við kondensatinu, og er endi leiðslunnar jafnan hafður neðan vatnsyfirborðs. Hveraloftið gengur efst upp i gasgeyminn um glerpípu. Gasgeymirinn, sem er gagnsæ 4 lítra flaska á hvolfi, inniheldur vatn með 20% NaCl og 2% HCl, til þess að hindra ,,absorbtion“ hveraloftsins. Gasgeymirinn er „merktur" sam- kvæmt mælingu, til þess að hægt sé að lesa af, hve mikið loft er í honum. Gasgeymisvökvinn er tengdur með gúmmíslöngu við aðra flösku, sem tekur við honum jafnóðum og loftið ryður honum í burtu. Flaska þessi er færanleg upp og niður eftir hentugleikum. Öll samskeyti við gúmmislöngur eru þétt með vír- benslum. Á leiðslunni inn í gasgeyminn er glerté, til þess að hægt sé að taka gasprufur. Er þá hægt að loka fyrir leiðsluna inn í geyminn með skrúfaðri klemmu. Gasprufuleiðslunni er einnig lokað með skrúfaðri kjemmu. Tæki til efnaákvarðana eru eingöngu „standard" tæki. Ákvörðun vatns í gufu. Aðferðin er eftirfarandi: 1. Gufu hleypt á varmamæli, þrýstingur í borholu athugaður. 2. Látnar líða um 10 mín og hrært jafnt í varmamæli. 3. Loki lyft af og hiti mældur á vatni, kondensat ker sett undir, byrjunartími lesinn. 4. Hrært jafnt í varmamæli um 20 mín. 5. Hiti mældur í varmamælisvatni, timinn lesinn og kondensat mælt. Við útreikninga var tekið tillit til vatnsgildis varma- mælisins, sem reyndist 8,0 lítrar. Það var fundið með þvi að láta fyrst í hann 40 lítra af köldu vatni, siðan 20 litra af heitu vatni, hræra í og mæla hitann eftir samlögun. Ennfremur var tekið tillit til hitastuðuls varmamæl- isins k, sem reyndist 0,154 kg°/mín.°C. Hann var ákvarðaður með því að athuga, hve hratt vatnið í varma- mælinum kólnaði við þau skilyrði, sem hann var notaður. Ef: /^T = hitabreyting á vatni í °C. /\t = tíminn, sem ákvörðunin tekur í mín. Ta = meðalhiti vatnsins í °C. L = kg kondensat, G = kg gufa. Þá er: 68,0 . /\JY + ^t (Ta — 5) k = L (100 — Ta) + G . 540 Mælingar. Þrýst. AT Ta lítrar Borhola kg/cm2 abs v.mælir °C v.mælir °C mín. Kondensat I 1,85 7,8 58 19 3,940 I 1,85 10,4 70 20 4,280 I 1,85 14,8 74 35 7,500 II 1,50 10,4 40 25 7,140 II 1,60 5,0 70 28 6,660 III 2,00 9,8 83 20 3,740 III 2,00 14,0 70 25 4,620

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.