Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Qupperneq 25
DV Sport FÖSTUDACUR 2. JANÚAR 2004 25 Handboltamaðurinn Ólafur Stefánsson fékk sögulega útnefningu hjá Samtökum íþrótta- fréttamanna daginn fyrir gamlársdag. Hann er fyrsti handboltamaðurinn sem verður íþróttamaður ársins í annað sinn og enginn íþróttamaður úr hópíþrótt hefur fyrr náð að verja titilinn. Fypstur öp hópíþrútt til að vinna 2 ár í röð Handboltamaðurinn Ólafur Stef- ánsson varð daginn fyrir gamlárs- dag ellefti íþróttamaðurinn sem kemur úr hdpíþrótt til að hljóta út- nefninguna íþróttamaður ársins. Hann varð ennfremur annar hópí- þróttamaðurinn til að vinna titilinn í annað sinn, ásamt knattspyrnu- manninumÁsgeiri Sigurvinssyni, en aftur á móti sá fyrsti sem kemur ekki úr einstaklingsíþrótt til að vinna styttuna góðu annað árið í röð. Ólafur sem á árinu lék aðalhlut- verk með handboltalandsliðinu sem tryggði sér 7. sætið á HM í Portúgal og komst inn á Ólympíuleika í fyrsta sinn í 12 ár, spilaði og vann titil með tveimur af sterkustu handboltafé- lagsliðum heims á árinu, Evrópu- meistaratitil með Magdeburg í Þýskalandi og deildarbikarmeistara- titil með Ciudad Real á Spáni og var síðan kosinn besti handboltamaður ársins af öðrum leikmönnum í þýsku Bundesligunni. Ólafur hlaut 322 stig, 48 stigum fleira en knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen en knattspyrnu- konan Ásthildur Helgadóttir varð síð- an í þriðja sæti, 172 stigum á eftir Ólafi. ooj@idv.is ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS Annað árið í röð hjá Óiafi Olafur Sletáns'.on varð aðeim Ínnmíi Isleníki iþiútlamaðunnn urn fær arwað árið i rödað handteika hinn glæslléga farandbikar sem fyhjirfw'að veröa kosinn Iþrúnamaöur ársins. Ólafw sesl herlyfui bikarnum eftir útnelninguno 30. desember siðastiiðinn. DV-myndRóbert TIU EFSTU I KJORINU FYRIR ARIÐ 2003 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. Ólafur Stefánsson, Magdeburg/Ciudad Real Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea Ásthildur Helgadóttir, Malmö/KR Örn Arnarson, ,SH Jón Arnór Stefánsson Dallas/Trier Jón Arnar Magnússon, Breiðablik Karen Björk Björgvinsdóttir, (R Hermann Hreiðarsson, Charlton/lpswich Ragnhildur Sigurðardóttir, GR Þórey Edda Elísdóttir, FH 322 stig 274 150 126 105 57 57 45 44 32 Það hafa alls 32 íþróttamenn verið kosnir íþróttamenn ársins þar af hefur Vilhjálmur Einarsson hlotið þessar útnefningu oftast eða alls fimm sinnum. Handbolti Knattspyrna Knattspyrna Sund Körfubolti Frjálsar Dans Knattspyrna Golf Frjálsar 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar Vilhjálmur Einarsson, frjálsar Vilhjálmur Einarsson, frjálsar Valbjörn Þorláksson, frjálsar Vilhjálmur Einarsson, frjálsar Vilhjálmur Einarsson, frjálsar Guðmundur Gíslason, sund Jón Þ. Ólafsson, frjálsar Sigriður Sigurðardóttir, hand. Valbjörn Þorláksson, frjálsar Kolbeinn Pálsson, karfa Guðmundur Hermanns., frjál. Geir Hallsteinsson, handkn. Guðmundur Gislason, sund Erlendur Valdimars., frjálsar Hjalti Einarsson, handkn. Guðjón Guðmundsson, sund Guðni Kjartansson, knattsp. Ásgeir Sigurvinsson, knattsp. Jóhannes Eðvaldsson, knatts. Hreinn Halldórsson, frjálsar Hreinn Halldórsson, frjálsar Skúli Óskarsson, lyftingar Hreinn Halldórsson, frjálsar Skúli Óskarsson, lyftingar Jón Páll Sigmarsson, lyftingar Óskar Jakobsson, frjálsar Einar Vilhjálmsson, frjálsar Ásgeir Sigurvinsson, knattsp. EinarVilhjálmsson, frjálsar Eðvarð Þ. Eðvarðsson, sund Arnór Guðjohnsen, knattsp. Einar Vilhjálmsson, frjálsar Alfreð Gíslason, handkn. Bjarni Friðriksson, júdó Ragnheiður Runólfsd, sund Sigurður Einarsson, frjálsar Sigurbjörn Bárðarson, hestar Magnús Scheving, þolfimi Jón Arnar Magnússon, frjálsa. Jón Arnar Magnússon, frjálsa. GeirSveinsson, handkn. Örn Arnarson, sund Örn Arnarson, sund Vala Flosadóttir, frjálsar Örn Arnarson, sund Ólafur Stefánsson, handkn. Ólafur Stefánsson, handkn. TVO AR I ROÐ HJA OLA Ólafur Stefánsson var valinn íþróttamaður ársins annað árið í röð fyrir árið 2003 og var enn- fremur þriðja árið í röð meðal tveggja efstu í kjörinu. Ólafur hefur sex sinnum verið meðal þeirra tíu efstu í kjöri Samtaka íþrótta- fréttamanna. Ólafur Stefánssonar á topp tíu: 2003 fþróttamaður ársins 2002 íþróttamaður ársins 2001 2. sæti 2000 10. sæti 1999 4. sæti 1998 Ekki á topp 10 1997 7. sæti Sá sjöundi Handboltamaður var nú valinn íþróttamaður árins í sjöunda sinn en aðeins frjálsíþróttafólk (21) og sundfólk (8) hafa hlotið þessa útnefningu oftar. Knattspyrnumenn hafa fimm sinnum verið valdir íþróttamenn ársins af Sam- tökum íþróttafréttamanna en það eru liðin 16 ár síðan Arnór Guðjohnsen var val- inn síðast 1987. Flestir í ár í fyrsta sinn síðan nú- verandi fyrirkomulag kjörs Samataka fþróttafrétta- manna var tekið upp (1988) voru íjórir hópíþróttamenn meðal þeirra fimm efstu í kjörinu en sundmaðurinn Örn Arnarson var eini íþróttamaðurinn úr ein- staklingsíþrótt sem komst inn á topp fimm í kjörinu fyrir árið 2003. Aðeins einu sinn áður, árið 1989, höfðu líka íþróttamenn úr hóp- íþróttum skipað þrjú efstu sætin líkt og nú. Sjo ar i roð Sundmaðurinn Örn Arn- arson hafði verið í efstu tveimur sætum kjörsins fimm ár í röð (1998-2002) fyrir kjörið í ár en náði engu að sfður að vera meðal þeirra fimm efstu sjöunda árið f röð. örn var kosinn íþróttamaður ársins 1998, 1999 og2001 ogvarð síðan í öðru sæti 2000 og 2002. Örn varð í fjórða sæti í kjör- inu f ár og í 5. sætinu 1997. Áttunda skiptið Tugþrautarmaðurinn Jón Arnar Magnússon var í áttunda sinn á topp tíu list- anum yfir bestu íþrótta- menn ársins en frá árinu 1994 hefur hann aðeins misst úr tvö ár, 1999 og 2000, meðl þeirra tíu efstu í kjörinu. Hækkar sig 4. árið Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohhsen hefur hækkað sig í kjöri Samtakanna fjögur ár í röð og til þess að svo verði áfram þarf hann að verða kosinn íþróttamaður ársins 2004. Eiður Smári varð í 6.sæti 2000, í 5.sæti 2001, í 4. sæti 2002 og loks í öðru sæti í kjörinu í ár. Fjórar konur Aðeins í annað sinn í sögunni voru fjórar konur meðal þeirra tíu efstu en það gerðist einnig árið 1998. 1998 voru konurnar í 3. sæti (Vala Flosdóttir), 4. sæti (Guðrún Arnardóttir), 9. sæti (Ragnhildur Sigurð- ardóttir) og 10. sæti (Elva Rut Jónsdóttir). í kjörinu í ár varð Ásthildur Helga- dóttir í 3. sæti, Karen Björk Björgvinsdóttir í 6. til 7. sæti, Ragnhildur hlaut það níunda og tíunda sæti varð Þórey Edda Elísdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.