Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Side 27
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 27
Eurovision í
hryöjuverka
Óttinn við hryðjuverkaárásir gæti orðið tili
þess að Eurovision söngvakeppnin verði ekki
haldin í Tyrklandi næstkomandi vor. Tyrkir,
sem sigruðu keppnina í Letdandi í fyrra með
framlagi söngkonunnar Sertab Erener, hafa á
síðustu mánuðum orðið illa fyrir barðinu á
hryðjuverkamötmum og hefur þetta vakið upp
ótta hjá öðrum keppnisþjóðum £ Eurovision,
sérstaklega Bretum.
Ákörðun tekin á næstu vikum
Þann 19. nóvember síðsdiðinn var árás gerð
á tvö bresk skotmörk í Istambul og í kjölfarið
hafa háttsettir menn hjá BBC sett ákveðið
spurningamerki við staðsetningu keppninnar
þar sem þeir telja sig ekki geta tryggt öryggi
þegna Bretlands í Tyrklandi. Tyrkirnir sjálfir
segjast hins vegar vera fullfærir um að halda
keppnina og segjast munu gera allt til þess að
tryggja að keppendur, blaðamenn og aðrir gest-
ir verði ekki skotmark hryðjuverkamanna. For-
svarsmenn EBU, samtaka Evrópskra sjónvars-
stöðva, hafa hins vegar lítinn áhuga á því halda
Eurovision keppnina í skugga mikils ótta og ör-
yggsgæslu og því er allt eins líklegt að keppnin
verði færð frá Tyrklandi yfir á öruggari stað.
Daninn Jorgen Ramskov, sém á sæti í skipu-
lagsnefnd keppninnar, segir að málið verði rætt
á komandi fundi þann 15. janúar.
„Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun
um þetta en okkur þykir nokkuð ljóst að ef frek-
ari hryðuverkaárásir verði framdar í Istambul
verði alvarlega að kanna þann möguleika að
færa keppnina annað, hvort að hún verði þá
haldin annars staðar í Tyrklandi eða í öðru
landi. Auðvitað vonum við að ekki komi til þess
að færa keppnina en ef margar þátttökuþjóðir
munu ákveða að draga sig út úr keppninni í
Tyrklandi er þó lfldegt að reynt verði að finna
einhverja málamiðlun,“ segir Jargen en bætir
því við að allra síðasta úrræðið verði að skipta
um staðsetningu á keppninni.
isléndingar hafa þátttökurétt í næstu
Eurovision keppni eftir að Birgitta Haukdal
söng sig í 9. sætið í Lettíandi í fyrra en ekki er al-
veg komið á hreint hvert framlag íslands verður
árið 2004. Það mun þó ekki verða efnt til und-
ankeppni líkt og síðast heldur munu menning-
arvitar Ríkissjónvarpsins velja framlagið sjálfir
að þessu sinni.
Komst lífs af Húsvikingurinn Birgitta Haukdal söng sig
inn í hjörtu Evrópubúa i Eurovision i fyrra og komst lifs af.
Nú er útlit fyrir að keppnin verði færð frá Tyrklandi þar sem
átti að halda hana i vor vegna ótta við hryðjuverk.
luettu vegna
DV.
Fáðu
áskrift
Sími 550 5000
askrift@dv.is
www.visir.is
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Ekkert kynningartilboð.
Engin frídreifing.
Mánaðaráskrift 1.995 krónur.