Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Side 12
72 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004
Fréttir TtV
Fuglinn
Charlie
veldur deilum
Páfagaukurinn Charlie,
sem eitt sinn var fugl Win-
stons Churchill,
heldur áfram að
vera fréttamatur á
Englandi. Eins og
DV greindi frá í
gær er fuglinn orð-
inn 104 ára og
blótar Nasistum
enn af krafti. Dótt-
ir Churchill, lagði Soames,
hafnar hins vegar öllum
fregnum af fuglinum og
segir föður sinn aldrei hafa
átt arnpáfa heldur páfa-
gauk af allt annarri tegund.
Þá segir lafðin að faðir sinn
haft ekki kennt sínum fugli
að blóta eins og haldið hef-
ur verið fram.
Núverandi eigandi
Charlies, Peter Oram, mót-
mælir orðum lafðinnar og
segir tengdaföður sinn hafa
selt Churchill fuglinn
skömmu áður en seinni
heimsstyrjöldin braust út.
Oram segist síðan hafa
eignast Charlie og aðra
fugla sem voru á heimili
Churchill eftir andlát hans
árið 1965. Heimili Churchill
í Chartwell hefur verið
breytt í safn og segja starfs-
menn þar að ekkert í gögn-
um safnsins bendi til að
Charlie hafi verið eitt af
gæludýrum ráðherrans.
Lafðin hefur því hugsan-
lega rétt fyrir sér.
Lýsir
matreiðslu-
háttum
Mannætuófétið, Armin
Meiwes, heldur áfram að
ganga fram af fólki. Réttar-
höld yfir Meiwes eru í full-
um gangi í Þýskalandi en
honum er gefið að sök að
hafa myrt Bernd nokkurn
Brandes og étið hann síð-
an. Meiwes sagði fyrir rétt-
inum í gær að hann hefði
hug á því að gefa upp-
skriftir að mannakjötsrétt-
um í minningabók sem
hann hyggst skrifa. Fylgdu
síðan óprenthæfar lýsingar
á matreiðsluháttum
Meiwes. Sjálfur telur
Meiwes að minningabók
sín muni skila gríðarlegum
hagnaði en spurning er
hvort hún fæst gefin út.
„Það má með sanni segja að á
síðasta ári hafi menn orðið
vitni að víðtækari aðgerðum í
uppbyggingu sveitarféiagsins
en nokkru sinni fyrr á nýliðnu
ári. Með
Landsíminn
tilkomu
Reyðarfjarðar-
ganga munu
íbúar hér eiga
mun greiðari leið
en áður hefur
þekkst og vonir
Steinþór standa til að íbú-
Pétursson, um fjölgi þegar
bæjarstjóri það stendur tii
Austur- boða.Á síðasta
byggðar dr/ sameinuðust
sveitarféiög Búðahrepps og
Stöðvarhrepps og það einfald-
ar alla vinnu fyrir okkur í sveit-
arstjórninni. Nú bíðum við nýs
árs og ég vona að það verði
jafn farsælt.
Skógafoss Ekkiervitað
hverner mennirnir fóru um borð
iskipið. Leitað var i Skógafossi
áður en hann lét úr höfn við fs-
iand en ekkert fannst.
Laumufarþegar úr Skógafossi heppnir að vera á lífi. Sleiktu veggi vélarrúms til að svala
þorsta sínum á leiðinni. Lögreglustjóri á Nýfundnalandi segir þá hafa verið skelfingu lostna,
klappaði þeim og bauð þá velkomna.
BKÚBAFO:
EÍMSKfP
Nýfundnaland Háseti á
Skógafossi sá mennina
laumast frá bordi og
náði að handsama einn
þeirra. Hann var skelf-
ingu iostinn i haldi iskip
stjórnarklefanum þegar
lögregla kom á staðinn.
Laumufarþegamir þrír sem fundust um borð
í Skógafossi á Nýfundnalandi um síðustu helgi
gætu verið sendir til baka á kostnað Eimskipa.
Ekki er vitað hvenær mennirnir fóru um borð í
skipið, en þeir höfðust þar við í vélarrúminu. Að
venju var framkvæmd leit í Skógafossi áður en
hann lét úr höfn hér á íslandi þann 10. janúar
síðastliðinn en ekkert fannst.
Mennirnir eru frá Eríteru, írak og íran. Þeir
leituðu hælis hér á landi en hafði verið synjað
um landvistarleyfi og biðu þess að þeim yrði
fylgt úr landi. Nú eru þeir í yfirheyrslum hjá
kanadísku lögreglunni. Fréttastofan CBC á Ný-
fundnalandi segir að mennirnir hafi búið við afar
erfiðar aðstæður um borð og orðið sér úti um
vatn á leiðinni með því að sleikja raka veggi vél-
arrúmsins.
Á blankskóm í skafli
Háseti á Skógafossi sá mennina laumast frá
borði og náði að handsama einn þeirra. Hann var
„Hann var skelfingu lostinn
þegar ég kom, og það sást
mjög greinilega á honum.
Ég rétti út höndina og sagði
velkominn til Kanada."
í haldi í skipstjórnarklefanum þegar lögregla kom
á staðinn.
„Hann var skelflngu lostinn þegar ég kom, og
það sást mjög greinilega á honum", segir Shane
Burridge, lögreglustjóri, í viðtali við fréttastofu
CBC.
„Ég veit ekki hvernig lögreglan tekur á laumu-
farþegum í öðrum löndum, en hann hefur líklega
verið hræddur við hið óþekkta."
Burridge segir að lögreglan haft ekki lent í
neinum vandræðum með að finna hina mennina
tvo f nýföllnum snjónum. Annar þeirra fannst í
felum undir flutningavagni, vettlingalaus í þunn-
um jakka og sumarskóm.
Velkominn til Kanada
„Ég rétti út höndina og sagði: velkominn til
Kanada," segir Burridge. „Þeir eru heppnir að
vera á lífi eftir þessa erfiðu ferð.“ Þriðji maðurinn
fannst um tvo kílómetra í burtu, skríðandi í snjó-
skafli. Mennirnir tveir sem fundust úti voru flutt-
ir í læknisskoðun á sjúkrahúsi, og síðan í varð-
hald í Argentiu. Burridge lýsir mönnunum sem
samvinnufúsum og kurteisum. Þeir tala aílir
ensku. Ekki er vitað hvert framhaldið verður en
ef yfirvöld í Kanada ákveða að senda mennina úr
landi er það á ábyrgð Eimskipa að koma þeim
aftur til Islands. Til stendur að stórefla eftirlit í
flutningaskipum og hafnarsvæðum Eimskipa, og
er verið að innleiða nýtt öryggiskerft í þeim til-
gangi.
brynja@dv.is
Lagadeild HÍ hefur lækkað lágmarkseinkunn í almennri lögfræði úr sjö í sex.
Metfjöldi nemenda náði prófinu
Metíjöldi náði prófi í almennri
lögfræði við Háskóla íslands á
haustmisseri en einkunnir voru
kunngjörðar í gær. Af þeim 198 sem
þreyttu prófið náðu 78 lágmarksein-
kunninni sex eða 39,4% nemenda.
Upptökupróf í vor bíður væntanlega
þeirra 120 nemenda sem fengu fall-
einkunn að þessu sinni.
Próf í almennri lögfræði hefur
þótt einn erfiðasti hjallinn í laga-
náminu og ríflega helmingur fellur í
prófinu á ári hverju. Fall á sama
prófi í fyrra var 84% en þá náðu 24
nemendur af 173.
Sú nýbreytni var á próflnu nú að
lágmarkseinkunn var sex en ekki sjö
eins og áður. Að sögn Kolbrúnar
Lindu Isleifsdóttur, kennslustjóra
lagadeildar, var breytingin gerð til
að samræma einkunnir innan deild-
Erfitt próf Minna fall var i almennri lögfræði en endranær. Afþeim 198 sem
þreyttu prófið stóðust 78 nemendur kröfur Lagadeildar eða 39,4%.
arinnar en lágmarkseinkunn í öðr-
um fögum er sex. Lagadeildin hefur
sérstöðu að þessu leyti því aðrar
deildir Háskólans miða við lág-
markseinkunnina ftmm.
Það er enginn vafi að
lægri lágmarkseinkunn
hefur mikið að
segja.
prófinu
nú. Af þeim 78 sem stóðust prófið
fengu 51 nemandi lægri einkunn en
sjö; 27 fengu 6 og 24 fengu 6,5. Einn
nemandi bar höfuð og herðar yfir
aðra með einkunnina 8,5 en hærri
sjást sjaldan þegar þetta próf
er annars vegar.
Eiríkur Tómasson,
forseti Lagadeildar, seg-
ir að þrátt fyrir al-
mennt lágar einkunnir
í prófinu hafi nemend-
ur staðið sig vel. „Þetta
próf er allt mjög erfítt
og þeir standa sig vel
sem ná því.“