Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004
Siðast en ekki sist DV
Rétta myndin
Spakmæli á bílrúðu.
Enginn rithöfundur á Nesinu
Tímamót verða í andlegu lífi á
Seltjarnarnesi í kvöld þegar þar
verður stofnað Listavinafélag við
sóknarkirkjuna. Hefur listvinafélag
pjTO ekki áður verið starfrækt á
Nesinu en þar hefur þó
verið rekinn leikklúbbur og kór.
Stofnfundur félagsins verður hald-
inn í safnaðarheimili Seltjarnarnes-
kirkju klukkan 20 í kvöld og eru all-
ir sannir Seltirningar velkomnir.
Markmið félagsins verður að sinna
öllum listgreinum, útbreiða þær og
kynna á Nesinu. Á stofnfundinn
koma góðir gestir og ber þar hæst
Gunnar Kvaran sellóleikara en
hann býr á Valhúsabraut. Ætlar
Gunnar að leika þætti úr Bach-sell-
ósvítu. Þá mun Einar Már Guð-
mundsson, höfundur Engla al-
heimsins, heimsækja stofnfundinn
og lesa valda kafla úr verkum sínum
sem eru íjölmörg. Athygli vekur að
Einar Már er fenginn til að lesa upp
þó hann sé búsettur í Grafarvogi.
Enginn rithöfundur mun eiga lög-
heimili á Seltjarnarnesi.
Einar Már
Sóttur upp I Grafarvog.
• Meistarakokkurinn Sigurður
Hall, sem í stjörnuspá DV í síðustu
viku var sagður 59 ára, er ekki orð-
inn aldraður fyrir aldur fram. Hinn
magnaði matreiðslumeistari er
sýnu yngri, en hins vegar er nafni
hans sem stýrir
glerverksmiðjunni
Ispan í Hafnarfirði,
aðeins einu ári
vant í sextugt. Og
það var einmitt
glermaðurinn sem
átti afmæli fyrir
helgina og er þeim
fyrrnefnda hér árn-
að allra heilla. Af kokkinum er það
að segja að hástemmd lýsing á kost-
um hans og göllum sem fylgdi
Síðast en ekki síst
stjörnuspánni þótti honum ekki
passa rétt mátulega við sjálfan sig
nema að hann væri „umhyggjusam-
ur elskhugi," eins stjörnuspekingar
blaðsins komst að orði...
• í gær kom út hjá Máli og menn-
ingu bókin Fiskiveisla fiskihatarans
eftir Gunnar Helga Kristinsson pró-
fessor í stjórnmála-
fræði. Hann er yfir- -
lýstur fiskihatari,
en lætur þó skyn-
semina ráða og
borðar fisk alltaf
annað veifið til
þess viðhalda
nauðsynlegri fjöl-
breytni í fæðu
sinni. Og til þess að gera sér fiskinn
léttbærari leitar hann fanga í upp-
skriftum frá ýmsum tímum og fisk-
urinn sem íjallað er um fbókinni
eru ýsa, krókódílar og allt þar á
milli. Og útkoman úr þessu öllu er
bók sem er í senn matarsagnfræði,
kostulegar frásagnir og uppskriftir
sem eru í senn girnilegar, skemmti-
legar, kaldhæðnar...
• Kristín Ómarsdóttir hefur gert
útgáfusamning við Bókaútgáfuna
Sölku og mun ný
skáldsaga hennar
koma út hjá Sölku
á árinu. Þetta þykir
til tíðinda heyra
þar sem Kristín
hefur gefið út hjá
Máli og menningu
til fjölmargra ára.
Kristín dvelur nú í
Barcelona við ritstörf...
• Vísnahöfundurinn Lúkas er alltaf
duglegur að fylgjast með því sem
gerist í þjóðmálunum. Umræða um
vanhæfi Péturs Blöndal í efnahags-
og viðskiptanefnd varð honum til-
efni til eftirfarandi vísukorns:
Góði hirðirinn
Einkavæöa ömmu má,
auðurinn nýtist betur.
Syndum hlaðinn sígur á,
sálarkreppu Pétur.
Ríkisstjórnin verst í vök,
verðurfœrt í letur.
Líðurfyrir lausatök,
lyklum klingir Pétur.
Ein er vörn sem velja má,
virða ömmu tetur.
hengja upp á hœstu rá,
hirðusaman Pétur.
Ríkasti maður íslands Hvað fengi
Björgolfun íyrir milljarðana 65?
Enginn íslendingur nú um
stundir er jafn rækilega ioðinn um
lófana og Björgólfur Thor Björgólfs-
son. Jafnvel er hann föðurbetrung-
ur; hefur tekist að toppa karl föður
sinn hvað varðar auðlegð og efni og
einsog kom fram í Helgarbiaði DV
eru veraldlegar eignir hans nú metn-
ar á um 65 milljarða króna. Þær eru
að stofni til bjórgróði frá Garðaríki -
en þessa fjármuni hafa feðgarnir og
Magnús Þorsteinsson félagi þeirra
notað til margvíslegra fjárfestinga
hér á landi svo íslenska hagkerfið
hefur sporðreist. En hvað má fá fyrir
65 milljarða króna. Kíkjum á nokkur
dæmi.
• Knattspyrnumaðurinn knái
David Backham var seldur á 3,2
milljarða. Björgólfur gæti keypt pilt-
inn 21 sinni og hálfu skipti betur.
• Man United er virt á 89 millj-
arða króna. Björgólfur gæti keypt
félagið, ef Landsbankinn lánaði
honum það sem uppá vantar.
Kannski gæti hann þó fengið félagið
allt með staðgreiðsluafslætti.
• Björgólfur á Hummerjeppa en
þeir fást á 9 milljónir. Fyrir pening-
ana getur hann bætt 7221 við í safn-
ið.
• Borgað öll útgjöld íslenska ríkis-
sjóðs í þrjá mánuði og einni viku
betur.
• Greitt árslaun 54.000 verka-
manna sem hver hefur 100 þúsund
kr. á mánuði.
• Keypt Halldórs-
sögu Hannesar
Hólmsteins, alls 10
milljónir eintaka -
og 851.419 til við-
bótar.
• Gerst enn öflugri stuðn-
ingsmaður lista á íslandi.
Sýning Ólafs Elíassonar kost-
aði 20 milljónir, Björgólfur
gæti borgað 3.250 slíkar.
• Fartölvur. Góð
slík kostar 200
þúsund - og okkar
maður gæti keypt
325 þúsund slíkar.
Eina handa hver-
jum íslendingi og
Færeyingi.
• Keypt allar eignir á Selfossi,
Hveragerði, Stokkseyri, Eyrarbakka,
Þorlákhöfn, Hellu, Hvolsvelli - og
einhvern slatta af svéitabæjum fyrir
afganginn.
Krossgátan
Lárétt:! útskýra,4skinn,
7 áreita, 8 sigti, 10 stein-
tegund, 12 litu, 13 fæddi,
14 heimsk, 15 hita, 16
faðmur, 18 ær, 21 kýli, 22
rola, 23 fífl.
Lóðrétt: 1 læsing, 2
stofu, 3 viðbjóður, 4 út-
skrifa, 5 nöldur,6 upphaf,
9 kæk, 11 yfirgefin, 16
námsgrein, 17 spil, 19
starf, 20skepna.
Lausn á krossgátu
•jAp 01 'ueiöl'nju^i
9i 'uja|e j i 'eueAe 6 Toj 9 '6ef s 'ejjjsjnejq p 'g66Ajspue £ jes z 's?| 1 uiajQpq
•jeue £2'Qne6 jj'gjaöi 'puj>| 8L
'6uej 91 'S|A s t '6sú V L 'ine6 £ t 'nes z l 'ie6e 01 'P|?s 8 'ej6ue z 'jofq y 'esÁ| t