Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR21. JANÚAR 2004 29
Leikarinn Ashton Kutcher hefur verið að komast til metorða í Hollywood síðustu
árin. Hann varð fyrst frægur fyrir þættina That 70’s Show og síðan hafa nokkrar
heimskulegar gamanmyndir fylgt í kjölfarið. Og svo var það auðvitað sambandið
við Demi Moore. Nú virðist aftur á móti sem Kutcher sé tilbúinn að verða alvöru
leikari og leikmaður.
Þaö er orðin viðtekin venja að leikarar sem
getið hafa sér gott orð fyrir að leika vitleysinga
taki skrefið áfram og fái alvarlegar rullur. Tom
Hanks gerði það, Robin Williams, Bill Murray,
Steve Martin... og nú: Ashton Kutcher. Já,
meira að segja hinn elskulegi hálfviti úr That
70’s Show hefur fimdið dramatísku hliðina á
sér og leikur aðalhlutverkið í spennumyndinni
The Butterfly Effect sem sýnd var á dögunum á
Sundance kvikmyndahátíðinni.
Víl alltaf vera að gera eitthvað nýtt
„Ég vil ekki láta mér leiðast," sagði hinn 25
ára Kutcher við þetta tækifæri. „Ég vil ekki að
fólk sem fer á myndimar mínar haldi að það
viti nákvæmlega hvað það fær í hvert skiptið.
Ég vil helst alltaf vera að gera eitthvað nýtt og
halda hlutunum spennandi.
í The Butterfly Effect leikur Kutcher há-
skólanema sem slæmar minningar fortíðar
sækja sffellt á. Hann kemst að því að hann get-
ur ferðast aftur f tíma og farið inn í ffkama sjálfe
sín og komið í veg fyrir að slæmir hlutir gerist
Þetta hefur þó sínar slæmu hliðar eins og við
var að búast Kutcher þykir sýna nokkra dýpt f
leik sínum, dýpt sem fóÚc bjóst alls ekki við eft-
ir að helstu hlutverk hans hafa verið í That 70’s
Show, Dude, Where’s My Car og Just Married.
Leikarar sem slá í gegn f gamanmyndum
reyna oftast að næla sér í hlutverk í alvarlegri
myndum, með mismunandi árangri. Tom
Hanks fór frá því að vera vitleysingur í Splash
og Bachelor Party auk fleiri mynda yfir í ósk-
arsverðlaunadrama í Philadelphia og Forrest
Gump. Robin Williams fór frá því að vera brjál-
aður uppistandari yfir í óskarsverðlaunahlut-
verk í Good Will Hunting, Bill Murray er af
sama skólanum og þykir lfklegur til að hljóta
útnefningu til óskarsverðlaunanna á næstunni.
Aðrir grínleikarar sem staðið hafa sig bærilega f
alvarlegri myndum eru til dæmis þeir Jim Car-
rey og Steve Martin.
Ekki eins og persónurnar sem hann
hefur leikið
Það gæti hins vegar orðið erfitt fyrir marga
aðdáendur Ashtons Kutcher að sætta sig við
hann í alvarlegu hlutverki. Það sýndi sig ágæt-
lega þegar mennimir á bak við The Butterfly
Effect fengu fyrst að heyra að hann kæmi tfl
greina í hlutverkið. Þeim hrylldi beinlínis við að
hann ætti að leika aðalhlutverkið f myndinni
sem þeir höfðu reynt að gera í sjö ár.
„Við sögðum að það væri ekki séns að
„Dude, Where’s My Car" myndi vera f mynd-
inni sem við höfum barist við að gera f öll þessi
ár,“ sagði J. Mackye Gruber, sem samdi hand-
ritið aö og leikstýrði myndinni f félagi við Eric
Bress. Þeir Bress og Gruber voru neyddir til að
fara í heimsókn tfl Kutchers til að ræða um
myndina efdr að nafn hans var nefiit í aðal-
hlutverkið. Þar mætti þeim ekki vitleysingur-
inn úr That 70’s Show, eins og þeir höföu búist
við. Þess í stað tóku kvikmyndagerðarmenn-
imir 180 gráðu beygju í áliti sínu á Kutcher sem
hafði lesið handritið upp tfl agna og hafði
ákveðnar skoðanir á sögunni og persónunni
sinni.
„Ég var alveg viss um að haxm væri persón-
an sem hann leikur í sjónvarpinu," sagði Bress.
„Þegar við hittum Ashton fyrst var hann allt
önnur persóna en ég bjóst við. Maður var alltaf
að leita að þessari persónu úr sjónvarpinu en
hún var bara alls ekki þama. Allt sem hann
hafði að segja um handritið sýndi ótrúlegt inn-
sæi.“
„Hann var gáfaðri en allir þeir leikarar sem
við skoðuðum í hlutverkið,“ bætti Gruber við.
„Þegar við yfirgáfum húsið hans litum við á
hvom annan og fannst við vera algerir fávitar.
Ég held við höfum fimdið okkar mann,“ sagði
hann.
Ashton Kutcher hefur líka ákveðnar skoðan-
ir á þvf hvað fólki finnst um gamanleikara. „Ég
held að fólk vanmeti gjaman hversu erfiður
gamanleikur getur verið. Þegar maður leikur f
dramatísku verki em hundrað mismunandi tfl-
finningar sem þú getur túlkað tfl áhorfend-
anna. En í gamanleiknum er það baraeitt sem
gildir. Ef fólk hlær ekki þá hefiir þér mistefcist"
Stjörnuspá
Harpa Melsted handbolta-
kona er 29 ára í dag.
„Neistinn sem falinn er
djúpt í sálu hennar
kallar vafalaust til
hennar um þessar
mundir og ætti hún
að hlusta á eigin til-
finningar varðandi
ákvörðun," segir i
stjörnuspá hennar.
Harpa Melsed
\/\ Vatnsberinn (20.jan.-i8.febr.)
W ----------------------------------------
Reynsla þín auðgar líf þitt og
gefur því meira gildi ef þú venur þig á að
einblína eingöngu á það sem eflir þig og
uppfyllir væntingar þínar. Þér er ráðlagt
að nýta eiginleika þína enn betur þegar
tilfinningar þínar eru annars vegar og
hlusta vel á það sem líkami þinn segir þér.
M
Fiskarnir (i9.febr.-20.mrs)
Þú virðist vera hugsi þessa
dagana miðað við stöðu stjörnu fiska
varðandi ákvörðun sem tengist framtíð
þinni. Berðu fram óskir þínar og fyrir-
ætlanir fram í huganum því þá leggur
þú grunninn að átakalausu flæði sem
breytir draumum þínum og löngunum í
veruleika.
Hrúturinn (2i.mrs-i9.aprit)
Hlustaðu vel á fjölskyldu þina
þessa dagana og haltu fast í barnið sem
býr innra með þér þegar kemur að líðan
þinni gagnvart fólkinu sem þú um-
gengst.
T
Ö
NaUtÍð (20. apríl-20. mai)
n
Viljastyrkur þinn og einbeiting
efla þig þegar starf þitt eða nám er tek-
ið hér fyrir. Þú ættir að sleppa takinu af
ýmsum gömlum minningum og lifa al-
gjörlega í nútiðinni.
Tvíburarnir (21. maí-21.júni)
Þú þekkir eigin kosti mjög vel
og ert meðvitaður/meðvituð um hvað þú
vilt. Viðurkenndu kosti þína, styrk þinn og
nýttu orku þína, sem er mjög mikil, þér og
öðrum til framfara. Orka þín mun marg-
faldast og þú stjórnar henni til góðs.
faabb'm (22.júni-22.júlí)_________
Ný og ekki síður spennandi
tækifæri eru framundan og birtast hér í
formi sköpunar af þinni hálfu þar sem
listrænir hæfileikar þínir fá notið sín.
Leyfðu hugmyndum þínum að lifna við
og gakk á vit óvissunnar en ekki að van-
hugsuðu máli þó.
Ljónið® .júli-22.ágúst)
TT5
Þú ættir að hefja flugið, horfa
til himins og leyfa þér að njóta stundar-
ipnar með þeim sem efla þig og styrkja.
Hugsaðu þig vel um áður en þú fram-
kvæmir og áttaðu þig á því hvað það
raunverulega er sem eflir þig.
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Ef þú finnur fyrir feimni í garð
annarra um þessar mundirer þér ráðlagt
að opna hjarta þitt fyrir umhverfi þínu,
náunganum og ekki síður sjálfinu. Þú ert
án efa vandur að vinum og af einhverjum
ástæðum mikið gefin/n fyrir ferðalög um
þessar mundir eða með hugann við það.
Q Voginf2J.sepr.-2J.o*íJ
Eðli þitt er virkt á þessum árs-
tíma til að sigra og því ættir þú að efla
metnað þinn með framvæmd fyrst og
fremst og ekki síður með því að nýta
samningahæfileika þína. Örlæti ein-
kennir þig.
TTl
Sporðdrekinn (2iokt.-21.mj
/
Ef þú finnur fyrir veiklyndi ein-
hvers konar þessa dagana er það án efa
hegðunarmynstur sem þú framkvæmir án
þess að vita hvers vegna. Fólk fætt undir
stjörnu sporðdrekans ætti hvorki að dæma
né gagnrýna sjálfið um þessar mundir.
Bogmaðurinnr22.ndt.-2!.(íesj
Láttu gott af þér leiða og
hlustaðu í stað þess að tala. Þú ert í
góðu jafnvægi þessa dagana og hefur
mikið að gefa náunganum.
Steingeitin (22. te.-!9.jmj
Aðstæður eru ekki eins slæm-
ar og þær líta út fyrir að vera þessa
stundina hjá fólki fætt undir merki
steingeitar. Það lítur út fyrir að einhver
hafi sært þig fyrir þó nokkru. Reyndu að
njóta stundarinnar og návist vina þinna
og fjölskyldu þegarfram líða stundir.
z
SPAMAÐUR.IS