Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 13 Idol-þættirnir eru einhverjir þeir vinsælustu sem sést hafa í íslensku sjónvarpi. Til marks um það voru helmingi fleiri atkvæði greidd í Idol en í Júróvisjón. Maðurinn á bak við Idol er Þór Freysson. Hann út- skýrir hér nokkrar reglur sem komu í pósti frá eigendum keppninnar - reglur um fjölmiðlabann sem hljóma sérkennilega í eyrum íslendinga. Samkvæmt samningi er keppendunum 32 strang- lega bannað að tjá sig um Idol-keppnina þar til 5. mars nema að fá tilþess sérstakt leyfi. Kastljósið á réttum stað „Það er náttúrlega annað umhverfi hér á ís- landi en meðal milljóna þjóða. Þar eru þær reglur settar íyrst og fremst til að auðveldara sé að halda utan um sigurvegarann og koma hans ferii af stað án þess að hinir keppendurnir skyggi . þar á. Þeir keppendur sem lenda til dæmis í 2. til 9. j sæti er allt orðið þjóðþekkt I fólk sem veður í tilboðum ' um plötusamninga og ___________ þáttagerð í sjónvarpi," segir 'NS Þór. Hann leggur á það áherslu að þetta fjölmiðlabann sé ekki til kom- ið vegna þess að eitthvað sé að fela. Honum finnst reyndar þetta orð, fjölmiðlabann, frem- ur neikvætt. „Tilgangurinn er sá að búa svo um hnúta að beina fókusi að sigurvegaranum. Vernda hann, gefa honum tíma sem hann þarf og fái notið athyglinnar óskertrar. Að þessum tíma liðnum mega krakkarnir gera það sem þeir vilja.“ Þór segir að hérlendis séu krakkarnir ekki endilega að fá sambærileg tilboð og tíðkast ytra en við verðum engu að síður að hlíta þess- um reglum. Ekki í gámum til íslands Fagmenn eru sammála um að sérlega fag- mannlega hafi verið að verki staðið við fram- leiðslu Idol þáttanna. Þór segir enda mikinn metnað hjá Stöð 2 að gera vel. „Þó reglurnar og konseptið sé íyrirliggjandi þá er ekki sopið kál- ið þó í ausuna sé komið. Það er meira en segja það að setja svona upp svo vel sé. Þátturinn kemur ekki í gámum til íslands," segir Þór. Ótrúlega mikii vinna er í kringum svona dag- skrárgerð og í mörg horn að líta. Sú vinna virð- ist hafa skilað sér í velheppnuðum þætti. ^ Þegar hefur verið tekin um u, það ákvörðun að halda Idol 2 næsta haust og hefst und- irbúningur strax í vor. Þór vonar að Simmi og Jói verði _______ eftir sem áður kynnar. Þeir sem komust í 32 manna hóp- inn mega ekki taka þátt aftur enda er talið að þeir hafi forskot um- fram hina sem vilja koma. Hins vegar mega þeir taka þátt sem komu í áheyrnarprófin og komust ekki áfram. Aldurstakmarkið er 16 til 28 ára. Þór segir ekki hafa komið til tals að halda eldri borgara Idol né heldur „júníor- idol“ eins og tíðkast víða. „Ég held að það sé nóg að einbeita sér að þessu í bili.“ jakob&dv.is Harðar reglur Mörgum hefur komið spánskt fyrir sjónir hinar ströngu reglur sem virðast gilda í Idol-keppninni. Þannig vakti það mikla athygli þegar einn keppandinn, Arnar Dór Hannesson nemi við Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti, var rek- inn úr keppninni í Idol Stjörnuleit fyrir að brjóta íjölmiðlabann f keppninni. „Það birtist við mig lítið viðtal f blaðinu Víkurfréttir í Kefla- vík en þar er alltaf viðtal við þá sem hafa skarað fram úr í vikunni. í blaðinu svaraði ég nokkrum spurning- um sem tengdust ekki efni Idol þátt- arins. Svo fékk ég símtal frá dag- skrárstjóra Stöðvar 2 og í símtalinu var mér sagt að ég væri rekinn úr keppninni. í sím- talinu var mér sýndur hroki og dónaskapur," sagði Arnar Dór Hannes- son við þetta tæki- færi í Fréttablaðinu. Fjölmiðlabann til 5. mars „Þetta eru í raun- inni reglur sem við verðum að hlíta hvort sem okkur líkar betur eða ver. Þær koma frá Fremantle sem á Idol- keppnina hvar sem hún er haldin í heiminum. Við fengum sendar frá þeim tvær hnausþykkar biblíur sem við þurftum að fara rækilega í gegn- um áður en við gátum hafist handa. Þar er rækilega kveðið á um hvernig keppnin á að ganga fyrir sig,“ segir Þór. Reglurnar kveða á um að þremur mánuðum eftir út- sendingardag fyrsta úr- slitaþáttar, sem var 5. desember, eru þátttak- endur f íjölmiðlabanni. Þeim er stranglega bannað að tjá sig um Idol-keppnina þar til 5. mars. Undir það hafa þátttakendur skrifað. Vilji einhver tjá sig við fjölmiðla innan þess tíma verð- ur að fá tU þess leyfi frá framleiðendum keppninnar. Þeir mega að öðrum kosti ekki tjá sig við fjöl- miðla né taka þátt í öðrum sambærUegum keppnum fyrr en þessi tími er liðinn. Þetta á við um alla þá sem komust í 32 manna úrslit. Kaííi Bjarni / lokaþætti Idol verður fylgst með ferli þessa knáa sjóara sem malaði Idol keppnina. Aldrei liafa fleiri aikvæði verið greidd i simakosningu á íslandi áður eða lielmingi fleiri en i Júróvisjón. „Nei nei, ekki er aUt búið ennþá. Nú er lokaþátturinn eftir,“ segir Þór Freysson pródúsent sem framleiðir hina feikivinsælu Idol-þætti. Þór hóf feril sinn í skemmtibrans- anum sem gítarleikari í hinum fornfræga Bara-flokki, hljómsveitinni fínu frá Akureyri. En síðar lá leiðin í sjónvarpið og hefur hann nú starfað sem pródúsent til margra ára á Stöð 2. Þór framleiðir einnig Viltu vinna milljón sem einnig hefur notið verulegra vinsælda. Þór segir að lokaþáttur Idol verði einskonar „Best of“ þáttur en þar er fylgst grannt með ferli Kalla Bjarna í keppninni - eða aUt þar til hann mætti í fyrsta áheyrnarprófið og bjargaði deg- inum fyrir Bubba - sem þá var orðinn vondaufur fyrir hönd karlkynsins. Helmingi vinsælla en Júróvisjón! Vinsældir Idol eru með hinum mestu ólík- indum og til marks um þær er að alls bárust 150 þúsund atkvæði á úrslitakvöldinu í Smára- lind um síðustu helgi. Til samanburðar má geta þess að þegar Birgitta Haukdal var í Júró- visjón nú síðast bárust um 75 þúsund atkvæði og í því ljósi má halda því fram að Idol hafi notið helmingi meiri vinsælda en sjálft Júró- visjónið sem löngum hefur náð að grípa at- hygli þjóðarinnar. „Já, þetta er með hinum mestu ólíkindum," segir Þór. „Ég bjóst við því að við myndurn kannski ná 90 þúsund at- kvæðum sem hefði verið frábært. Ég hefði ver- ið mjög ánægður með það. Þannig að þetta fór langt frammúr okkar björtustu vonum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.