Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fréttir DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjóran lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjórar Kristinn Firafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aðrar deildin 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Setning og umbrot Frétt ehf. Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Metaðsókn Sýning Ólafs Elíassonar, Frost Activity, íLista- safni Reykjavikur er að slá öll aðsóknar- meL Sýn- inginvar opnuð um síðustu helgiogþá komu hatt í fjögur þiisimd gestir. Sfðast þegar frettist voru gestir orðnir sex þúsund. Ef svo fer fram sem horf- ir á sýningin eftir að slá öll fyrri aðsóknarmet í Hafnarhúsinu. Valdís í Gilið Valdís Viðars hefur verið ráðin verkefnisstjóri menning- armið- stöðvar- innar í Listagili en sem kunnugt er tókAk- ureyrar- bær nýverið við ýmsum þeim verkefnum og þjónustu sem Gilfélagið hefur byggt upp og þró- að frá því að Listagilið var sett á stofn. Spari Bæjarstjóm Fjarða- ur ályktað um máleftii * ^ sparisjóða, að W'/ gefnu tilefni, og vekur athygli á því hlut- verki sem Sparisjóður Norðfjarðar hefur gegnt í sveitarfélaginu. Spari- sjóðurinn var stofnaður 1920 og var eina pen- ingastofhunin í Norð- firði allt til ársins 1974. Mælt með Söndru Nýr starfsmaður verður raðinn að Félagsmiðstöð ungmenna á Patreksfirði ef tillaga þar að lútandi verður samþykkt. Er mælt með Söndm Skarphéðinsdóttur í starfið, sem losnaði þeg- ar fyrrum forstöðumað- ur félagsmiðstöðvarinn- ar var handtekinn, gmn- aður um kynferðislegt ofbeldi gagnvart ungum drengjum. C- c ai £ m ' c c ro Oí Ol TJ c -Q 3 E =0 •o «o rtJ E rtj rtj WT *o Ol Verður er forstjórinn... ■w Terður er verkamaðurinn launa sinna, \/ segir í bók sem margir telja öðrxun bók- V um æðri, jafnvel helga. Og því höfum við flest reynt að hafa í heiðri þann sannleika sem í þessum orðum felst. Gallinn er sá - ef við ætlum að lifa eftir orð- um eins og þessum - að það er ekki tekið fram hversu há launin eiga að vera. Ekki einu sinni hlutfallslega. Það segir ekki til dæmis: Verður er verkamaðurinn launa sinna og forstjórinn tíu eða tuttugu sinnum hærri launa. Þaðan af síður að Jesú - því þessi orð voru eftir honum höfð, ef ég man rétt - þaðan af síður að hann hafi sagt: Verður er verkamað- urinn launa sinna en forstjórinn tíu eða tutt- ugu sinnum hærri launa og þar að auki ber honum starfslokasamningur sem tryggir honum himinhá laun í mörg ár eftir að hann lætur af störfum. Jesú var greinilega alveg úti að aka í hag- fræðinni, fyrst hann hafði ekki vit á að taka þetta fram. En það er reyndar allt í lagi vegna þess að forkólfar í peninga- og atvinnulífi hafa nú haft vit fyrir Jesú og gert um þessi mál um- fangsmikla og feita samninga við þá forstjóra sem um ræðir. Frétt DV um að Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SÍF, sé að hverfa úr starfi og taki með sér eitthvað um 84 milljónir í starfsloka- samning svokallaðan, hafa vakið mikla at- hygli. Og hneykslun, réttilega. Ekki efast ég um að Gunnar Örn hafi verið hinn hæfasti maður í sínu starfi. Reyndar veit ég ekkert um það, en við skulum gera ráð fyr- ir að svo hafi verið. Það má meira að segja ef- laust ræða í þaula hvort hann hafi staðið sig svo vel að hann kunni að hafa átt fyllilega skilið að vera á tuttugu sinnum hærri launum heldur en það fólk sem neðst er í goggunar- röðinni í frystihúsunum sem starf SÍF byggist á. Segjum að svo hafi verið. En starfslokasamningur sem kveður á um laun upp á tvær milliónir á mánuði í mörg ár eftir að Gunnar Om lætur af störfum að eigin ósk - ja, það er annar handlegg- ur. Því maður skyldi ætla að það hefði verið nægjanleg umbun fyrir Gunnar Örn að hafa þessi tuttugu sinnum hærri laun en fiskverkafólkið. En hvers vegna á hann - en ekki það - skilin margra ára laun eftir að hann hefur látið af störfum? Það get ég ekki skilið og það held ég að fólk á íslandi skilji almennt ekki. Þegar fjögurra ára sonur minn spyr um eitthvað verulega erfitt og ég segi að enginn viti svarið við því, þá ansar hann alitaf: „Jú, Jesú veit það.“ En ég er ekki viss um að jafnvel Jesú gæti svarað þessu. niugi Jökulsson td. sérstakt málþing um heilabilun sem segir í dagskránni að hafi verið „styrkt af Pfizer". Haraldur Briem hélt um hádegis- bilið á miðvikudag erindi um hvaða lærdóma mætti draga af drepsóttum fortíðarinnar - „GlaxoSmithKline býður upp á hádegissnarl“ - og þá um kvöldið var skemmtun í Þjóðleikhús- kjallaranum undir yfirskriftinni: Geta læknar af sér list? - „húsaleiga og skemmtidagskrá er í boði Astra- Zeneca en veitingar verða á eigin kostnað". í hádeginu á fimmtudag hélt Helgi Valdimarsson erindi um psoriasis - „GlaxoSmithKline býður upp á há- degissnarl". Sama daga styrkti sama fyrirtæki málþing um ýmsa þætti sjálfevíga og vama gegn þeim. Og í gær styrktu höfðingjamir hjá GlaxoSmithKIine enn eitt málþingið, að þessu sinni um hjartaáföll. Um fimmleytið í gær var svo dag- skrárliðurinn „kokdiUir" sem ekki er skýrður nánar en eftir nokkur heila- brot þykjumst við vita að um sé að ræða tiiraun til að þýða enska orðið „cocktail". Og verðum þá að segja að jafnvel hið vandræðalega orð „hana- stél" hljómar öllu betur. Því kokdillir hljómar bara eins og sjúkdómur - og kemur þá kannski ekki á óvart að læknir skuli hafa þýtt svo. Altént var „kokdillir" þessi f boði GlaxoSmithKline. Fyrirtæki geta dælt endalausum peningum í auglýsingar og breytingar á nöfnum og yfirbragði, en slíkar æf- ingar skila ekki tilætluðum árangri ef fyrirtækin sýna ekki vilja til þess að breyta með yfirbragðinu. Fyrir þá sem vel fylgjast með málefnum Sím- ans bendir margt til þess að fyrirtæk- ið muni halda áfram að breytast á já- kvæðan hátt. Ekki má gleyma því að á fáeinum árum hefur Síminn breyst úr morkinni nkisstofnun í framsækið þjónustufyrirtæki. Það sem blasir við hinum almenna neytanda er hins vegar nýtt merki, rnikill kostnaður, svissneskt ráðgjafafyrirtæki, illskilj- anlegar ímyndarauglýsingar og for- stjóri sem er nýbúinn að taka niður bindið." Læknadagar svokallaðir standa nú yfir, eins og komið hefur fram í fréttum, og við efumst ekki um að þar sé margt skrafað og kynnt sem til gagnsemi má telja í læknavísind- um. En læknamir þurfa þó bæði að næra sig og aðeins lyfta sér upp öðru hvoru og í dagskrá Læknadag- anna vekur athygli okkar hve lyfla- fýrirtæki eru rausnarleg við að styrkja þá þættí ráðstefnunnar. Reyndar koma lyfjafyrirtækin oftar við sögu: Á miðvikudaginn var var Karl Pétur Jónsson, framkvæmda- stjóri Inntaks almannatengsla, skrif- aði grein f Morgunblaðið í fyrrdag þar sem hann fjaMJi um þá „endur- mörkun" Símans sem fjallað var um í þessum dálki í gær. Grein Karls Pét- urs snýst reyndar líka um svipaða „endurmörkun" KB banka; þess fyrir- tækis sem áður hét Kaupþing Búnað- arbanki en það nafii féll í ónáð með þjóðinni. Tekið er fram í kynningu á Karli Pétri með greininni að fyrirtæki hans starfi meðal annars fyrir Lands- banka íslands, ef menn vilja skoða ummæli hans um KB banka í því ljósi, en Karl Pétur er reyndar heldur hrif- inn af þvf hvemig KB banki stóð að málum. Einkum telur Karl Pétur tíl eftírbreytni fyrir fyrirtæki í þessum sporum að „endurmörkunin" sjálf skuli ekki hafa verið gerð að höfuð- atriði hjá bankanum, heldur hafi hið nýja heití og „lógó" verið kynnt með tiltölulega lítilli viðhöfri - en hins veg- ar séu verkin látin tala með jákvæð- um fréttum af bankanum, lækkunum á færslugjöldum og þess háttar. En „endurmörkun" Símans fær ekki eins jákvæða dóma hjá Karli Pétri. „Áhersla Símans í fjölmiðlakynn- ingu á breytingu á ásýnd sinni hefur verið frekar skrýtin, svona fyrsta kast- ið að minnsta kosti. Ef eitthvað, hefur hún verið sjálfhverf og óáhugaverð. Öll áhersla hefur verið á mál sem skipta meginmáli fyrir innanhússfólk, en varða viðskiptavini Símans litlu. Kallaður var saman íburðarmikill blaðamannafundur í Skautahöllinni þar sem nýja ásýndin var kynnt. Brynjólfur Bjarnason forstjóri kynnti merkið og virtist kunna miðlungsvel við sig í ljósadýrðinni á svellinu. I fjöl- miðlaumfjölluninni um fundinn komu einkum fram fimm skilaboð: - Síminn er á leið inn í nýja tíma og taldi sig þurfa að breyta ímynd sinni og áherslum í samskiptum við við- skiptavini. - Síminn réð svissneskt ráðgjafa- fyrirtæki til að ákveða fyrir sig hvað hann ætti að gera. - Nafn fyrirtækisins var of „virðis- iFlt líftl Nl fllMlli SpSsí wMWffiWs iFí Fyrst og fremst mikið“ til að farga því (hefði ekki nægt að segja verðmætt?). - Breyting á ásýnd Símans er mjög dýr aðgerð. - Síminn er búinn að skipta al- menningi upp í fimm hópa og ætlar að nálgast hvern hóp á mismunandi hátt. Þetta eru auðvitað athyglisverðar fréttir fyrir áhugafólk um markaðsmál og innanhússfólk hjá Sfmanum, en fyrir viðskiptavini Símans skiptir ekk- ert af þessu máli. Sumir þeirra verða meira að segja pirraðir þegar þeim er sagt að þeim sé skipt niður eftir ein- hverju flokkunarkeifi. Niðurstaðan að þessum skilaboðum meðteknum er að Síminn ætli ekki á neinn hátt að breytast sem fyrirtæki heldur skipta um búning, fara í annan dýrari og unglegri, klæðaskerasniöinn í Sviss. Þá hafa verið í gangi ímyndaraug- lýsingar, í sjónvarpi, blöðum, á strætó- skýlum og víða sem mörgum finnst bjóða upp á flókin og óskýr skilaboð. Auglýsingamar segja að Síminn sé þátttakandi í lífi fólks, nánast sama hverju það tekur upp á. Áherslan hjá KB banka hefur verið á að marka bankanum nýtt upphaf sem hlýtur að teljast ágætis hugmynd ... Frá þeim tíma hefur KB banki einvörðungu sent frá sér jákvæðar fréttir...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.