Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 23
rrv Fókus LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 23 Það er því ekki víst að valdataka hvítliða hefði orðið neitt veru- lega skárri fyrir íbúa Rússlands heldur en ógnarstjórn kommún- ista. skárri fyrir íbúa Rússlands heldur en ógnarstjórn kommúnista. Hins veg- ar má leiða að því rök að slík fasista- stjórn hefði aldrei haldið velli jafn lengi og stjóm bolsévíka gerði. Hitt er einnig spurning hvort fas- istastjórn - eða þó ekki væri nema hægrisinnuð einræðisstjórn - hefði aukið möguleika Hitlers og nasista á að ná völdum í Þýskalandi. Stór þáttur í þeim stuðningi sem nasistar öðluðust í Þýskalandi byggðist á ótta við hina voðalegu kommúnista í Rússlandi. Ef sá ótti hefði ekki verið fyrir hendi er ólíklegt að Hitler hefði náð völdum, jafnvel ekki með öllum sínum vel heppnaða óhróðri gegn Gyðingum sem var hinn aðalþáttur- inn í velgengni hans. Og ef Hitler hefði ekki náð völdum í Þýskalandi hefði síðari heimsstyrjöldin orðið með allt öðrum hætti. Þjóðverjar hefðu vel getað farið í stríð en það hefði ekki orðið það allsherjarstríð sem raun var á og „lokalausnin" gegn Gyðingum hefði ekki átt sér í neinni viðlíka mynd og raunin varð. Þriðji möguleikinn: Stalín Stalín eða einhver annar leiðtogi róttækra kommúnista hefði samt sem áður getað náð völdum, þótt síðar hefði orðið - ef þessi fábrotna byltingartilraun aðfaranótt 7. nóv- ember 1917 hefði farið út um þúfur. Þessi möguleiki kemur vissulega til álita, en þó verður að teljast útilokað að Stalín sjálfur hefði orðið þar í að- alhlutverki. Hann náði völdunum einfaldlega af því hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma - og hefði aldrei komist til metorða öðruvísi. Bolsévíkar voru aðeins einn hóp- ur af mörgum í flóru róttækra vinstrisinna sem létu að sér kveða í umrótinu í Rússlandi og það má hugsa sér að einhver þeirra, annar en bolsévíkar, hefðu getað náð um- talsverðum stuðningi, til dæmis ef Kornilov eða Denikin hefðu reynt að hrifsa til sín völdin en ekki tekist. Þá hefði hugsanlega komist á fót ein- hver vægari útgáfa af bolsévfka- stjórninni - eða jafnvel einhvers konar sósíalistastjórn. Möguleikinn er fyrir hendi en svo óljós að varla verður reiknað út hvað hefði getað gerst. Nema hvað eftir Stalin Einhver annar leiðtogi róttækra sósialista hefði getað náð völdum i Rússlandi þótt Lenin hefði mistekist. sem áður er nærri víst að afleiðingar hefðu ekki orðið jafn skelfilegar og raun bar vitni - ef þessum fámennu flokkum bolsévíka hefði mistekist ætlunarverk sitt hina örlagaríku nótt. í heild er niðurstaðan að valda- rán bolsévíka var senniíega versta hugsanlega niðurstaðan sem mann- kynssagan hefði getað komist að. Það hafði ekki aðeins í för með sér ólýsanlegar hörmungar fyrir íbúa Rússlands áratugum saman, heldur sennilega líka valdatöku nasista í Þýskalandi og þar með útrýmingar- búðirnar illræmdu. Önnur afleiðing var svo hinn algeri ósigur Þjóðverja í heimsstyrjöldinni - sem aldrei hefði orðið jafn afgerandi ef við aðra stjórn þar hefði verið að eiga - sem aftur hafði í för með sér að Sovét- menn náðu yfirráðum yfir hálfri Evr- ópu. Fyrir Vestur-Evrópumenn þýddi þetta til dæmis að Winston Churchill hefði aldrei verið kallaður til valda í Bretlandi, Franklin Roos- ewelt hefði áreiðanlega mistekist að leiða Bandaríkjamenn til þátttöku í seinni heimsstyrjöldinni í Evrópu (en það tókst honum fyrst og fremst með því að benda á hina siðlausu stjórn nasista) og í Bandaríkjunum hefði sú einangrunarstefna, sem fyr- ir naut mikils fylgis, eflaust ráðið ríkjum langt fram eftir 20. öld. Enda hefði ekkert orðið af Kalda stríðinu. Og þar sem við lifum nú í veröld sem er mótuð af Kalda stríð- inu, þá erum við enn að súpa seyðið af aðgerðum þessara fáu bolsévíka sem Lenín og Trotskí sendu út á göt- urnar að taka brýrnar í Petrograd og hernema pósthúsin. iitugi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.