Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus DV Prísinn á Kalla Bjarna hefur hækkað verulega frá því að hann var óþekktur pöbbaraulari á Caktusinum i Grindavik. Enda hefur honum verið úthlutað sérlegum umboðsmanni frá Idol-batteríinu - sjálfum Jóni Gunnari Geirdal sem annast nú hans mál. Jón Gunnar Geirdal og Kalli Bjami. Forayfir dagskrána sem er hlaðin.Jón Gunnar er partur afsigurlaunum Kalla Bjarna sem fær hann til af- nota sem umboðsmann i sex vikur sér að kostnaðariausu. . Kalli Bjarni er uppbókaður i allt kvöld. Byrjar á SAM- FÉS í Laugardalshöll- inni og brunar svo á þorrablót á Selfossi en endar nóttina á Diskókvöldi á Nasa. „Jájá, hann fær mér úthlutað sem parti af sigurlaununum. Ég mun annast Kalla Bjarna og hans mál nú í sex vikur honum að kostnaðar- lausu. Hvað svo verður kemur í ljós,“ segir Jón Gunnar Geirdal sem er fyrsti umboðsmaður Kalla Bjarna Idol-stjörnu og sá eini hingað til. Jón Gunnar segir gríðarlega eftirspurn eftir kröftum Kalla Bjarna og þá við allar hugsanleg- ar og óhugsanlegar aðstæður. Nú er sú árstíð að nálgast ákveðinn hápunkt í samkvæmislíflnu. Þorrablót og árshátíðir í stómm stíl. Það er því í mörg horn að líta ef menn hafa nýverið sigrað í eins og einni Idol-keppni. íslenskir umboðsmenn Jón Gunnar segir að sjálfsögðu samningsat- riði hvað Kalli Bjarni taki fyrir það að koma fram og sé það jafnframt háð aðstæðum - hvort fylgi að hann gefl eiginhandaráritanir í kjölfarið, komi tvisvar íram eða hversu lengi hann treður upp. En viðmiðunartalan er áttatíu til hundrað þúsund krónur. Þá kemur Kalli Bjarni og tekur íjögur til flmm lög. „Við verðum náttúrlega að at- huga að hann gaf upp sjómennskuna til að snúa sér að poppstjörnuferlinum." Það er því ljóst að Föstudaginn 30.janúar verður jakkinn, „Gardínan", afhentur á Hard Rock Café í hádeginu. prísinn hefúr hækkað frá því Kalli Bjarni var til- tölulega óþekktur kráarsöngvari og kom fram ásamt Grétari vini sínum á pöbbnum Caktusi í Grindavík. Umboðsmennska á Islandi er ekki ný. Þannig hefur Óli Þórðar í Ríó rekið umboðsskrifstofu, Prime og Promo em umboðsskrifstofur sem em með listamenn á sínum snæmm. Og hljómsveit- irnar Quarasi og Vinill em með Kára Sturluson sem sinn mann. „Þá hefur Bubbi alltaf verið með umboðsmann eftir því sem ég best veit. Þetta er nú aðallega til að taka af honum mesta álagið," segir Jón Gunnar. Og framundan er þéttriðin dagskrá. „Reyndir menn í bransanum hafa hvatt hann eindregið til að nýta sér meðbyrinn ef hann ætlar sér að gera staifsframa úr söngnum." Fylgifiskur frægðarinnar Líkt og ekta poppstjörnu sæmir er Kalli Bjarni þegar farinn að fá forsmekkinn af kjaftasögunum sem virðast óhjákvæmilegur fýlgifiskur frægðarinnar. Þannig var það fullyrt við DV að hann hefði verið búinn að bóka sig til söngs á árshátíð Alanó-klúbbsins um síð- ustu helgi, laugardaginn eftir að hann bar sig- ur úr bítum í Idol-keppninni. Búið var að ganga frá því að hann yrði í klukkutíma og fyr- ir ætlaði hann að taka 50 þúsund krónur. En að morgni laugardags var staðan breytt. Kalli Bjarni var orðinn heimsfrægur á íslandi og rúmlega það. Harðsnúinn umboðsmaður Kalla Bjarna átti að hafa hringt á laugardegin- um og sagt að það væri af og frá að hann kæmi nema hugsanlega fyrir 200 þúsund kaO og myndi þá einungis syngja fjögur lög. Falleg saga „Þetta flnnst mér ákaflega faOeg saga," segir Jón Gnarr sem var veislustjóri á árshátíðinni og þóttist þurfa að skoða sinn gang. Hann kom nefnflega þama fram frítt vegna hins góða málstaðar. Alanó- klúbburinn tengist AA samtökunum og hefur það að markmiði að útvega húsnæði til afnota fyrir hinar margvíslegu deOdir AA samtakanna. Aðrir skemmtíkraftar vom Edda Björgvinsdóttír og Björgvin Franz." Það fylgdi jafnframt sögunni að heið- ursmaðurinn Kalli Bjami hafi að endingu staðið við gerða samninga og gersamlega slegið í gegn. „Hann var ntíklu betri en í sjónvarpinu. Algerlega frábær söngvari." Enginn forsvarsmanna Alanó-klúbbsins fékkst til að staðfesta söguna þegar eftir því var gengið. Nema náttúmlega fyrir utan þetta með að KaOi Bjarni væri frábær. Og Jón Gunnar segir þetta algerlega úr lausu lofti gripið, gangi bara aOs ekki upp, því hann hafi ekki hitt KaOa Bjama sem umboðsmaður hans fyrr en á mánudeginum. Þannig að þetta gengur Ola upp. jakob@dv.is Idol-stjarnan Kalli Bjarni. Söngur hans ernú orðinn umtalsvert verðmætari en þegar hann var tiltölulega óþekktur að þenja raddbönd- in með Grétari vini sinum á kránni Caktusinum i Grindavik. 100 búsund kall HfUHM QNAW-AO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.