Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus DV Að venju er plötuút- gáfa með rólegra móti fyrstu mánuði ársins. Á mánudaginn kemur í verslanir fyrsta stóra útgáfan á árinu 2004, en það er nýplata frá frönsku hljómsveitinni Air, Talkie Walkie, sem er þeirra þriðja eigin- lega pata. Trausti Júlí- usson gægðist inn í heim þeirra Jean-Ben- oit Dunckel og Nicolas Godin. Fyrsta plata frönsku hljómsveit- arinnar Air, Moon Safari, sem kom út árið 1998 er ein af þessum full- komnu ffumsmíðum sem koma eins og himnasending inn á tónlistar- markaðinn. Síðan eru liðin sex ár og þeir Jean-Benoit Dunckel og Nicolas Godin hafa brallað eitt og annað með nokkuð misjöfnum árangri. Eftir helgina kemur út ný Air plata, Talkie Walkie. Frábær plata sem sýnir að það er algerlega ótímabært að afskrifa þessa rólyndu og smekk- vísu drengi. En fyrst smá upprifjun. Hittust í menntaskóla Jean-Benoit og Nicolas ólust báð- ir upp í Versölum sem er úthverfi Parísar. Þeir kynntust samt ekki fyrr en þeir byrjuðu í sama menntaskól- anum. Jean-Benoit var þá í nýbylgju- hljómsveitinni Orange m.a. ásamt Alex nokkrum Gopher sem seinna átti eftir að láta mikið að sér kveðja í frönsku tónlistarlífi. Það var Alex sem kynnti Nicolas til sögunnar sem nýj- an meðlim í Orange. Alex hætti fljót- lega í sveitinni, en þeir Jean-Benoit og Nicolas héldu áfram og árið 1995 hafði Orange þróast yfir í Air. Fyrstu útgáfur hljómsveitarinnar voru smá- skífur íyrir bresku trip-hop útgáfuna Mo Wax (Modular) og fyrir hina frönsku Source (Casanova 70 og Le Soleil Est Pres De Moi). Það var hins- vegar með fyrstu stóru plötunni, Moon Safari, sem hljómsveitin sló í gegn. Platan innihélt m.a. lögin Sexy Boy og Kelly Watch The Stars sem náðu töluverðum vinsældum. Tón- listin var undir miklum áhrifum frá frönsku poppi sjöunda áratugarins og raftónlist þess áttunda, en notkun þeirra á gömlum hljóðgerflum setti mikinn svip á hljóm plötunnar. Út- koman var seiðandi og stemningar- fullt popp sem hljómaði ferskt og nú- tímalegt. Fara sínar eigin leiðir Moon Safari seldist vel og það hefði sennilega verið hyggilegast fyrir hljómsveitina að skella sér beint í að taka upp aðra plötu í svipuðum dúr. En Jean-Benoit og Nicolas hafa alltaf farið sínar eigin leiðir. Þeirra næsta verkefni var tónlist við kvikmynd Sofiu Coppola, Virgin Suicides. Hún kom út á samnefndri plötu snemma árs 2000, en önnur eiginleg plata sveitarinnar, 10.000 Hz Legend kom svo út vorið 2001. Hún var töluvert ólík Moon Safari, á henni voru þyngri lagasmfðar og dimmari hljómur. Engu að síður ffn plata. Síðan hún kom út hefur sveitin svo haldið áfram að fara sínar eigin sérviskulegu leiðir. Fyrst var það heljarinnar tónleikaferð (ekkert sérviskulegt við það!), þá remix-platan Everybody Herz sem kom út 2002, en eftir hana fóru þeir í hljóðver til þess að semja nýtt efni. Það gekk vel og þeir voru fljótlega komnir með grunn að 40 lögum I staðinn fyrir að vinna þá áfram fyrir næstu plötu notuðu þeir 18 laganna sem baksviðstónlist fyrir lestur ítalska rithöfundarins AJessandro Barrico á skáldsögunni Cify. Þær upptökur komu út í fyrra á plötunni City Reading. Á henni spila Air á meðan Alessandro les söguna sína á ítölsku. Og ekki nóg með það. 19 lög- um splæstu þeir á nútímaballettinn Near Life Experience eftir dansliöf- undinn Angelin Preljocaj. En nú er semsagt loksins að koma ný alvöru Air plata. Sú þriðja í röðinni. Tónlist og kynlíf Meðlimir Air lýstu fyrstu plöt- unni sinni sem erótík, en sögðu aðra plötuna vera klám. Þegar þeir voru minntir á þetta í nýlegu viðtali og spurðir um það hvað þriðja platan væri, þá sögðu þeir þetta: „Okkar tónlist hefur alltaf snúist um kynlíf, en nýja platan er um augnablikið eftir kynlífið. Það sem Frakkar kalla „le petit mort" eða litla dauðann. Þegar þú færð fullnægingu og ferð svo á flug. Hún fjallar um losunina." Svo mörg voru þau orð. Þeir Jean- Benoit og Nicolas tengja kynlíf ann- ars mjög sterkt við tónlistina og segja t.d. að tónlist verði alltaf að vera sexí. Kannski til þess að undir- strika það fengu þeir klámmynda- leikstjórann Kris Kramski til þess að leikstrýra myndbandinu við nýja lagið þeirra, Cherry Blossom Girl sem fjallar um „unga stúlku sem glatar sakleysinu". Tónlistin á nýju plötunni er í raun mun nær Moon Safari heldur en 10.000 Hz Legend. Þetta er mýkri og poppaðri plata, en hljómurinn hefur samt þróast. Það má gera ráð fyrir því að tveir af samstarfsmönn- um þeirra á plötunni hafi haft sér- staklega mikil áhrif, annars vegar Radiohead pródúserinn Nigel Godrich og hins vegar strengjaút- setjarinn Michel Colombier sem hefur unnið með ekki minni snill- ingum en Serge Gainsbourg, Mich- ael Jackson, Beach Boys og Prince... Sérstaklega heilsteypt og flott plata Það eru 10 lög á Talkie Walkie. Sjö þeirra eru sungin og þrjú instrú- mental. í þetta skiptið syngja þeir Jean-Benoit og Nicolas öll lögin sjálfir en fá ekki til liðs við sig utan- aðkomandi söngvara. Með fyrsta upplagi plötunnar fylgir DVD- plata. Á henni er 35 mínútna tón- leikamynd, Electronic Performers, þar sem þeir spila fimm lög og þeim er fylgt eftir á.milli tónleika. Þeir eru ýmist að tala við blaðamenn (oft á illskiljanlegri ensku!), spá í það hvort David Bowie hafi verið á tón- leikunum (Er hann ekki á Italíu?) Heldurðu að hann hafi verið að horfa?),skoða landakort eða að fá upplýsingar um næstu vínyl-plötu- búð hjá vegfarendum. Gott efni. Tónleikarnir sjálfir eru líka flottir, þeir eru með hljómsveit með sér og svo er Jean-Benoit á bassanum og Nicolas á bakvið hljóðgerfla og hljómborðasamstæður. Það fer sæluhrollur um mann þegar fyrstu tónarnir af La Femme D’Argent hljóma í uppklappinu... Ég veit ekki hvort Air eiga eftir að vera áberandi á síðum tónlistar- blaðanna á næstunni. Kapphlaup fjölmiðlanna virðist oft standa um það að vera fyrstir með einhver ný andlit. Nýja frelsara sem eiga að vera betri en allt annað. En þó að Air séu kannski ekki alveg það nýjasta í dag þá er Talkie Wafkie frábær plata sem á skilið að fá mikla athygli. Það er ekki veikur punktur á henni, - þessi 10 lög eru öll af- bragð. Ef hún segir eitthvað um poppárið sem er í vændum þá eig- um við von á góðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.