Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus DV Knattspyrnuhæfileikar Eiðs Smára Guðjohnsens hafa fleytt honum langt í lífinu. En velgengninni fylgir athygli og umtal. Eitt feilspor eða kjaftasaga sem á rætur einhvers staðar úti í bæ getur endað á forsíðum blaðanna og það hefur áhrifá alla sem íkringum hann eru. Móðir Eiðs Smára, Ólöf Einarsdóttir, segir þetta vissulega leiðinlegt en það hafi meiri áhrif á hana og fjölskylduna heldur en soninn. Mótlætið hafi bara eflt Eið Smára. Gera allt til þess að draga menn niður Eiður Smári fæddist 15. septem- ber árið 1978, sonur Arnórs Guðjohnsens knattspyrnumanns og Olafar Einarsdóttur. Fimm vikna flutti hann til Belgíu, þar sem faðir hans lék sem atvinnumaður í fót- bolta, og þar bjó hann í 12 ár. Þegar hann náði 15 ára aldri var hann svo orðinn einn besti leikmaður á ís- landi og fljótlega fóru stóru liðin í Evrópu að sækjast eftir honum. Eiður Smári hefur þess vegna alltaf verið í sviðsljósinu, með beinum eða óbeinum hætti. Neitaði Barcelona „Hann ólst upp í Belgíu þar sem hann fékk að kynnast þessu fót- boltamannslífi og síðan þá hefur hann alltaf stefnt á atvinnu- mennsku eins og pabbi hans. Hann var ekki nema 15 ára þegar hann var farinn að spila með meistara- flokki Vals og fljótlega eftir það fór- um við að fá símhringingar frá lið- um sem vildu fá hann til reynslu. Ég ferðaðist mikið með honum á þessum tíma til þess að skoða að- stæður; m.a. fórum við til Barcelona í 10 daga og þeir buðu honum samning. Honum fannst það bara einum of stórt og sagðist ekki vilja fara þangað. Á endanum samdi hann svo við PSV Eindhoven í Hollandi þar sem hann fékk mjög góðan samning miðað við 16 ára ungling," segir Ólöf Einarsdóttir, móðir Eiðs Smára. Hjá PSV þurfti Eiður Smári að berjast við ekki ómerkari menn en Luc Nilis, Rene Eijkelkamp og sjálf- an Ronaldo um sæti í aðalliðinu. Það áttu því fáir von á því að hann yrði fastamaður í liðinu 17 ára en sú varð þó raunin. En í landsleik með 21 árs landsliði íslands á möti írum lenti hann í slæmum meiðslum sem áttu eftir að hrjá hann mikið. „Það leit allt rosalega vel út þangað til hann meiddist. í fyrstu var samt ekki talið að þetta væri al- varlegt enda bara ein pípa í fætinum á honum sem brotnaði. Okkur var sagt að hann myndi verða frá í einhverjar vikur en svo hljóp ofvöxtur í beinið sem leiddi til tveggja skurðaðgerða. Hann var frá í tvö og hálft ár og læknarnir hjá PSV sögðu að knattspyrnuferli hans væri lokið. Þetta var erfiður tími; hann reyndi að fara á æfingar á hverjum degi en sársaukinn var bara of mikill. Svo var samningnum hans að ljúka og því var ekkert ann- að að gera en að koma heim," segir Ólöf, en áður en Eiður kom hingað til lands hitti hann lækni frá Noregi sem hafði fulla trú á að hann gæti náð sér aftur. Hann gekk í gegnum stíft æfingaprógramm þar sem hann þurfti bókstaflega að æfa sárs- aukann af sér. „Hann varð bara að bíta á jaxl- inn og æfa stanslaust, þrátt fyrir öskrandi verki. Hann hafði alltaf trú á því að hann myndi spila fót- Stoltar mæðgur Mæðgurnar ÓlöfEinarsdóttir og Viktoria Hlif, 7 ára, eru stoltar afframgöngu sonar sins og bróður, knattspyrnumannsins Eiðs Smára Guðjohnsens. Óiöfsegir Eið Smára vel hafa vitað út ihvað hann varað fara þegar hann lagði atvinnumennskuna fyrirsig og að hann láti kjaftasögur og neikvætt umtal sem vind um eyrun þjóta, enda sé flest sem sagt er uppspuni frá rótum. DV-mynd Pjetur „Ég tókþetta rosa- lega nærri mér og hringdi í Eið Smára sem spurði mig bara að því hvortþað væri virkilega einhver sem trúði þessu. Þetta var líka mjög fjarstæðu- kennt." bolta aftur og lét sig bara hafa þetta.1' Kallaður Keikó í KR Eiður Smári gekk því næst í KR þar sem hann var mörgum kílóum of þungur. Hann hafði ekkert getað hreyft sig í næstum þrjú ár en lék þrátt fyrir það nokkuð vel með lið- inu sumarið 1998. „Það gerði honum mjög gott að fara í KR þótt hann væri kallaður Keikó og eitthvað fleira. Mér fannst hann spila nokkuð vel þetta sumar og mótlætið efldi hann bara. Eftir það fór hann til Bolton þar sem Guðni Bergs var búinn að sannfæra þá um að gefa honum tækifæri. Þangað fór hann, 10 kílóum of þungur, en þeir sáu samt á fyrstu æfingunni hvað í honum bjó og buðu honum þegar samning," segir Ólöf stolt. „Hann missti samt þrjú ár úr ferli sínum vegna meiðslanna, sem þýðir að hann gæti verið kom- inn miklu lengra. En að yfirstíga þessi meiðsl og mótlæti er í sjálfu sér bara stórkostlegt afrek. Það sýn- ir hvað hann er mikill karakter, þessi drengur. Hann er fyrirmynd fyrir aðra íþróttamenn því það var alveg sama hvað aðrir sögðu um hann og að flestir væru búnir að missa trúna á hann og tala um hvað hann væri feitur - hann hlustaði ekki á þetta og gafst aldrei upp.‘‘ Eiður lék með Bolton í tvö ár áður en hann gekk til liðs við Chelsea, þar sem hann spilar nú með mörgum af þekktustu knatt- spyrnumönnum heims. Hann er því meðal bestu knattspyrnu- manna heims í dag og því fylgir óneitanlega mikið umtal og athygli sem oft getur verið erfitt að fást við. Ekkert einkalíf „Eiður Smári hefur alltaf lifað í þessum knattspyrnuheimi og þess vegna vissi hann vel hvað hann var að fara út í. Hann vissi að hann myndi ekki eiga neitt prívatlíf og væri í raun að gefa öllum sál sína. Við foreldrar hans höfðum náttúr- . lega kynnst þessu úti í Belgíu og verið mikið í fjölmiðlum en ekkert í líkingu við það sem gerist í Bret- landi. Þar er alltaf skítkast og verið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.